Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 10
SVIÐSLJÓS Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti á íbúafundi í síðustu viku þá hugmynd að endurgera eða endur- byggja frystihúsið á Kirkjusandi í upprunalegri mynd. Íslandsbanki var með starfsemi í húsinu fram á síðasta ár en neydd- ist til að flytja aðalstöðvar sínar í Kópavog vegna myglu í húsinu. Edda Hermannsdóttir, sam- skiptastjóri bankans, segir að verið sé að skoða alla möguleika en það liggi fyrir að húsið sé mikið skemmt vegna raka. Víða mun raki vera kominn djúpt inn í steypuna. Óvíst er hvort rífa þurfi húsið vegna skemmdanna en sérfræð- ingar hafa verið að meta þær. „Við erum að vinna að þessu máli í góðu samstarfi við borgaryfirvöld,“ segir Edda. Upphafið hjá Júpiter og Mars Frystihúsið á Kirkjusandi var reist á árunum 1955-1962 af hluta- félögunum Júpíter og Mars. Hinn kunni athafnamaður Tryggvi Ófeigsson var í forsvari fyrir þessi félög. Húsið var byggt í áföngum og var á sínum tíma stærsta frysti- hús landsins. Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) eignaðist svo húsið árið 1975. Á síðu um arkitektúr, skipulag og staðarprýði, sem Hilmar Þór Björnsson arkitekt heldur úti, kem- ur fram að árið 1988 var bygging- unni breytt í skrifstofuhús SÍS og alls konar skálar umhverfis það rifnir. Samhliða þeirri endurnýjun var húsið klætt að utan með loft- ræstri álklæðningu og skipti það þá algerlega um einkenni (karakter). Eftir fall SÍS keypti Íslandsbanki (1995), sem síðar varð Glitnir og aftur Íslandsbanki, húsið og hafði þar aðalstöðvar sínar þar til flýja þurfti vegna myglu. Breytingar á húsinu, sem gerðar voru fyrir SÍS, voru hannaðar af arkitektunum Ormari Þór Guðmundssyni og Örn- ólfi Hall. „Eitt af því sem ég kynnti á íbúa- fundinum í Laugardal var hugmynd um að endurgera eða endurbyggja það í upprunalegri mynd. Bæði held ég að húsið geti verið mikil prýði í umhverfi sínu og jafnframt er eiginlega ennþá mikilvægara að halda í það og útlit þess í ljósi þess að á næstu lóðum eru að rísa nýjar byggingar í takt við okkar tíma,“ segir borgarstjóri í vikulegum fréttapistli sínum. Aðstaða fyrir lítil fyrirtæki Dagur segir að fyrirmyndina að verkefninu sé ekki langt að sækja, nefnilega í Marshall-húsið í Örfir- isey. Hann hafi fengið sömu arki- tekta og unnu að endursköpun Marshall-hússins til að gera til- lögur, Ásmund Sturluson og Stein- þór Kárason hjá Kurt og Pí arki- tektum. „Þegar húsnæðið væri klárt mætti hugsa sér alls kyns skemmtilega starfsemi þarna, t.d. aðstöðu fyrir lítil fyrirtæki, eitthvað tengt LHÍ(Listaháskólinn) sem er á næstu lóð, skapandi greinum, tækni og nýsköpun.“ Byggingin á Kirkjusandi er 7.719 fermetrar að stærð. Sambyggð vörugeymsla, 1.069 fermetrar, var rifin í fyrra. Nýtt „Marshall-hús“ á Kirkjusandi?  Borgarstjóri hefur kynnt þá hugmynd að endurgera eða endurbyggja frystihúsið á Kirkjusandi í upprunalegri mynd  Húsið var yfirgefið vegna myglu  Marshall-húsið í Örfirisey er fyrirmyndin Morgunblaðið/Ómar Íslandsbankahúsið Þannig lítur húsið út í dag, yfirgefið vegna myglu. Húsinu var breytt í skrifstofuhús árið 1988. Teikning/Kurt og Pí arkitektar Frystihúsið Þannig leit húsið út í upphafi. Um tíma var það stærsta frystihús landsins, rekið af Júpíter og Mars. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heimsmarkaðsverð á minkaskinn- um virðist byrjað að stíga á ný, eft- ir mikinn öldudal undanfarin tvö ár. Verðið er þó enn langt undir framleiðslukostnaði skinna hér á landi. Fyrsta loðskinnauppboð ársins hjá Kopenhagen Fur þar sem ís- lenskir minkabændur selja skinn sín er lokið. Verðið hækkaði í doll- urum frá því í júní þegar síðast voru seld sambærileg skinn, nálægt 5% að meðaltali. Þegar verðið er yfirfært í danskar krónur breytist hækkun í lækkun því dollarinn hef- ur lækkað um 10% gagnvart dönsku krónunni. Ef litið er framhjá þessum hræringum má sjá að verðið er svipað í íslenskum krónum og það var í júní. „Það er því miður undir framleiðslukostnaði og staðan því óbreytt,“ segir Einar Eðvald Einarsson, minkabóndi á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. „Það er þó jákvætt að skinnin hækka í dollurum og jákvætt að allt seldist,“ bætir Einar við. Vongóðir fyrir árið Fram kemur á vef Kopenhagen Fur að töluvert líf var í uppboðs- húsinu að þessu sinni, 100 fleiri kaupendur en á fyrsta uppboði síð- asta árs. Eftir smáhikst í upphafi var ágæt samkeppni á milli kaup- enda. Haft er eftir Jesper Lauge Christensen, framkvæmdastjóra hjá Kopenhagen Fur, að gott upp- haf á nýju sölutímabili gefi góð fyr- irheit fyrir árið. Framboð á minkaskinnum er að dragast saman eftir offramboð sem leiddi til verðlækkunar fyrir tveim- ur árum. Spáð er 10% minna fram- boði í ár. Það hefur jákvæð áhrif á verðið, að mati uppboðshússins. Einar tekur þó fram að það hafi reynst stjórnendum iðnaðarins erf- itt að áætla heimsframleiðsluna og þróun hennar. Til dæmis séu tölur um framleiðslu í Kína alltaf nokkuð á reiki. Stöðugt þrengir meira að minka- bændum, bæði hérlendis og erlend- is. Fimm íslenskir minkabændur hættu í haust og fleiri eru að hugsa sinn gang. Einar segir að erfitt verði fyrir marga að komast í gegn- um þetta ár ef verðið hækkar ekki. Verð á minkaskinnum hækkar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason  Verðið er enn langt undir framleiðslu- kostnaði bænda Skinnaverkun Skinnin fara á upp- boð þegar þau eru tilbúin til sölu. Marshall-húsið í Örfirisey var byggt árið 1948 og var upp- haflega síldarverksmiðja. Bygging verksmiðjunnar var að hluta fjármögnuð með Marshall-aðstoð Bandaríkjanna eftir stríð og er nafn hússins þaðan komið. Eftir að þeirri starfsemi var hætt stóð húsið að mestu tómt. Árið 2014 var viðbygging norðvestan þess rifin og haf- inn undirbúningur að því að gera húsið að menningar- og viðburðahúsi. Húsið var formlega opnað í mars 2017. Þar er að finna sýningaraðstöðu Nýlistasafnsins, Kling & Bang og Ólafs Elíassonar svo og vinnustofur. Veitingastaður er á jarðhæð. Öflug menningarstarfsemi hefur verið í húsinu allt frá opnun. Arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason, eigendur arkitektastofunnar Kurt og Pí, hlutu Hönnunarverðlaun Íslands fyrir árið 2017 fyrir hönnun Mars- hall-hússins, sem þeir leiddu í samstarfi við ASK arkitekta. Marshall-húsið er 1.839 fermetrar að stærð. HB-Grandi er eigandi hússins en Reykjavíkurborg tók það á leigu til 15 ára og framleigir til fyrrnefndra aðila. Vettvangur lista við gömlu höfnina MARSHALL-HÚSIÐ Í ÖRFIRISEY Örfirisey Marshall-húsið var opnað á ný á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.