Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 „Meiningin er að reyna að vinna þetta hratt,“ seg- ir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sem greindi frá því í gær að til skoð- unar væri að auka upplýs- ingagjöf um kjör og starfskostn- aðargreiðslur alþingismanna. Að- gangur að þeim verði öllum auðveld- ur og þær verði birtar á vef Alþingis. Steingrímur segir í tilkynningu um málið að þingmönnum hafi síð- ustu daga borist margvíslegar fyrir- spurnir um greiðslur tengdar störf- um þeirra. Vísar hann þar til háværrar umræðu um aksturs- kostnað meðal annars. Í samtali við Morgunblaðið neitar Steingrímur því að þessar hugmyndir um bætta upplýsingagjöf séu beint svar við þeirri umræðu. „Nei, þetta var með- al annars rætt í forsætisnefnd í síð- asta mánuði, löngu áður en þessi akstursumræða kom upp,“ segir hann. „Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyrirkomulagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upplýsingum um þessi mál. Markmiðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar al- menn kjör og greiðslur til þing- manna og fullkomið gagnsæi ríki.“ hdm@mbl.is Fullkomið gagnsæi um kjörin Steingrímur J. Sigfússon  Steingrímur vill aukna upplýsingagjöf Diljá Mist Ein- arsdóttir hæsta- réttarlögmaður hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar ut- anríkisráðherra. Hóf hún störf í gær en fyrir var Borgar Þór Ein- arsson aðstoðar- maður Guðlaugs. Diljá er með meistarapróf í lög- fræði frá HÍ og hefur starfað sem lögmaður hjá Lögmálum frá árinu 2011. Auk meistaraprófs í lögfræði er Diljá með LLM-gráðu í auðlinda- rétti og alþjóðlegum umhverfisrétti frá Háskóla Íslands. Diljá var varaformaður SUS árin 2007-2009 og átti sæti í flokksráði Sjálfstæðisflokksins á sama tímabili. Diljá var varaformaður Heimdallar 2009-2010 og sat í stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 2016-17. Diljá Mist aðstoðar Guðlaug Þór Diljá Mist Einarsdóttir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að fjarlægja áhorfendastúku og steypt áhorfendastæði við Valbjarnarvöllinn í Laugardal. Þessi mannvirki eru í niðurníðslu og hafa verið dæmd ónýt. Tvennt var hægt að gera í stöðunni; að setja stórfé í endurbætur eða jafna mannvirkin við jörðu. Knattspyrnufélagið Þróttur lék heimaleiki sína á þess- um velli áður fyrr en hann hefur ekki verið notaður til kappleikja í efstu deildum í nokkur ár. Nú fara leikir Þróttar fram á gervigrasvellinum gegnt Laugardalshöll- inni. Áhorfendastúkan þar var endurbætt í fyrra og er aðstaðan á vellinum orðin ágæt. Félagsheimili Þróttar/ Ármanns er við hina hlið vallarins. Þar eru búnings- klefar leikvangsins. Þróttur hefur notað Valbjarnarvöllinn sem æf- ingasvæði fyrir barna- og unglingastarf undanfarin ár og hyggst gera það áfram. Breytingarnar á Valbjarn- arvellinum eru gerðar í samráði við Þrótt. Félagið hafði lagt til við borgina að mannvirkin væru rifin enda væru þau hættuleg fólki eins og ástand þeirra var orðið. Kostnaðaráætlun við niðurrif mannvirkjanna er 50 milljónir króna. Áætlað er að hefja framkvæmdir í mars næstkomandi og þeim ljúki í maí. Þegar mannvirkin hafa verið rifin verður svæðið tyrft. Valbjarnarvöllur var tekinn í notkun árið 1978. Í upp- hafi var þetta helsti frjálsíþróttavöllur borgarinnar. Hlaupabrautir og stökksvæði voru lögð gerviefni, sem var alger nýjung á Íslandi. Áður höfðu íslenskir frjáls- íþróttamenn hlaupið og stokkið á malarbrautum. Upphaflega hét völlurinn Fögruvellir. Síðar var farið að nefna hann eftir hinum landskunna frjálsíþrótta- kappa, Valbirni heitnum Þorlákssyni. Hann starfaði um langa hríð við íþróttamannvirkin í Reykjavík. Niðurrif á Valbjarnarvelli Morgunblaðið/RAX Valbjarnarvöllur Mannvirkin verða horfin áður en sumarið gengur í garð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.