Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 14. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 101.82 102.3 102.06 Sterlingspund 140.95 141.63 141.29 Kanadadalur 81.01 81.49 81.25 Dönsk króna 16.77 16.868 16.819 Norsk króna 12.794 12.87 12.832 Sænsk króna 12.583 12.657 12.62 Svissn. franki 108.55 109.15 108.85 Japanskt jen 0.9363 0.9417 0.939 SDR 147.16 148.04 147.6 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.5682 Hrávöruverð Gull 1329.4 ($/únsa) Ál 2129.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.5 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Stefnt er að skráningu leigu- félagsins Heima- valla í Kauphöll Ís- lands um mánaða- mót mars og apríl. Félagið hagnaðist um 2,7 milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt nýbirtu ársuppgjöri, en hagnaðurinn var 2,2 milljarðar árið á undan. Leigutekjur félagsins námu 3,1 millj- arði króna og ríflega tvöfölduðust milli ára. Félagið tók 330 nýjar íbúðir í notk- un á síðasta ári og voru þær orðnar um 2.000 í árslok. Matsbreytingar fjárfestingareigna námu 3,8 milljörðum króna á síðasta ári en virði fjárfestingareigna var í árslok 54 milljarðar króna. Eigið fé Heimavalla nam 17,6 millj- örðum króna um áramótin og eiginfjár- hlutfall var 31,4%. Heimavellir á markað um mánaðamót mars og apríl Heimavellir Íbúðir í Byggjuhverfinu. STUTT laða stórfyrirtæki hingað með skat- taívilnunum. Hún bendir á að hægt sé að nota svipað fyrirkomulag og gert er varðandi kvikmyndaframleiðslu, en framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi eiga kost á endurgreiðslum á allt að 25% af fram- leiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. „Stjórnvöld útbjuggu flott pró- gramm til að styðja við kvikmynda- iðnaðinn hér á landi, sem varð til þess að hingað hafa komið fjölmörg erlend verkefni,“ segir María. „Fordæmið er til staðar og árangurinn er augljós.“ Hún segir að tækifærin blasi alls staðar við fyrir Ísland. „Það eru allir sammála að Ísland sé númer eitt þeg- ar kemur að gagnaversuppbyggingu. Það sýna alþjóðlegar kannanir.“ Hún segir að vegna slakra gagna- tenginga og skorts á skattaívilnunum hafi viðræður við risafyrirtæki eins Amazon, Google og Facebook ekki skilað árangri, en slík fyrirtæki hafa skoðað hér aðstæður. „Ef brugðist hefði verið jafn hratt við og gert var með kvikmyndirnar þá væru slík fyrirtæki hér með starfsemi í dag.“ María segir að sú staðreynd að rík- isstyrkir séu eingöngu veittir til upp- byggingar gagnavera úti á landi hamli uppbyggingu gagnavera hér á landi. „Það mun verða ákveðin hindr- un í sölu á verkefnum inn í gagnaver ef það er staðsett langt frá höfuðborgarsvæðinu. Gagnaver þarf að vera aðgengilegt fyrir þá sem þar eiga og reka sinn tölvubúnað. Það má ekki taka langan tíma að komast á staðinn.“ Slæmt fyrir gagnaver að vera of háð bitcoin-greftri AFP Vöxtur María Ingimundardóttir telur að gagnaversiðnaðurinn geti vaxið umtalsvert og skilað miklum tekjum. Gagnavinnsla » Ísland er öruggasta land í heimi fyrir gagnaver. » DCI, Samtök gagnavera á Íslandi, hafa þrýst á yfirvöld um úrbætur í starfsumhverf- inu. » Opin kerfi stunda virka markaðssetningu gagnavera erlendis. » Svíar hafa nánast afmáð skatta á rafmagn til gagna- vera, sem lækkar rafmagns- kostnað veranna um 40%.  Segir að risafyrirtæki væru hér nú þegar ef opinber stuðningur væri fyrir hendi BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is María Ingimundardóttir, fram- kvæmdastjóri ráðgjafarsviðs upplýs- ingatæknifyrirtækisins Opinna kerfa, segir að gagnaver hér á landi séu örfá, og um 80-90% af starfsemi þeirra sé vegna bitcoin-námugraftrar. „Það er slæmt að vera svo háð einni tegund af vinnslu, sem ofan á allt er mjög brot- hætt. Ef verð á rafmynt fellur hratt og gengið fer neðarlega af einhverj- um ástæðum, gæti það leitt til þess að þeir aðilar sem eiga þennan búnað sjái ekki fram á að það borgi sig að halda starfseminni áfram. Gagnaver- in sitja þá uppi með hrúgu af einskis nýtum tölvubúnaði, en tölvurnar sem notaðar eru við bitcoin-vinnsluna eru sérsmíðaðar og nýtast ekki í önnur verkefni,“ segir María í samtali við Morgunblaðið. Hún bætir við að fjölbreyttari starfsemi þurfi í gagnaverin, og bend- ir þar til dæmis á ýmsa hátæknilega útreikninga fyrir erlend stórfyrir- tæki. „Við þurfum líka fleiri gagnaver til að bera kostnað af fleiri tengingum til landsins.“ Hún segir að það sem helst hindri erlenda aðila í að koma til Íslands séu fáar tengingar og frekar dýrar. Gagnaflutningsgeta núverandi strengja (Farice og Danice) sé nægi- leg og langt frá því að vera fullnýtt, en heilbrigða samkeppni vanti á mark- aðinn. Styðja eins og við kvikmyndir María vill sjá meiri aðkomu yfir- valda að geiranum. Þau geti bæði beitt sér varðandi betri gagnateng- ingar við útlönd, sem og til þess að Rekstrarhagnaður Regins, sem m.a. á Smáralind, fyrir matsbreytingar jókst um 4% á milli ára og var 4,5 milljarðar króna árið 2017. Rekstr- artekjur jukust um 7% á milli ára og námu 7,1 milljarði króna. Þetta kem- ur fram í uppgjöri félagsins sem birt var í gær. Hagnaður fyrirtækisins dróst saman um 11% á milli ára og nam 3,8 milljörðum króna. Samdrátturinn helgast af því að matsbreyting fast- eigna var 817 milljónum króna minni í fyrra en árið 2016. Matsbreytingin í fyrra var 2,9 milljarðar króna. Arðsemi eiginfjár með matsbreyt- ingum var 12% á árinu en eigið fé var 34,6 milljarðar króna við árslok. Eiginfjárhlutfallið stendur í stað á milli ára og er 35%. Vaxtaberandi skuldir jukust hins vegar um 16% á milli ára og námu 57,5 milljörðum króna en vaxtagjöld lækkuðu um 4% á tímabilinu. Félag- ið mun halda áfram þeirri vegferð að endurfjármagna lán félagsins á næstu misserum séu markaðsað- stæður með þeim hætti að hagstæð- ari kjör bjóðist, segir í afkomutil- kynningu til Kauphallar Íslands. Þar segir einnig að eins og áætl- anir gerðu ráð fyrir hafi yfirstand- andi umbreytingar í Smáralind á árinu 2017 áhrif á tekjur og afkomu. Áhrifin felast í tímabundið lægri tekjum og hærri rekstrarkostnaði en þessar umbreytingar eru að mestu yfirstaðnar, segir í tilkynningunni. Þegar hafa um 60% leigurýma verið endurbætt í kjölfar umbreytinga á verslanamiðstöðinni og alþjóðleg vörumerki, eins og H&M og Zara, hafa opnað nýjar eða endurbættar verslanir. helgivifill@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Reginn Umbreytingar í Smáralind höfðu áhrif á tekjur og afkomu. Reginn hagnaðist um 3,8 milljarða  Vaxtaberandi skuldir jukust um 16% milli ára Meira til skiptanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.