Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Í dag gefur Íslandspóstur út sjö ný frímerki í fjórum útgáfuröðum. Út- gáfurnar eru; Íslenska fullveldið 100 ára, Landsbókasafnið 200 ára, Jón Thoroddsen sýslumaður og rithöf- undur 200 ára og Evrópufrímerkin 2018, þar sem þemað er brýr. Einnig kemur út gjafamappa með smáörk- inni íslenska fullveldið 100 ára. Fullveldisfrímerkin eru tvö og er á þeim stílfærð teikning af alþing- ishúsinu annars vegar og stjórn- arráðshúsinu hins vegar og blaktir á báðum byggingunum íslenski rík- isfáninn (tjúgufáninn) sem dreginn var að hún í fyrsta sinn 1. desember 1918. Tvívegis áður hafa verið gefin út frímerki til að minnast fullveldisins 1918, á fjörutíu ára afmælinu 1. des- ember 1958 og fimmtíu ára afmælinu 1. desember 1968. Á frímerkinu 1958 var teikning af íslenska ríkisfán- anum með Þingvelli í baksýn. Mynd af Jóni Magnússyni var á frímerkinu 1968, en hann var forsætisráðherra þegar lýst var yfir fullveldi 1918. Hönnuður nýju fullveldismerkj- anna er Örn Smári Gíslason. Hönn- uðir hinna frímerkjanna eru Tryggvi T. Tryggvason (Landsbókasafnið), Hany Hadaya (Jón Thoroddsen) og Borgar H. Árnason (Evrópufrí- merki). Sjö ný frímerki gefin út í dag  Tvö frímerki vegna fullveldisafmælis Afmæli Frímerkin tvö sem gefin eru út til að minnast fullveldisafmælisins. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Tíðarfarið í vetur hefur verið erfitt og snjómoksturinn er svolítil kúnst á köflum. Stundum er eina ráðið að loka veginum svo ekki leggi á fjallið ökumenn á vanbúnum bílnum sem þeir festa og teppa með því aðra um- ferð,“ segir Ingileifur Jónsson, verk- taki á Selfossi. Á vegum fyrirtækis síns hefur Ingileifur með höndum snjómokstur á Hellisheiði, í Þrengslum og á Árborgarsvæðinu en gagnrýnt hefur verið síðustu daga að hve oft Vegagerðin hefur lokað veg- inum yfir heiðina þegar veður versn- ar. Gagnrýnendur telja þetta vera of- notað úrræði. Skefur að vegriði Snjóruðningsmenn halda Hellis- heiðinni opinni allan sólarhringinn. Menn á fjórum til fimm bílum úr flota Ingileifs eru á ferðinni og í vestri er upphafspunktur ferða þeirra í Norðlingaholti í Reykjavík. Allt að fimmtán karlar eru í mokst- ursgenginu og að undanförnu hafa bílarnir snúist 24 tíma á sólarhring. Ekki veitir af. Yfirleitt eru bílarnir tveir saman í einu og er þá annar vinstra megin á akbraut og við miðlínu en hinn í veg- brún. Þannig er fljótgert að ryðja snjónum af, ef ekki eru fyrirstöður til dæmis þegar bílar sitja fastir. „Mokstur er vandasamari en áð- ur,“ segir Ingileifur þegar Morgun- blaðið hitti hann í Litlu-kaffistofunni í Svínahrauni í gærmorgun. „Oft skefur snjó að vegriðinu sem nú er komið úr Svínahrauni og niður í Kamba og aðskilur akstursstefnur. Því þarf nokkra lagni þegar rennt er fram hjá víravirkinu, til dæmis þar sem vegurinn er einbreiður. Séu til dæmis litlir japanskir bílar stopp úti í vegbrún eða jafnvel úti á akbraut- inni teppir það snjómoksturinn og alla aðra umferð í framhaldinu.“ Vetrarþjónusta í fjórtán ár Ingileifur hefur síðastliðin fjórtán ár sinnt vetrarþjónustu fyrir Vega- gerðina á leiðinni austur fyrir fjall og á Árborgarsvæðinu. Veðráttu í vetur segir hann hafa verið sérstaklega leiðinlega og söm hafi raunin verið veturinn 2014 til 2015. Minni reynsla og hefð var þá fyrir lokun vegarins yfir Hellisheiði miðað við nú, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur heiðinni verið lokað tólf sinn- um það sem af er þessu ári, fjórum sinnum í fyrra og í átta skipti 2016. „Umferðin hefur aukist mikið á undanförnum árum. Það er alltaf stór hópur sem fer þessa leið daglega til dæmis vegna vinnu og áður var það fólk yfirleitt á góðum bílum, til dæmis jeppum sem voru vel dekkj- aðir. Núna hefur það svolítið dottið út og kannski hefur öflug vetrarþjón- ustan gert fólk værukært að þessu leyti,“ segir Ingileifur og heldur áfram: Á vanbúnum bílum og þekkja ekki aðstæður „Mesta breytingin úti í umferðinni snýr auðvitað að ferðafólki, sem þekkir ekki aðstæður og leggur alltof oft á vanbúnum bílum á fjallvegi og festir sig. Það er ein margra góðra ástæðna fyrir því að loka vegum eins og Hellisheiði, þegar veður versnar. Þó að margir, til dæmis jeppamenn og vanir bílstjórar, geti komist yfir fjallið í sæmu veðri, ráða aðrir ekki við þær aðstæður. Lægsti samnefn- arinn, sem er óvanir bílstjórar sem koma sér og öðrum í vandræði, þýðir að loka þarf veginum jafn oft og raun ber vitni,“ segir Ingileifur Tækin snúast allan sólarhringinn  Annríki hjá Ingileifi á Hellisheiðinni  Erfiður vetur og smábílar stöðva allt  Skefur að vegriðinu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Snjókarlar Frá vinstri talið: Ingileifur Jónsson, Sigurður Ingvarsson og Jón Þór Tómasson í éljaganginum í Svínahrauninu í hádeginu í gærdag. FRÍSKANDI BRAGÐ OG FULLT AF HOLLUSTU LÝSI MEÐMYNTU- OG SÍTRÓNUBRAGÐI Lýsi með myntu- og sítrónubragði er ný vara frá Lýsi sem innheldur omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA og er þar að auki auðugt af A-, D- og E-vítamínum. LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR NÝ F E R S K T O M Y N T U- OG SÍTRÓN U B R A G Ð V E R T JÓN BERGSSON EHF Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM Hentar þetta þínum garði, svölum, rekstri eða sumarbústað?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.