Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 T Allt f LA uggann S yrir gl Allt fyrir gluggann Allt fyrir gluggann… Allt fyrir gluggann… Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Allt fyrir gluggann… Álnabær Ein af þeim spurningumsem heimspekingar fyr-irbærafræðinnar hafavelt vöngum yfir er: hvernig skynjum við hluti sem birt- ast okkur í heiminum? Maðurinn er líkamleg vera sem skynjar og upp- lifir í gegnum líkamann og fyrir- bærafræðin beinir sjónum sínum að vitund mannsins um tilveru sína. Franski heimspekingurinn Maurice Merlau-Ponty velti fyrir sér hinu lík- amlega í skynjun mannsins, hvernig skynjunin verður áþreifanleg í lík- amanum og líkamnast. Það er ein- mitt maðurinn sem líkamleg vera, samskipti hans við náttúru og um- hverfi og ekki síst við aðrar mann- eskjur eru rauði þráðurinn í sýning- unni Líkamleiki, sem er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands, og á henni eru verk eftir 18 listamenn sem vinna með ljósmyndamiðilinn í verk- um sínum á einn eða annan hátt. Skilgreining á ljósmynd sem list- miðli (sem og öðrum miðlum) er teygjanlegt hugtak í samtímalistinni og hér má sjá skúlptúra og vídeó og á opnun sýningarinnar flutti Örn Alex- ander gjörninginn „Tuggur“ þar sem listamaðurinn notaði eigin líkama til þess að myndgera portrettverk af sjálfboðaliðum úr sal. Listamaðurinn stillti fyrirsætunni upp en þar fyrir utan eiga þau ekki í samskiptum sín á milli meðan á gjörningnum stend- ur, Örn Alexander gekk síðan í kringum manneskjuna án þess að vera í augnsambandi við hana og tuggði kex á meðan. Afraksturinn er litlir skúlptúrar úr tuggðu kexi sem vitna um líkamlegan gjörning lista- mannsins sem fangar nærveru manneskjunnar. Gjörningur hans dansar hárfínt á mörkum íróníunnar þar sem listaverkið verður lifandi hlutur í gegnum líkama listamanns- ins. Í vídeóverkum Hreins Friðfinns- sonar „Mynd af myndhöggvara sem höggmynd“ (2011-2014) eru tvö verk úr fimm verka seríu sem bera nöfn stærðfræðiformúlna sem lýsa ákveð- inni hreyfingu sem er endurtekin. Í öðru þeirra stendur listamaðurinn Kristinn E. Hrafnsson í fjöruborði og húllar og í hinu skautar hann ákveðið í hringi í kringum Tjörnina. Endurteknar hringlaga hreyfing- arnar sem Kristinn mótar með eigin líkama vísa til hreyfiorku og snún- ings jarðarinnar. Í verkinu hefur Hreinn gert myndhöggvarann að táknmynd fyrir höggmynd sem get- ur bæði verið kyrr og staðbundin en einnig hreyfanleg og í tengslum við krafta jarðarinnar. Verk Elínar Hansdóttur „Trace“ (2010) eru ljósmyndaröð úr vídeó- verki þar sem hún vinnur með brot úr kvikmynd Lumiére-bræðra af svokölluðum Snákadansi eða „Ser- pentine Dance“ sem hin framúr- stefnulega Loie Fuller danshöfundur sýndi í New York undir lok nítjándu aldar. Fuller var íklædd efnismiklum en örþunnum silkiklæðum og flæðið í dansinum framkallaði bæði hreyf- ingu efnis og umbreytingu ljóss í liti. Í myndröðinni fangar Elín hreyfi- orkuna á myndir sem á þversagna- kenndan hátt eru bæði kvikar en um leið kyrrstæðar í senn. Verk Har- aldar Jónssonar „Litrof“ (2017) fjalla einnig um umbreytingu ljóss í liti, ljósmyndaverkin eru hluti innsetn- ingar sem Haraldur sýndi í Stykk- ishólmskirkju síðastliðið sumar. Út- skorinn hvítur pappír lenti fyrir tilviljun undir ljósi frá litaglærum á vinnustofu listamannsins. Þannig stýrir ljóðræn hending því hvernig pappírinn er baðaður litfögrum geislum og býr til órætt rými sem listamaðurinn fangar á mynd. Tengsl manns og náttúru eru end- urtekið stef í nokkrum verkum á sýningunni. Í verki Roni Horn „Becoming a Landscape“ (2001) má sjá ljósmyndir af hverasvæði þar sem á sér stað ákveðin samsömun milli forma náttúrunnar og líkama mannsins. Bára Kristinsdóttir fjallar hins vegar um ummerki mannveru sem er horfin í verkinu „Umhverfi bróður míns“ (2006). Fjarvera mann- eskjunnar endurspeglast í borgar- umhverfinu, auðir stólar og yfirgefin sundlaug verða að angurværri minn- ingu um það sem var. Í verkinu „Slef“ (2015) fjallar Klængur Gunnarsson um það hvern- ig manneskjan skynjar umhverfið sitt, vangasvipur listamannsins birt- ist hægra megin í myndrammanum þar sem hann horfir út um glugga á snævi þakið umhverfið. Upplifun fegurðar náttúrunnar framkallar sleftauma sem renna niður úr munn- vikum hans; skynjunin líkamnast í viðbragðinu. Á sýningunni Líkamleiki tekst að ná fram flæðandi samspili milli verka, hljóð úr vídeóverkum eru lág- stemmd og yfirgnæfa til að mynda ekki skynjun áhorfandans í rýminu. Hér er teflt er saman verkum lista- manna af ólíkum kynslóðum, sem sumir eru enn í námi en aðrir hafa starfað á myndlistarsviðinu í áratugi og eru meðal virtustu listamanna þjóðarinnar. Verkin tengjast öll skynjuninni á einn eða annan hátt, því hvernig hugsun og tilfinning lík- amnast í skynjuninni og tengsl lík- amans og skynjunarinnar eru sett í samhengi við hluti og daglegar at- hafnir mannsins í heiminum. Húmor er undirliggjandi í mörgum verk- anna en þar má líka finna streng sorgar og hugleiðingar um eilífa hringrás náttúrunnar og tilveru mannsins. Verkin eru viðbragð við því hvernig hlutirnir í heiminum birt- ast okkur og hvernig við bregðumst við á líkamlegan hátt. Skynjun mannsins Umbreyting Verk Haraldar Jónssonar, „Litrof“, fjallar um umbreytingu ljóss í liti og sést hér hluti þess. Útskorinn hvítur pappír lenti fyrir tilviljun undir ljósi frá litaglærum á vinnustofu listamannsins. Þannig stýrir ljóðræn hend- ing því hvernig pappírinn er baðaður litfögrum geislum og býr til órætt rými sem listamaðurinn fangar á mynd. Gerðarsafn Líkamleiki bbbmn Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eir- ún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnar- dóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðs- son, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvars- dóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guð- mundsson, Steina, Una Margrét Árna- dóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir. Gerðarsafn. Til 15. apríl 2018. Opið þriðjudaga til sunnudag frá kl. 11-17. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Fjarvera Bára Kristinsdóttir fjallar um ummerki mannveru sem er horfin í verkinu „Umhverfi bróður míns“ frá árinu 2006. Fjarvera manneskjunnar endurspeglast í borgarumhverfinu, auðir stólar og yfirgefin sundlaug verða að angurværri minningu um það sem var, segir m.a. í gagnrýni. Hér sjást tvær ljósmyndir úr verki Báru. Morgunblaðið/Hari Enska leikkonan Lesley Manville segist sjá hægfara breytingu til hins betra hvað varðar hlutverk fyrir eldri konur í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, segir þeim hafa fjölgað. Framleiðendur séu farnir að átta sig á því að áhorfendur vilji sjá fólk á sínum aldri í röðum per- sóna og geta tengt við líf þeirra. Manville segir að nú sé loksins í lagi að vera sextugur á sjónvarps- skjánum. „Þú getur átt elskhuga þó að þú sért sextug. Það þarf ekki að húka úti í horni í hnepptri peysu að prjóna,“ segir hún í viðtali við tíma- ritið Radio Times. „Ástæðan fyrir þessu er að framleiðendur kvik- mynda og sjónvarpsefnis átta sig á því að til er gríðarstór hópur kvenna sem vilja fara í bíó eða kveikja á sjónvarpinu og sjá eitt- hvað sem tengist þeim og tekur þeim fagnandi, eitthvað sem snýst ekki bara um gullfallegar konur á þrítugs- eða fertugsaldri,“ segir Manville en hún er tilnefnd til Bafta-verðlaunanna og Óskars- verðlaunanna sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í kvik- myndinni Phantom Thread. Óttaðist að vera hent í ruslið Leikkonan Anna Friel hafði áður talað á svipuðum nótum í viðtali við Radio Times og bent á að loksins núna væri ásættanlegur fjöldi hlut- verka fyrir konur yfir fertugu í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Friel sagðist hafa velt því fyrir sér þegar hún varð fertug hvort henni yrði „hent í ruslið“ sem leikkonu en hún er nú orðin 41 árs. „Við höfum komist að því að fólk vill horfa á fólk sem það á eitthvað sameigin- legt með, ekki bara hið ómögulega. Við höfum fengið nóg af því í ofur- hetjumyndum,“ sagði Friel. Segir hlutverkum fyrir eldri konur hafa fjölgað Tilnefnd Lesley Manville er tilnefnd bæði til Bafta- og Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Phantom Thread.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.