Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 TVÆR SÍÐUSTU VÉLARNAR Á TILBOÐSVERÐI 745 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 VERÐ MEÐ SKÓFLU kr. 3.698.000 án vsk. Verð miðast við gengi EUR 125 700 lína fjölnotatækjanna frá Avant er nú framleidd með nýju og endurhönnuðu vökvakerfi. HÉR ER Á FERÐINNI MJÖG AFLMIKIL VÉL Í ÞESSUM STÆRÐARFLOKKI OG MEÐ GÓÐUM BÚNAÐI TIL AFGREIÐSLU STRAX Á EINSTAKLEGA HAGSTÆÐU VERÐI Irma Jóhanna Erlingsdóttir, forstöðumaður og dósent, á 50 ára af-mæli í dag. Hún er dósent í frönskum samtímabókmenntum viðHáskóla Íslands, en þar stýrir hún jafnframt Jafnréttisskóla Há- skóla Sameinuðu þjóðanna og rannsóknasetrunum RIKK og EDDU. „Starf mitt snýst að stærstum hluta um jafnréttismál frá ýmsum sjónarhornum og hliðum. Í rannsóknum mínum og nám- skeiðum í frönskum bók- menntum hef ég lagt áherslu á kvennabókmenntir og bók- menntir sem hafa pólitíska og samtímasögulega skír- skotun. RIKK – Rann- sóknastofnun í jafnrétt- isfræðum skipuleggur rannsóknir, stendur fyrir ráðstefnum og gefur út bæk- ur á sviði kynja- og jafnrétt- isfræða. EDDA sinnir gagn- rýnum samtímarannsóknum með áherslu á jafnréttismál. Jafnréttisskólinn er einn af fjórum skólum Háskóla Sam- einuðu þjóðanna á Íslandi og er eins og hinir þrír skól- arnir þáttur í þróunarsam- vinnu Íslands. Í janúar tókum við á móti ellefta nemendahóp Jafn- réttisskólans og er hann sá fjölmennasti til þessa: 24 nemendum frá 14 löndum en þeir koma allir frá þróunarlöndum og núverandi eða fyrrverandi átakasvæðum.“ Í ár koma þeir m.a. frá Úg- anda, Palestínu, Afganistan, Úganda, Malaví og Keníu en einnig frá Serbíu, Svarfjallalandi og Bosníu í fyrsta sinn. Í dag fer hópurinn í heimsókn á Bessastaði, en þar mun forseti Ís- lands, Guðni Th. Jóhannesson, og kona hans, Eliza Reid, taka á móti þeim. „Við hittum þau í morgunkaffi, forsetinn mun segja okkur frá Bessastöðum, forsetaembættinu og sýn hans á jafnréttismál og síðan munu tveir nemendur Jafnréttisskólans segja frá aðstæðum sínum heima fyrir og lokaverkefnum sínum.“ Áhugamál Irmu eru samofin starfi hennar, franskar samtímabók- menntir, frönsk samtímaheimspeki og femínískur aktívismi. Hún hef- ur einnig brennandi áhuga á náttúruvernd, en hún hefur beitt sér á því sviði og einnig starfað sem leiðsögumaður. Eiginmaður Irmu er Geir Svansson bókmenntafræðingur og börn þeirra eru Gríma 21 árs og Svanhildur 15 ára. Afmælisbarnið Irma er forstöðu- maður og dósent við Háskóla Íslands. Í morgunkaffi á Bessastöðum Irma Erlingsdóttir er fimmtug í dag S esselja Pálsdóttir fæddist í Stykkishólmi 14.2. 1948, ólst þar upp og hefur átt þar heima alla tíð. Hún var í Barna- skóla Stykkishólms og Gagnfræða- skóla Stykkishólms og lauk þar landsprófi árið 1964. Sesselja hóf störf hjá Pósti og síma við símavörslu strax að skóla- göngu lokinni. Hún vann síðar við fiskverkun á vertíðum eins og tíðk- aðist í þá daga. Eftir að börnin stálpuðust vann Sesselja í fiskverkun á vertíðum og sinnti afleysingum í símavörslu á sumrin í mörg ár. Hún var ganga- vörður í Grunnskólanum í Stykkis- hólmi á árunum 1985-87, en hóf þá aftur störf hjá Pósti og síma og starfaði þar til 1992. Auk þess var hún umboðsmaður Sjóvár í Stykkis- hólmi á árunum 1981-2001 og aftur frá 2007, eða um þrjá áratugi. Árið 1992 stofnaði Sesselja versl- unina Heimahornið í Stykkishólmi, í samstarfi við frænku sína, Þór- hildi Pálsdóttur. Þær stafræktu verslunina samfellt í rúmlega 24 ár. Þá seldu þær reksturinn haustið 2016. Sesselja hefur starfað í Kven- félaginu Hringnum í Stykkishólmi í áratugi og verið þar formaður nokkrum sinnum: „Kvenfélagið hef- ur verið máttarstólpi í samfélaginu og það hefur verið mjög gefandi að vinna að þeim málefnum sem félag- ið hefur tekið upp á sína arma í gegnum tíðina.“ Sesselja var formaður HSH, Héraðssambands Snæfells og Sesselja Pálsdóttir, fyrrv. kaupkona í Stykkishólmi – 70 ára Úti að borða Sesselja og Þorbergur slaka á með dætrum sínum, sonum og tengdadætrum um síðustu helgi. Vinnur fyrir Hólminn Formaður Kvenfélagsins Sesselja í ræðustól, reifar málefni bæjarfélagsins. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.