Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 20

Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Jensen JNB400 umgjörð kr. 18.900,- Ástin er ekki umbúð- ir eða útlit. Hvorki girnd né losti, heldur bál sem kviknar. Henni þarf að halda við svo glóðin kulni ekki og slokkni. Ástinni fylgir aðlögun, stöðugt sam- tal, ákvörðun, virðing og gagnkvæmt traust. Ljúft en getur líka verið sárt Líklega þráum við það flest ef ekki öll að elska og finna að við séum elsk- uð. Hvað veist þú annars dásamlegra og dýrmætara en það að fá að elska og fá að hvíla í örmum þess sem þú elskar? Fá að hvíla í örmum þess sem elskar þig? Þú finnur að þú ert hluti af einhverju. Einhverju meiru og dýpra en þú ert sjálf/ur. Það er ljúft en getur líka verið sárt. Þú ert gef- andi og þú ert þiggjandi. Ert í hlut- verki sem þú kannt eitthvað svo skelfing illa og hræðist jafnvel en skalt samt endilega láta eftir þér að takast á við. Og njóttu þess að láta það eftir þér af ástríðu hafirðu tæki- færi til. Ástin gefst ekki upp Ástin er líklega allt í senn það dásamlegasta sem til er en um leið eitthvað svo skelfing viðkvæm og vandmeðfarin, brothætt og sár. En jafnframt svo vermandi og falleg, ljúf og sönn, djúp og varanleg. Ástin er skjól, vígi og skjöldur. Hún virðir mörk, er þolinmóð og hún umber. Hún styður, uppörvar og hvetur. Sönn ást sýnir samstöðu og skiln- ing án þess að vera meðvirk. Hún breiðir yfir lesti, er gegnheil og svík- ur ekki. Hún gefst ekki upp og yfir- gefur ekki. Því að sönn ást fellur ekki úr gildi. Ástin er eins og galdur sem ég skil ekki en get upplifað, meðtekið og þegið, hvílt í, notið og gefið. Leikur með eld Truflaðu ekki líf þitt með óþarfa flækjum sem hægt hefði verið að komast hjá. Kveiktu ekki elda sem ekki verða svo auðveld- lega slökktir því þeir munu skilja eftir sviðna jörð, kramin hjörtu og flakandi sár. Eða í besta falli djúp og varanleg ör. Í það minnsta á sálinni. Ef þú vilt að hjarta þitt slái í fjölskyldu þinni þarftu að verja tíma þínum með henni. Þið þurfið að vera sam- an og tala saman. Þú þarft að hlusta. Þið þurfið að vinna saman, gráta sam- an, gleðjast saman og njóta uppsker- unnar saman. Vertu þar sem hjarta þitt slær, ekki þar sem heimurinn lokkar. Gleymdu ekki að heima hjá þér bíður fólk sem reiknar með þér og treystir þér. Stólar á þig, þráir þig og elskar þig. Hlauptu ekki eftir því sem hugurinn girnist hverju sinni því það leiðir þig aðeins í ógöngur og veg- leysu. Hlustaðu heldur eftir því hvað hjarta þitt þráir en hvað hugurinn girnist. Látum hugann aldrei bera hjartað ofurliði. Sópum stöðugt huga okkar og leyf- um hjartanu að ráða. Berjumst hinni góðu baráttu. Gefumst ekki upp. Hin hjartanlega hamingja veitir nefnilega sanna gleði. Því hún er djúp, sönn og varanleg. Vegna þess að hún byggist á djúpri alvöru og sannri þrá hjartans eftir því að fá að elska, vera virtur og elskaður og því að fá að hvíla í ástinni í blíðu og stríðu. Með kærleiks- og friðarkveðju. Njótum dagsins og lífsins. Lifi lífið! Ástin fellur ekki úr gildi Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Ástin er ekki umbúð- ir eða útlit. Hvorki girnd né losti, heldur bál sem kviknar. Henni þarf að halda við svo glóðin kulni ekki og slokkni. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Stærsta framkvæmd Íslandssögunnar er réttlætt af áratuga gömlum útreikningum sem standast ekki nú- tíma hönnun sjúkra- húsa. Málflutningur heil- brigðisráðherra er ekki boðlegur ásamt Skipu- lagsstofnun og Fram- kvæmdasýslu ríkisins að láta liggja að því að breytt stað- setning Landspítalans þýði 10 til 15 ára seinkun. Sjúkrahús úti um allan heim eru byggð á örfáum árum ásamt hönnun og því þarf ekkert að vera öfugt farið hér á landi. Við yfirlestur á opinberum skýrslum sem hafa verið gefnar út undangengin ár af háskólasamfé- laginu og fræðimönnum að beiðni stjórnsýslu er ljóst hversu óábyrgar fyrirhugaðar framkvæmdir við Hringbraut eru. Að hrinda af stað innan nokkurra mánaða stærstu byggingarframkvæmd landsins stenst enga skoðun og gengur þvert á aðvaranir. Árið 2011 mat Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, kostnað og ábata af fyrirhuguðum nýbyggingum við Landspítala. Henn- ar álit var að kostnaður við nýbygg- ingar væri stórkostlega vanmetinn og vantalinn. Að hennar mati gæti kostnaðurinn orðið allt að tvöfalt hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Á haustmánuðum 2015 kom út skýrsla: „Forsendur og hagkvæmni þess að staðsetja nýjan spítala við Hringbraut“ sem var unnin af ráð- gjafarfyrirtækinu KPMG. Það er skylda stjórnvalda að tryggja að hið opinbera haldi að sér höndum á næstu misserum bæði hvað varðar fjárfestingar og ásókn í vinnuafl til að sporna gegn ofþenslu í efnahagslífinu og því tjóni sem henni getur fylgt. Það er því ábyrgðarhluti að bæta stórframkvæmd á við hátæknisjúkra- hús inn í þá miklu þenslu sem fram- undan er. Vænlegra er að nota næstu ár til að endurmeta þjónustuhlutverk og kjarnastarfsemi Landspítalans með tilliti til þjónustu við sjúklinga, stýrt sjúklingaflæði, bráða- meðferð og langtíma- meðferð. Velta því upp hvort fyrirhuguð bygg- ing og staðsetning hennar sé í takt við þró- un síðustu og komandi ára í starfsemi hátækni- sjúkrahúss. Nauðsynlegt er að framkvæma nýtt heild- stætt staðarval fyrir nýjan spítala þar sem tekið er tillit til nýrra þarfa spítalans, aðgengis og kostnaðar. Að auki þarf að endurskilgreina kjarnastarfsemi Landspítala. Því er ráðlegra að bíða með framkvæmdir þangað til endur- mati á þjónustuhlutverki Landspítala er lokið. Í skýrslunni er lagt til að spítalinn verði reistur á nýjum stað þar sem hægt er að framkvæma hindr- unarlítið og hægt að reisa hærri byggingu en gert er ráð fyrir í núver- andi áætlunum. Það mun leiða til lægri byggingarkostnaðar, minna rasks og hraðari framkvæmdatíma. Forsendur staðsetningar á nýjum Landspítala við Hringbraut eru löngu brostnar þar sem ekki er gert ráð fyrir umferðarmannvirkjum til að mæta auknum umferðarþunga ásamt að vera alltof umsvifamiklar. Óafturkræf mistök munu eiga sér stað verði nýr Landspítali byggður upp við Hringbraut. Leggja þarf stórt landsvæði undir jarðrask og brjóta tugþúsundir rúmmetra af klöpp ásamt sprengingum til margra ára og miklu steinsteypubroti ofan í spítalanum. Byggingartími mun lengjast verulega vegna legu spít- alans og flutningsgetu umferðaæða. Verkferlinu mun smám saman seinka og verða breytingum háð með til- heyrandi hávaða, ráðaleysi og skömm þar sem enginn mun axla ábyrgð. Framkvæmdir við Hringbraut krefjast mikils athafnapláss og af- girts vinnusvæðis þar sem stórtækar vinnuvélar þurfa óheft aðgengi ásamt miklum efnisflutningum sem mun reyna verulega á nærliggjandi byggð. Tímafrekar og kostn- aðarsamar jarðvegsframkvæmdir þurfa að eiga sér stað við flutning og breytingu jarðstrengja, hita- og vatnslagna ásamt frárennslis- og stofnæðum sem þarf að stórauka. Að- liggjandi götur ásamt gatnamótum verða seinfarnar vegna þungaflutn- inga. Að klastra tugþúsunda fermetra nýbyggingum saman við þær eldri mun stórauka byggingarkostnað samanborið við betri staðsetningu ásamt að lengja byggingartíma um mörg ár. Örtröð í kringum sjúkra- húsið mun verða sjúklingum erfið og reyna á þolrif starfsfólks, gesta, verktaka og íbúa nærliggjandi hverfa þegar svæðin sem liggja að Landspít- alanum verða undirlögð vegna fram- kvæmda. Það verða ekki bara sjúklingar sem munu kvarta yfir hávaða og öðr- um uppákomum. Læknastéttin verð- ur þar ekki undanskilin, ekki síst þegar viðkvæm tæki hætta að virka sem skyldi. Sjúkrabílar munu ekki komast óheftir að bráðamóttöku þó að mikið liggi við. Miklir hagsmunir eru í húfi, ekki síst fyrir Reykjavíkurborg sem vill ekki missa fasteigna- og aðstöðugjöld ásamt öðrum tekjum af spítalanum yfir í nágrannasveitarfélag. Þó svo að milljarðar liggi undir í undirbúnings- kostnað má ætla að það sé brotabrot af auknum byggingakostnaði sem hlýst af staðarvali við Hringbraut. Stórlega má draga í efa að hönn- unar- og verkfræðikostnaður stand- ist skoðun og notagildið sem standi að baki þeirri vinnu sé í samræmi við áfallinn kostnað. Þegar kostnaðar- og verkáætlanir standast ekki munu all- ir sverja af sér ábyrgð og stjórn- málamenn verða þar ekki und- anskildir. Nýtt sjúkrahús verður aðeins byggt fljótt með fyrirhyggju og út- sjónarsemi sem er ekki á dýrasta og erfiðasta byggingarlandi sem er hægt að finna á Reykjavíkursvæðinu. Lágmarkskrafa er að vandað sé til alls undirbúnings til að sjúkra- húsbygging rísi með traustum og hagkvæmum hætti. Mestallri uppbyggingu á höf- uðborgarsvæðinu verður beint í vest- urhluta borgarinnar samanber að byggja á nýtt íbúðarhverfi á Hlíð- arenda. Stórfelldir efnis- og steypu- flutningar þurfa að eiga sér stað ár- um saman vegna framkvæmda þar sem milljónir rúmmetra þarf að flytja á framangreindum samgönguæðum austur sem vestur. Þessar fram- kvæmdir munu endalega draga úr eðlilegu umferðarflæði vegna um- fangsmikla þungaflutninga. Með því að flytja stærsta vinnustað landsins sem Landspítalinn er mun létta verulega á umferðarþunga á Miklubraut og Hringbraut með byggingu sjúkrahúss t.d. við Vífils- staði eða í austurhluta borgarinnar. Best færi á að bygging landspítala yrði boðin út á nýjum og betri stað í heild sinni með verulegum kvöðum, ásamt allri skipulags- og hönn- unarvinnu til að flýta fyrir fram- kvæmdinni ásamt að tryggja verká- byrgð með skilmerkilegum hætti. Eftir Vilhelm Jónsson » Óafturkræf mistök munu eiga sér stað verði nýr Landspítali byggður upp við Hring- braut. Vilhelm Jónsson Höfundur er fjárfestir. Skelfilegar afleiðingar af klambri við Hringbraut Á heimasíðu Hæstaréttar kem- ur fram að 30 varadómarar hafi verið kvaddir til setu í málum sem flutt eru nú í febrúar og mars. Margir þeirra eiga að sitja í fleiri málum en einu. Þetta vekur spurningar um ástæður fyrir þessu háttalagi réttarins. Fróður maður sagði mér að meginástæðan væri sú að rétturinn teldi óheppilegt að tveir dómstólar, Hæstiréttur og Landsréttur, væru á sama tíma að dæma á áfrýjunarstigi í sams kon- ar málum. Á því væri hætta þang- að til Hæstiréttur hefði lokið dómi á málin sem biðu dóms í byrjun ársins, en hefðu farið til Lands- réttar ef áfrýjað hefði verið eftir áramótin. Þess vegna hafi þurft að setja aukinn kraft í að ljúka dómum á þessi mál. Á þetta má fallast. Þetta eru að mínum dómi gild rök fyrir þessu átaki við að ljúka málunum, þó að greinilega sé óheppilegt að þurfa að kalla svo marga varadómara inn á skömmum tíma. Hæstiréttur hefði átt að senda frá sér fréttatilkynningu og skýra ástæður fyrir þessum óvenjulegu ráðstöfunum. Þar á bæ ættu menn að muna að þeir eru þjónar réttarins en ekki herrar hans. Jón Steinar Gunnlaugsson Gild rök Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.