Morgunblaðið - 14.02.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.02.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Þrjátíu störf eða fleiri gætu skapast á Blönduósi á næstu þremur árum þegar gagnaver Borealis Data Cent- er taka þar til starfa. „Þumalputta- reglan er að fyrir hvert megavatt orku verði til eitt starf í fyrirtækinu sjálfu og hálft annað afleitt starf,“ segir Arnar Þór Sævarsson sveitar- stjóri í samtali við Morgunblaðið. Gert er ráð fyrir að gagnaverin þurfi á 15 megavöttum að halda. Borealis, sem er íslenskt fyrirtæki með erlenda viðskiptavini, hefur fengið úthlutað lóð fyrir gagnaver á svæði sem er í skipulagsferli við Svínvetningabraut á Blönduósi. Gagnaver fyrirtækisins mun ein- beita sér að bitcoin-námuvinnslu, en Arnar Þór sér fyrir sér að á næstu árum muni bætast við fleiri gagna- ver með fjölbreyttari starfsemi. Á lóðinni sem Borealis fékk út- hlutað verða reist tvö stálgrindarhús á steyptum sökklum, annað um 640 fermetrar að stærð og hitt um 580 fermetrar. Fyrirtækið rekur nú þeg- ar gagnaver í Reykjanesbæ en hefur jafnframt verið að svipast um eftir hentugri staðsetningu fyrir slík ver þar sem nægt landrými er og gott aðgengi að raforku. Þykja aðstæður á Blönduósi góðar í því samhengi. Nálægðin við Blönduvirkjun er talin mikill kostur, öruggur orkuflutning- ur og um skamman veg að fara. Sam- göngur eru greiðar og ennfremur þykir svæðið ákjósanlegt vegna lít- illar hættu á náttúruvá, s.s. jarð- skjálftum, eldgosum, snjóflóðum og skriðuföllum. Við vinnslu aðalskipulags á Blönduósi hefur bærinn tekið frá stórt svæði, samtals um 200 hektara að stærð, sem hentað gæti undir starfsemi gagnavera og áþekkrar iðju. Það svæði sem nú hefur verið deiliskipulagt er um 30 hektarar. Markmiðið er að efla fjölbreytni at- vinnutækifæra í sveitarfélaginu. gudmundur@mbl.is Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Þróun Bæjarmynd Blönduóss tekur breytingum þegar gagnaverin við Svín- vetningabraut hafa verið byggð. Fyrstu lóðunum hefur nú verið úthlutað. Gæti skapað 30 ný störf á Blönduósi  Lóðum úthlutað fyrir gagnaver á staðnum  Bitcoin-námuvinnsla Fjórar af þeim íbúðum sem PCC Seaview Residences, dótturfélag kísilvers PCC á Bakka, hefur byggt í Holtahverfi á Húsavík eru tilbúnar og íbúar eru fluttir inn í tvær íbúð- anna. Búið er að leigja allar íbúð- irnar sem félagið er að reisa í hverf- inu og fjölskyldur komnar á biðlista. PCC Seaview er að byggja 11 par- hús í Holtahverfi með samtals 22 íbúðum fyrir starfsfólk. Auk þeirra fjögurra íbúða sem eru tilbúnar verða fjórar tilbúnar í næstu viku. Bergur Elías Ágústsson, starfs- maður fyrirtækisins, segir að það séu mest starfsmenn sem koma lengra að á Íslandi eða að utan sem sækist eftir að fá leigt. Sumir hafi óskað eftir forkaupsrétti og segir hann að fyrirtækið sé opið fyrir því. Fólkið hefur beðið eftir að komast í húsnæði og hefur verið að brúa bilið með ýmsum hætti. Sumar fjölskyld- urnar hafa beðið með að flytja þar til íbúðirnar eru tilbúnar. Íbúðirnar eru af tveimur stærðum og gerðum, annars vegar 77 fer- metrar og hins vegar 90 fermetrar. Eftir er að ganga frá lóðum og göt- um. Einstaklingur fékk lóð Spurður um frekari byggingar segir Bergur Elías að þörfin verði metin þegar fyrsta áfanga lýkur. Sveitarfélagið Norðurþing hefur auk þess úthlutað einum einstaklingi einbýlishúsalóð á þessu byggingar- svæði. helgi@mbl.is Flutt inn í fyrstu íbúðirnar  PCC hefur leigt allar íbúðirnar sem það er að byggja Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Flutt inn Fyrstu íbúarnir frá Noregi, Simen Frøisland, Sofie Ose og Felix Ose. Aukin lífsgæði án verkja og eym Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar. Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6 töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir nú horfnir. Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum. Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“ Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt NUTRILENK ACTIVE sla Varðberg stendur fyrir hádegis- verðarfundi á morgun, fimmtudag, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins frá kl. 12-13. Yfirskrift fundarins er: „Þjóðaröryggisráð – samráðs- vettvangur um þjóðaröryggismál“. Þórunn J. Hafstein, ritari þjóðar- öryggisráðs, með starfsaðstöðu í forsætisráðuneytinu, flytur erindi og svarar spurningum um starf- semi ráðsins sem tók til starfa á árinu 2017. „Í stefnuyfirlýsingu sinni leggur ríkisstjórnin áherslu á að öryggismál þjóðarinnar séu í traustum skorðum. Þjóðaröryggis- stefna Íslands sem samþykkt var af Alþingi verði höfð að leiðarljósi. Þjóðaröryggisráðið er hluti þess- arar stefnu og hefur starfsemi þess mótast á liðnum mánuðum,“ segir í tilkynningu Varðbergs um fundinn. Þórunn J. Hafstein er lögfræð- ingur frá Há- skóla Íslands og lauk framhalds- námi í lögfræði við University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Hún hefur starf- að í Stjórnarráði Íslands frá árinu 1984, fyrst í menntamálaráðuneytinu og síðar í dómsmálaráðuneytinu, sem skrif- stofustjóri á skrifstofu almanna- og réttaröryggis. Þá var Þórunn sett- ur ráðuneytisstjóri dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins frá 2009 til ársloka 2010. Hún var um tíma forstöðumaður á skrifstofu EFTA í Brussel. Þórunn hóf störf sem ritari þjóðaröryggisráðs í júlí 2017. Starfsemi íslenska þjóðaröryggisráðsins kynnt á hádegisverðarfundi Varðbergs Þórunn J. Hafstein

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.