Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 29

Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að setja þig ekki á háan hest gagnvart samstarfsmönnum þínum. Hver er sinnar gæfu smiður, og það á við þig eins og alla aðra. 20. apríl - 20. maí  Naut Eitthvað vex þér í augum og þú sérð enga leið út. Gerðu þér far um að tala skýrt og skorinort svo hlustendur þínir viti upp á hár hvert þú ert að fara. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Að vera innan um fólk sem trúir á þig og hvetur hefur áhrif á viðhorf þitt og þar með hæfileika og framleiðni. Stígðu skrefið til fulls, þú sérð ekki eftir því seinna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er svo sem í lagi að vera í fýlu. Vertu ekki hræddur þótt einhverjir erfiðleikar kunni að verða á vegi þínum, þeir munu líða hjá fljótlega. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ef maður mætir erfiðri áskorun er ekki óeðlilegt að stíga skref aftur á bak. Bíddu til morguns með að koma hugmyndum þínum á framfæri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þig langar til að finna einhvern sem þú getur deilt hugmyndum þínum með. Gættu þess samt að leyfa ekki öðrum að misnota eiginleika þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er góður dagur til að gera umbæt- ur í vinnunni. Ef hjarta þitt er hreint og þú hefur velferð allra að leiðarljósi verða breyt- ingarnar nánast sársaukalausar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er voða gaman þegar maður er að vinna kapphlaupið. Forðastu umfram allt að berja höfðinu við steininn þegar um viðurkenndar staðreyndir er að ræða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að sýna meiri hug- kvæmni til þess að leysa það vandamál, sem nú brennur á þér. Gættu þess þó að missa ekki yfirsýnina, því þá missir þú allt úr bönd- unum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er oft skammt milli hláturs og gráts og það þarft þú að hafa í huga í um- gengninni við aðra. Settu í þig kraft og láttu svo verkin tala. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Leitaðu eftir hverju tækifæri til að gjalda góðmennsku sem þér hefur verið sýnd. Þetta getur orðið mjög skemmtilegur dagur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú skalt sýna öðrum sérstaklega mikla þolinmæði í dag. Láttu ekki smáatriðin villa þér sýn varðandi heildarlausn mála. Sigurlín Hermannsdóttir segirfrá því á Leir að fyrir Iðunn- arfund hafi hún átt að yrkja um hross, mús og ref. Hún velti fyrir sér hvað gæti komið út úr slíkri blöndu og niðurstaðan varð hugljúf sonnetta: Ég vissi hjón á bæ sem kallast Kross er kúrði innst í dal við lítinn foss. Á bænum þeim fékk konan aldrei koss því karluglan var skelfing mikið hross. Á Krossi taldist kotið varla hús og kosturinn var algjör hungurlús. Þar kerla hokin gætti barna og bús og býsnin öll hún líktist grárri mús. Um karlinn þetta síðast heyrt ég hef að hrökk af standi, fékk víst illvígt kvef en kerlingar beið þekkt og strembið stef hún strax féll fyrir slægum bragðaref. Kynblöndun slík mun kallast bara eitt; á Krossi er allt liðið erfðabreytt. Síðan bætti Sigurlín við neð- anmáls: „P.s. Ætli það sé þess vegna sem svona kynblöndun heitir ’cross breeding’ upp á útlensku?“ Hér kemur bolludagslimra eftir Magnús Geir Guðmundsson: Nú meðal annarra orða: Engan fæ ég að borða. bollubita, belginn að fita Held ég verði hungurmorða?! Guðmundur Arnfinnsson orti á sunnudag á Boðnarmiði: Spara hlýt mér spor af bæ, spáin lítið gleður, þorri hvítum þeytir snæ, þetta er skítaveður. Og varð byrjunin á skemmti- legum spuna og allt hringhent! Ing- ólfur Ómar Ármannsson reið á vað- ið: Hríðarveður ama ól úrillt geðið vakti. Jók á streð um byggð og ból burtu gleði hrakti. Guðmundur Arnfinnsson: brestur víða skjólið enga blíðu er að fá aftur skríð í bólið, Bitur hríð er brostin á. Og Ingólfur Ómar Ármannsson: Veldur kvíða vetrartíð veðrin stríðu meður. Þróttinn níða úr þreyttum lýð þrálát hríðarveður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Íbúarnir á Krossi, bolludagur og veðrið „HUGSAÐU UM TRYGGINGAFYRIRTÆKIÐ ÞITT. EF ÞÚ STEKKUR, ÞÁ ÞURFA ÞEIR EKKI AÐ BORGA ÞÉR KRÓNU.“ „FYRST KAUPIR ÞÚ HANDA MÉR NÝJA KÁPU OG SVO BÝÐURÐU MÉR Á LJÓNASAFARÍ. HVAÐ ER EIGINLEGA HLAUPIÐ Í ÞIG?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... töfrastund. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVAÐ ERTU AÐ GERA GRETTIR? AÐ HORFA Á MYNDIR AF MAT Á SÍMANUM MÍNUM AH, RÓMANTÍK ÞAÐ VAR RÉTT, FRÖKEN! LÚTUR SAGÐI AÐ HANN MYNDI KAUPA NÝJAN FATASKÁP FYRIR MIG DAGINN EFTIR BRÚÐKAUPIÐ! HANN ER SVO ÖRLÁTUR! JÁ, HANN SAGÐI AÐ HANN VILDI AÐ ÉG HEFÐI ALLT SEM ÉG ÞYRFTI FYRIR ATVINNUVIÐTÖLIN! Víkverji hefur alltaf staðið í þeirritrú að skemmtunin við að fylgj- ast með íþróttum sé fólgin í spenn- unni sem þeim fylgir. Aðdráttarafl fótboltans á að felast í því hvað hann er óútreiknanlegur og lítilmagninn á alltaf möguleika. Ekki eru allir þó sammála um þetta. „Fótbolti er ein- faldur leikur,“ sagði sóknarmað- urinn knái, Gary Lineker, á sínum tíma. „22 menn elta bolta í 90 mín- útur og að lokum vinna Þjóðverjar“. Lineker mælti þessi orð eftir að hafa tapað með enska landsliðinu í vítaspyrnukeppni gegn Þjóðverjum í undanúrslitum á HM 1990. x x x Þjóðverjar vildu örugglega óskaþess að Lineker hefði haft lög að mæla, en þótt þeir hafi verið sig- ursælir er regla hans ekki óbrigðul. x x x Víkverja finnst hins vegar spennandottin úr keppni félagsliða víða í Evrópu. Þar mætti segja að fótbolti væri leikur þar sem 22 menn sparka bolta í 90 mínútur og Manchester City/Bayern München/Paris Saint- Germain/Barcelona vinnur. Man- chester City er um þessar mundir með 16 stiga forskot í efsta sæti ensku deildarinnar, Bæjarar leiða þýsku deildina með 18 stiga forskot, Parísarliðið er með 12 stiga forskot, en Börsungar reyndar aðeins með sjö stiga forskot. x x x Í gær kom út listi CIES yfir dýr-ustu liðin. Þar segir að Manchest- er City sé með dýrasta lið knatt- spyrnusögunnar. Liðið er metið á 110 milljarða króna. Næstdýrasta liðið er PSG, sem er metið á 101 milljarð króna. Sex ensk lið eru í tíu efstu sætum listans (Everton með Gylfa Þór Sigurðsson þar á meðal), tvö spænsk (Barcelona og Real Ma- drid) og eitt ítalskt (Juventus frá Torino). Athygli vekur að Bayern kemst ekki inn á topp tíu, heldur verður að láta sér 11. sætið nægja. Napolí er á toppinum í ítölsku deild- inni. Liðið er rúmlega helmingi ódýrara en lið Juventus, sem er í öðru sæti. 98 lið eru á listanum. Það ódýrasta, Troyes frá Frakklandi, kostar 251 milljón króna. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor- ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. (Sálmarnir 68.20)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.