Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 27
Hnappadalssýslu, í eitt ár. Hún sat
í sóknarnefnd Stykkishólmskirkju í
mörg ár, var stofnfélagi í Efling
Stykkishólms sem er félag atvinnu-
rekanda í Stykkishólmi og hefur
setið þar í stjórn.
Árið 2005 voru 160 ár liðin frá
því að Árni Thorlacíus hóf fyrstur
manna að gera veðurathuganir í
Stykkishólmi, en það munu vera
fyrstu veðurathuganir sem hafa
verið stundað samfellt síðan hér á
landi. Í tilefni þess ákvað Sesselja
að safna fyrir vefmyndavél þar sem
hægt er að fylgjast með veðri við
höfnina. Vélin var sett upp á amts-
bókasafninu, nú Vatnasafninu í
Stykkishólmi. Söfnunin gekk von-
um framar og varð til þess að hægt
var að kaupa þrjú hljóðkerfi, tvö
fyrir grunnskólann og eitt fyrir
dvalarheimilið, ásamt nokkrum úti-
bekkjum sem komið var fyrir á
góðum stöðum í bænum. Í kjölfar
þessa framtaks hlaut Sesselja nafn-
bótina, Hólmari ársins 2006. Hún
var einnig í hópi fimm aðila sem
unnu að söfnum fyrir nýju pípuor-
geli í Stykkishólmskirkju. Söfnunin
hófst rétt fyrir hrun, 2007, en af
þeim sökum tvöfaldaðist verð org-
elsins. Þrátt fyrir það tókst þeim að
ljúka fjármögnun þess og var það
vígt 2012.
Eins og glöggt má sjá á þessu
framtaki Sesselju snúast helstu
áhugamál hennar um almenna vel-
ferð bæjarfélagsins og íbúa þess.
Fjölskylda
Eiginmaður Sesselju eru Þor-
bergur Bæringsson, f. 26.11. 1943,
húsasmíðameistari. Foreldrar hans
voru Bæring Elísson, f. 9.5. 1899, d.
30.5. 1991, bóndi, fyrst í Bjarnar-
höfn í Helgafellssveit og síðan að
Borg í Stykkishólmi, og k.h., Ár-
þóra Friðriksdóttir, f. 23.12. 1904,
d. 17.3. 1990, húsfreyja.
Börn Sesselju og Þorbergs eru 1)
Kristín Jóhanna Þorbergsdóttir, f.
29.8. 1967, hjúkrunarfræðingur og
deildarstjóri á líknardeild Landspít-
alans, búsett í Reykjavík; 2) Páll
Vignir Þorbergsson, f. 12.2. 1969,
húsasmíðameistari hjá Þ.B. Borg
ehf., búsettur í Stykkishólmi,
kvæntur Steinunni Ingibjörgu
Magnúsdóttur kennara og eru börn
þeirra Sesselja Gróa, f. 1992, Andr-
ea Kristín, f. 1996, og Vignir
Steinn, f. 2001; 3) Sæþór Heiðar
Þorbergsson, f. 11.1. 1971, mat-
reiðslumeistari og eigandi Narfeyr-
arstofu í Stykkishólmi, búsettur þar
og kvæntur Steinunni Helgadóttur
framkvæmdarstjóra og eru börn
þeirra Þorbergur Helgi, f. 1993, og
Aníta Rún, 1996, og 4) Berglind
Lilja Þorbergsdóttir, f. 24.9. 1980,
viðskiptafræðingur og sviðsstjóri
fjármála- og innheimtu hjá Sýslu-
manni Vesturlands og er sonur
hennar Bæring, f. 2017.
Systkini Sesselju: Áslaug Páls-
dóttir, f. 12.2. 1946, d. 20.3. 2017,
skólaliði í Hafnarfirði; Ásgerður
Pálsdóttir f. 7.2. 1950, starfsmaður
hjá Rarik, búsett í Stykkishólmi;
Böðvar Pálsson, f. 13.7. 1955, d.
10.2. 1985, matreiðslumeistari og
bryti á Hvanneyri, og Þorvaldur
Ársæll Pálsson f. 12.7.1963, d. 8.8.
2008, trésmiður í Stykkishólmi og
síðast á Flateyri.
Foreldrar Sesselju voru Páll
Oddsson, f .16.9. 1922, d. 9.4. 2002,
verkamaður, og k.h., Sæmunda
Þorvaldsdóttir, f. 16.7. 1926, d.
25.11. 1986, húsfreyja og verka-
kona.
Í tilefni afmælisins tekur Sesselja
á móti gestum á Narfeyrarstofu
laugardaginn 17.2. milli kl. 14 og
17. Hún afþakkar gjafir en biður þá
sem vilja gleðja hana að leggja lið
söfnun fyrir nýjum altarisglugga í
Stykkishólmskirkju. Baukur verður
á staðnum til að taka við fram-
lögum.
Sesselja Pálsdóttir
Hildur Helgadóttir
húsfr. á Eiði
Kristján Ólafsson
b. á Eiði í Eyrarsveit
Sesselja Kristjánsdóttir
verkak. í Stykkishólmi
Þorvaldur Þorleifsson
skósmiður í Stykkishólmi
Sæmunda Þorvaldsdóttir
húsfr. og verkak. í Stykkishólmi
Jarþrúður Guðný Pálsdóttir
húsfr. á Eiði
Þorleifur Jónatansson
b. á Eiði í Eyrarsveit
Guðný Þorvaldsdóttir húsfr. í Rvík
Hulda Þorvaldsdóttir húsfr.
í Stykkishólmi og Rvík
Jens Hjaltalín Þorvaldsson sjóm. í
Stykkishólmi og netagerðarm. í Rvík
Vilhjálmur Þorvaldsson sjóm. í
Stykkishólmi, síðar í Danmörku
Ársæll Þorvaldsson dó ungur
Áslaug Ingibjörg
Þorvaldsdóttir verkak.
í Stykkishólmi
Þórhildur Pálsdóttir
söngkona og kaupkona
Vigdís Stefánsdóttir
vinnuk. í Miðbæ í Flatey og húsk. í Hergilsey
Jóhann Jóhannsson
verkam. í Stykkishólmi
Kristín Jóhannsdóttir
húsfr. í Stykkishólmi
Oddur Böðvar Sigurðsson
verkam. í Stykkishólmi
Sigurbjörg Andésdóttir
húsfr. í Stykkishólmi
Sigurður Ólafsson
daglaunam. í Stykkishólmi
Úr frændgarði Sesselju Pálsdóttur
Páll Oddsson
verkam. í Stykkishólmi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
85 ára
Elín Guðjónsdóttir
Steinþór Sigurðsson
75 ára
Haukur Þorsteinsson
Sigurður Karlsson
70 ára
Birna Guðbjörg Hjaltadóttir
Fríða Britt Bergsdóttir
Jóna S. Sigurðardóttir
Magnús Ingólfsson
Ófeigur Björnsson
Ragnheiður Kr.
Þorláksdóttir
Sesselja Pálsdóttir
60 ára
Anna H. Pétursdóttir
Anna Sesselja Þórisdóttir
Arnar Þórðarson
Árni Þorgilsson
Erla Eyjólfsdóttir
Guðmundur Þórðarson
Guðrún Sigurðardóttir
Margrét Björg
Sigurðardóttir
Ragnar Benjamín
Ingvarsson
Sigríður Þyrí Skúladóttir
Snorri Rafn Snorrason
Sólveig Óskarsdóttir
Stefán Mar Brimdal
Guðmundsson
Steinunn Kristinsdóttir
Steinunn Kristín
Hauksdóttir
Sveindís Valdimarsdóttir
50 ára
Adam Dariusz Topolski
Agnar Breiðfjörð Egilsson
Alice Petersen
Birgir Ægir Kristjánsson
Davíð Art Sigurðsson
Elínborg Valsdóttir
Irma Jóhanna Erlingsdóttir
Olegs Sceglovs
Rósbjörg Jónsdóttir
Sigþór Hjartarson
Stanislaw Jan Petruk
Þóra B. Valdimarsdóttir
40 ára
Arnar Guðjónsson
Árni Björn Vigfússon
David Lárus Dunham
Eva Björk Benediktsdóttir
Guðmundur Magnússon
Gunnþór Steinar Jónsson
Haddý Anna
Hafsteinsdóttir
Nina Barbara Przybylska
Radim Kohoutek
Ragnar Veigar
Guðmundsson
Rakel Viðarsdóttir
Sigþrúður Guðnadóttir
Sólveig Klara Jóhannsdóttir
Zbigniew Zawadzki
30 ára
Adrien Valentin Léonard
Beata Kukawska
Brynjar Örn Reynisson
Brynja Sif Davíðsdóttir
Ewa Magdalena Ludko
Freyja Baldursdóttir
Guðbjörn Sævar
Ragnarsson
Jevgenija Kukle
Joanna Maria Olszanicka
Kristín Anna Guðnadóttir
Marek Krystian Kuhn
Priyanka Thapa
Rasa Petkuviene
Sólveig Ragna Jónsdóttir
Sylwia Uzdowska
Þórarinn Freyr Grettisson
Til hamingju með daginn
30 ára Þórarinn ólst upp
í Reykjavík, býr þar, lauk
MSc-prófi í klínískri sál-
fræði frá HR og starfar
hjá Barnaverndarstofu.
Maki: Lára Guðmunds-
dóttir, f. 1987, hagfræð-
ingur og sérfræðingur hjá
Medis.
Dóttir: Orka Huld, f.
2017.
Foreldrar: Anna Guðrún
Jónsdóttir, f. 1966, og
Grettir Ingvi Gunnarsson,
f. 1966.
Þórarinn Freyr
Grettisson
30 ára Brynjar Örn ólst
upp á Egilsstöðum, býr í
Reykjavík og starfar hjá
Hreinsitækni í Reykjavík.
Systkini: Sævar, f. 1983;
Oddur, f. 1986; Anna Katr-
ín, f. 1995; Benedikt Krist-
inn, f. 2008, og Tómas
Freyr, f. 1992.
Foreldrar: Reynir Guð-
brandsson, f. 1962, verk-
taki í Búðardal, og Kristín
Hrönn Sævarsdóttir, f.
1963, ræstingakona í Sel-
læk.
Brynjar Örn
Reynisson
40 ára Ragnar ólst upp á
Akureyri, býr í Reykjavík,
er að ljúka BA-prófi í jap-
önsku og er deildarstjóri
varahluta hjá BL.
Maki: Lloyd Steven Burt-
hill, f. 1969, forritari á eig-
in á vegum.
Foreldrar: Guðmundur
Lárus Helgason, f. 1953,
starfsmaður hjá VÍS á Ak-
ureyri, og Brynhildur Júl-
íusdóttir, f. 1957, starfs-
maður hjá Modus á
Akureyri.
Ragnar Veigar
Guðmundsson
Arnar Ástráðsson læknir varði
þann 12. janúar 2018 dokt-
orsritgerð sína við Læknadeild
Kaupmannahafnarháskóla. Ritgerð-
in nefnist Visual outcome, pituit-
ary function, cerebrovascular inci-
dents and tumor control after
fractionated stereotactic radiation
therapy of benign anterior skull
base tumors.
Leiðbeinandi var Marianne Ju-
hler, prófessor í heila- og tauga-
skurðlækningum í Kaupmannahöfn
og andmælendur voru Lena Specht
(formaður dómnefndar), prófessor
við Kaupmannahafnarháskóla,
Frantz Rom Poulsen, prófessor við
Háskólann í Óðinsvéum og Niklas
Marklund, prófessor við Háskólann
í Lundi.
Ritgerðin fjallar um fylgikvilla og
árangur af háná-
kvæmnisgeisla-
meðferð á góð-
kynja æxlum í
höfuðkúpubotni.
Rannsókn Arn-
ars, sem var
framsýn, leiddi í
ljós góðan ár-
angur geisla-
meðferðarinnar, sem stöðvaði vöxt
mikils meirihluta æxlanna til lang-
frama, og aukaverkanir vegna
geislunarinnar, svosem sjónskerð-
ing, efnaskiptatruflanir og heila-
blóðþurrð, voru fátíðar og oftast
vægar. En meðferðinni var oftast
beitt við æxlum sem ekki voru tal-
in skurðtæk vegna erfiðrar legu í
höfuðkúpubotni eða vegna endur-
vaxtar æxla eftir aðgerð.
Arnar Ástráðsson
Arnar fæddist í Reykjavík 1967. Hann lauk embættisprófi í læknisfræði frá
Læknadeild Háskóla Íslands 1995. Hann lagði stund á sérfræðinám í heila-
og taugaskurðlækningum, aðallega við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn og
Southampton General Hospital í Bretlandi, og öðlaðist sérfræðiréttindi
2005. Hann lauk síðar undirsérnámi í djúpkjarnaheilaaðgerðum við John
Radcliffe Hospital í Oxford, Bretlandi 2010. Arnar starfaði við grunnrann-
sóknir, á sviði heilafrumuígræðslu, við Læknadeild Harvardháskóla 2006-
2008, og í hlutastarfi þar síðan. Arnar stundaði klíniskar rannsóknir, á sviði
hánákvæmnisgeislameðferðar á heilaæxlum, á Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn 2009-2016 og byggist doktorsritgerð hans á þeim rannsóknum.
Arnar er núna sérfræðingur við heila- og taugaskurðdeild Háskólasjúkra-
hússins í Árósum. Faðir Arnars er Ástráður B. Hreiðarsson, læknir. Móðir
Arnars var Ásta B. Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og alþingismaður.
Dætur Arnars eru Ásta Marie og Agnes.
Doktor