Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjálpsöm Lilja Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öndunar- og jógakennari, hefur komið víða við. Hún hefur tekið þátt í hjálparstörfum í fjórum löndum og notað öndunartækni til þess að komast í gegnum erfiða lífsreynslu. bætti við þekkinguna jógakennslu í kjölfarið. „Þegar ég var að byrja að kenna jóga árið 2007 var ekki sama jógaæð- ið og er í dag. Fólk var ekki búið að gera sér grein fyrir því hvað einfaldar jógaæfingar með íhugun og léttum líkamsæfingum geta verið styrkj- andi,“ segir Lilja og bætir við að með jóganu og Art of Living hafi hún fundið fyrir meiri vinnukrafti og gleði. Skapið hafi batnað og hún brenni síður út. „Það er alltaf nóg að gera á spít- alanum og ég finn að þegar ég nýti mér öndunina og slökun þoli ég betur álag og æsi mig ekki yfir smámunum. Alveg sama hvað gengur á þá lendi ég alltaf á löppunum,“ segir Lilja, sem á sér þann draum að leyft verði að nota Art of Living-öndunina á sjúkra- húsum. Hræðileg reynsla á Haítí Lilja hefur þrisvar farið sem hjúkrunarfræðingur til hjálparstarfa á hamfara- og átakasvæðum. Hún starfaði í Taílandi 1987, Pakistan 1990 og Haítí vegna jarðskjálftanna þar árið 2010. „Reynslan á Haítí var hræðileg- asta lífsreynsla sem ég hef lent í. Það kom sér vel að kunna öndunar- tæknina til þess að ná áttum í öllu því vonleysi sem þar ríkti. Art of Living stofnaði hóp á Haítí til þess að hjálpa fólki að vinna úr erfiðri reynslu,“ seg- ir Lilja og bætir við að stofnandi Art of Living, Sri Sri Ravi Shankar, hafi sett saman námskeið í öndunartækni eftir 10 daga íhugun árið 1982. Hann hafði séð þunglyndi og kvíða aukast gífurlega í vestrænum heimi og á Indlandi. Í dag er tæknin kennd í 154 löndum. Að sögn Lilju kom Sri Sri hingað til lands síðasliðið sumar og fyllti Frí- kirkjuna af áhugasömu fólki. „Það fyrsta sem gerist þegar þú tekur námskeið hjá Art of Living er að þú sefur betur, það er alla vega mín reynsla, og einhverjir hafa hætt að nota svefnlyf. En við ráðleggjum fólki að gera slíkt eingöngu í samráði við lækni. Með því að nota önd- unartæknina rétti ég úr hryggnum og blómstraði,“ segir Lilja „Ég er óvirkur alkóhólisti og finn að ef ég hætti að gera reglulegar öndunaræfingar þá fer allt í vaskinn. Með því að gera þetta á hverjum degi held ég mér á beinu brautinni. Þegar fólk á við vandamál að stríða þarf það að gera eitthvað í málunum og þar kemur öndunin sterk inn,“ segir Lilja brosandi. Lilja kláraði kennaranám 2007 og hélt 27 Art of Living-öndunar- námskeið til ársins 2012 auk þess að klára jógakennaranám. „Draumurinn er að geta einbeitt mér eingöngu að öndunar- og jóga- kennslu. Ég hef ekki haft húsnæði hingað til en það stendur nú til bóta því ég er að innrétta hjá mér húsnæði undir kennslu,“ segir Lilja sem æfir með hópi sem hittist einu sinni í viku og gerir jóga og öndunaræfingar. Lilja segir að Art of Living sé meira en öndunin. „Art of living er alþjóðasamfélag þar sem 2% af tekjum fara í rekstur og 98% í hjálparstarf. Það er mikið um sjálfboðavinnu og námskeiðin eru seld á mjög sanngjörnu verði,“ segir Lilja. „Það eru reknir 480 skólar á Ind- landi á vegum Art of Living. Eftir stríðið í Kósovó fóru kennarar á veg- um samtakanna og kenndu fólki önd- unaræfingar til þess að það gæti sofið og tekist á við þau hrikalegu áföll sem íbúar þar urðu fyrir. Sama er að segja um önnur hamfarasvæði.“ Öndunartækni í fangelsin Art of Living reyndi að markaðs- setja öndunartæknina á Grænlandi 2013 en það gekk ekki sem skyldi. ,,Það er virkileg þörf fyrir aðstoð á Grænlandi þar sem alkóhólismi og mikil depurð ríkir. Það gengur von- andi betur næst,“ segir Lilja sem á sér þann draum að koma 10 daga kennslu í öndunartækninni inn í fang- elsi landsins. „Vandamál fanga rísa yfirleitt út af streitu. Þeir eru árásargjarnir, lemja og stela af völdum streitu sem þarf að losa um svo þeir eigi von á betra lífi til framtíðar,“ segir Lilja. Lilja segir að það fari ágætlega saman að vera hjúkrunarfræðingur og öndunar- og jógakennari en hún er enn að bæta við sig þekkingu og skipuleggur hamingjunámskeið fyrir landann. Hún fær kennara að utan á meðan hún er sjálf að læra að kenna á hamingjunámskeiðum og bíður eftir að draumur hennar um litla miðstöð þar sem fólk geti komið, íhugað og stundað jóga og öndunaræfingar sér til framdráttar rætist. Náttúrubarn Lilja berfætt fyrir framan Hörpu. Hún er að kynna fyrir gest- um sem þangað mættu Art of Living-öndunartækni á alþjóðajógadeginum. Íhugun Art of Living-öndunartækni og íhugun hjálpa til við streitulosun og auka orku. Að sögn Lilju getur öndunin bætt svefn og viðhaldið starfsorku. Einbeitt Lilja í jóga á alþjóðajógadeginum árið 2016. Hún segir að hver og einn beri ábyrgð á eigin heilsu og jógaástundun geti hjálpað til við það. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.