Morgunblaðið - 14.02.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Börnin á leikskólanum Drafnarsteini í Reykja-
vík fengu saltkjöt og baunir í hádegismat í til-
efni af sprengideginum í gær. Á myndinni sitja
f.v. Regína Sóley Sveinsdóttir, Gunnar Nói
Sverrisson, Flóki Þórisson og Hildur Ninja
Grétarsdóttir. Fannst þeim öllum saltkjötið afar
gott. Sammæltust börnin hins vegar um að boll-
urnar á bolludeginum daginn áður hefðu verið
mun betri og sagði Regína að það væri vegna
þess að á bollunum væri súkkulaði. Spurð hvað
væri skemmtilegast að gera í leikskólanum
sögðu börnin það vera að leika sér í snjónum og
fara á bókasafnið. Erla Inga Skarphéðinsdóttir,
deildarstjóri á leikskólanum, segir að börnin fái
saltkjöt á hverju á ári á sprengidaginn. Reynt
er að hafa kjötið ekki of salt fyrir börnin og
mátti sjá starfsmenn leikskólans bæta smásalti
út í súpuskálarnar sínar.
Morgunblaðið/Hari
Borðuðu
saltkjöt og
baunir af
bestu lyst
Sprengidagur á leikskólanum Drafnarsteini
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikilvægt er að sveitarfélög setji sér skýra
stefnu og markmið um hvernig þau hyggist
styðja við nám og kennslu nemenda í grunn-
skólum sem hafa íslensku sem annað tungu-
mál. Þetta er meðal þess sem kemur fram í
nýrri greiningu Menntamálastofnunar.
Niðurstöður síðustu PISA-kannana hér á
landi hafa valdið miklum áhyggjum af stöðu
menntamála og þykir útkoma svokallaðra
ÍSAT-nemenda, eða nemenda sem hafa ís-
lensku sem annað tungumál, sérstakt áhyggju-
efni. Lesskilningi þeirra hefur hrakað enn
hraðar en hjá nemendum sem eiga íslensku að
móðurmáli. Á árunum 2000-2012 féll lesskiln-
ingur ÍSAT-nemenda um 47 stig á móti 20 stig-
um hjá þeim sem hafa íslensku sem móðurmál.
Niðurstöður PISA-prófsins árið 2015 sýna að
hlutfall ÍSAT-nemenda sem eru í allra neðstu
mörkum í lesskilningi er mun hærra á Íslandi,
56,9%, en meðaltal OECD-ríkja sem er 32,7%.
Þessi þróun verður samfara gífurlegri fjölg-
un innflytjenda hér á landi og bendir til þess að
ekki hafi verið nógu vel staðið að aðlögun
þeirra í skólakerfinu. Hinn 1. janúar 2017 voru
innflytjendur 10,6% mannfjöldans á Íslandi.
Árið 1997 voru 377 nemendur í grunnskólum
hér sem töluðu íslensku sem annað tungumál
en árið 2015 voru þeir orðnir 3.543 sem er tæp
tíföldun.
Í greiningu Menntamálastofnunar kemur
fram að fjöldi kennara upplifi sig vanmáttuga
og óörugga í kennslu þessa hóps. Lítið sé til af
upplýsingum og námsefni. Þörf sé á sértækum
aðgerðum og stuðningi.
Meðal þess sem lagt er til er að sett verði á
stofn sérstakt sérfræðingateymi sem sinnt
geti þessum hópi, tekið þátt í mótun sam-
ræmdrar stefnu og aðgerðaáætlunar fyrir
þennan málaflokk á landsvísu. Þá er kallað eft-
ir sértæku námsefni og að íslenska sem annað
tungumál verði kennd sem sjálfstæð náms-
grein í skólum.
„Til greina kæmi að stofna nýja námsleið í
íslensku sem öðru tungumáli á háskólastigi
sem myndi útskrifa ÍSAT-sérfræðinga sem
gætu m.a. kennt íslensku sem annað tungumál
sem sjálfstæða námsgrein í skólum,“ segir í
greiningunni.
Sérfræðingar sinni innflytjendum
Miklar áhyggjur af stöðu grunnskólanema sem hafa íslensku sem annað tungumál Aðgerða þörf
Morgunblaðið/Hari
Grunnskóli Fjöldi nemenda með íslensku sem
annað tungumál hefur tífaldast síðustu 20 ár.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF, var kölluð út vegna tveggja
kaldra og blautra erlendra göngu-
skíðamanna austan við Hofsjökul í
gær. Aðstæður á hálendinu voru erf-
iðar og tók það þyrluna fjóra tíma að
ná til mannanna.
Skv. upplýsingum frá Landsbjörg
gekk á með dimmum éljum á svæð-
inu, sem gerði þyrlunni erfitt fyrir að
finna mennina, því hefði verið kallað
eftir aðstoð björgunarsveita.
Um 100 manns frá björgunar-
sveitum á Suður- og Norðurlandi
voru á leiðinni þegar rofaði til og
áhöfn þyrlunnar náði í mennina,
rúmlega fjögur síðdegis í gær. Þeir
höfðu gist í tjaldi uppi á hálendinu og
voru orðnir býsna kaldir. Þeir voru
fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til
aðhlynningar. ernayr@mbl.is
TF-LIF
bjargaði
tveimur
Skíðamenn í
hrakningum
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Útkall Þyrlan á hálendinu í gær.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höldum áfram að vinna að þessu
máli eins og við höfum gert frá því
fyrst var haft samband við okkur.
Við reynum að mjaka því áfram og
aðstoða hana og gera dvöl hennar
bærilegri,“ segir Urður Gunnars-
dóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins.
Morgunblaðið hefur greint frá að-
stæðum Sunnu Elviru Þorsteins-
dóttur sem lamaðist eftir fall í
Malaga á Spáni í síðasta mánuði. Í
viðtali í Morgunblaðinu í gær lýsti
Sunna Elvira aðstæðum sínum, en
hún er í farbanni á Spáni eftir að eig-
inmaður hennar
var handtekinn,
grunaður um að-
ild að fíkniefna-
máli. Sunna
kveðst ekki hafa
fengið læknis-
þjónustu við hæfi
en hún er þrí-
hryggbrotin, með
þrjú brotin rif-
bein auk annarra
áverka. Sunna lýsti óánægju sinni
með framtaksleysi íslenskra yfir-
valda en fram hefur komið að utan-
ríkisráðuneytið hefur nú sent full-
trúa sinn til Spánar til að gæta
hagsmuna Sunnu.
„Hann er bara nýkominn út og við
þurfum að sjá hvað er hægt að gera.
Það er mjög takmarkað sem við get-
um haft áhrif á þetta mál. Við höfum
aðstoðað fjölskylduna við að útvega
lögfræðing og hjálpað til við sam-
skipti við spítala úti og heilbrigðis-
yfirvöld hér heima. En við komum
ekki að rannsókn málsins á neinn
hátt. Það er alveg klárt að við getum
ekki haft áhrif á hana. Hún er í hönd-
um stjórnvalda í viðkomandi landi.
Við þessar aðstæður núna, að hún er
ekki með vegabréf, getur hún ekki
farið úr landi. Helsta markmiðið er
því að koma henni á sjúkrahús þar
sem hún fær meiri umönnun,“ segir
Urður Gunnarsdóttir.
Ráðuneytið getur ekki haft
áhrif á rannsókn máls Sunnu
Helsta markmiðið að koma Sunnu á annað sjúkrahús
Sunna Elvira
Þorkelsdóttir