Morgunblaðið - 14.02.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018
Haldið var upp á hálfrar aldar afmæli Portrett-listasafns
Bandaríkjanna, National Portrait Gallery, á mánudag
með afhjúpun stórra málverka af forsetahjónunum fyrr-
verandi, Barack og Michelle Obama. Frá stofnun safns-
ins hafa portrett af forsetum landsins verið sýnd þar og á
síðustu áratugum nýtt verk verið pantað af hverjum for-
seta. Frá 2006 hefur listamanni jafnframt verið falið að
mála portrett af maka forsetans.
Obama-hjónin tóku þátt í að velja listamennina sem
þau síðan sátu fyrir hjá og afhjúpun verkanna vakti mun
meiri áhuga fjölmiðla en áður hefur gerst. Ekki eru þetta
bara fyrstu hörundsdökku forsetahjónin í Bandaríkj-
unum heldur einnig í fyrsta skipti sem listamennirnir
sem er falið verkið eru ekki hvítir.
Kehinde Wiley málaði rúmlega tveggja metra hátt
málverkið af Barack Obama. Wiley er fertugur og nýtur
mikilla vinsælda í myndlistarheiminum vestanhafs, ekki
síst fyrir portrettmyndir af hörundsdökkum löndum sín-
um sem hann birtir í konunglegum stellingum og vísar
markvisst í opinber portrett fyrri alda. Hann kaus að
mála forsetann hugsi á svip þar sem hann hallar sér fram
í einföldum stól. Hann er umkringdur iðjagrænu lauf-
skrúði og blómum sem vísa til bakgrunns hans; bláar afr-
ískar liljur vísa til föðurfjölskyldu hans í Kenía, jasmín-
blóm til Havaí, þar sem Obama fæddist, og tryggðarblóm
er blóm Chicago-borgar hvar stjórnmálaferill hans hófst
og hann kynntist eiginkonunni á sínum tíma.
Michelle Obama valdi að sitja fyrir hjá Amy Sherald,
sem er 44 ára, og hafa verk hennar vakið sívaxandi eft-
irtekt. Alvarleg veikindi hafa haft áhrif á feril hennar –
hún er hjartaþegi – en eins og Wiley málar Sherald að-
allega portrettmyndir af hörundsdökku fólki og birtir
það í hetjulegu ljósi. Hún sýnir Michelle Obama íklædda
björtum og flæðandi kjól mót ljósbláum bakgrunni.
Michelle Obama sagði mikilvægt, og ekki síst fyrir
hörundsdökkar stúlkur, að nú væru myndir af dökkum
forsetahjónum komnar í safnið. „Þær munu koma hingað
og sjá málverk af einhverri sem er eins og þær hanga í
þessari merku stofnun. Og ég veit hvaða áhrif það getur
haft á líf þeirra því ég var ein af þeim.“
AFP
Portrettmálverk Bandarísku forsetahjónin fyrrverandi, Barack Obama og Michelle Obama við málverkin nýju
ásamt listamönnunum, Kehinde Wiley og Amy Sherald, eftir að verkin voru afhjúpuð í National Portrait Gallery.
Nýr tónn í forsetamálverkum
Nela Eggenberger, ritstjóri
alþjóðlega myndlistartímaritsins
EIKON sem leggur áherslu á ljós-
myndun og nýmiðlun og hefur ver-
ið gefið út fjórum sinnum á ári allt
frá árinu 1991, hélt upp á útgáfu
hundraðasta tölublaðsins með því
að verðlauna sérstaklega þrjár evr-
ópskar listakonur yfir 45 ára aldri
fyrir listsköpun þeirra og var Katr-
ín Elvarsdóttir þeirra á meðal.
Nær 300 þátttakendur frá 23
löndum sóttu um verðlaunin og auk
Katrínar hlutu þau norðurírska
myndlistarkonan Susan MacWilli-
am og þýska myndlistarkonan
Gabriele Rotheman.
Verðlaunaafhendingin fór fram í
Kunst Haus Wien í Vínarborg í
nóvember í fyrra og var sérútgáfa
af tímaritinu gefin út af þessu til-
efni með þremur ólíkum forsíðum.
Hverja þeirra prýddi verk eftir
einn vinningshafanna þriggja og
birtar voru greinar um listferla
þeirra. Eftir að tilkynnt hafði verið
um verðlaunin sýndi listasafnið
Kunstlerhaus í Vín áhuga á að að
setja upp sýningu á verkum vinn-
ingshafa undir heitinu EIKON
Award, þ.e. EIKON-verðlaunin, en
sýningarstjóri hennar er Nela
Eggenberger fyrrnefnd, ritstjóri
EIKON. Katrín segir að við val á
verkum hafi Eggenberger lagt
áherslu á að skapa samtal milli
verka þessara þriggja ólíku lista-
manna.
Sýningin verður opnuð í Vín á
morgun, 15. febrúar, og segir Katr-
ín að hún muni sýna fjölda verka
úr myndaröðunum „Vanished
Summer“ og „Equivocal“ auk nýs
verks sem nefnist „Solar Eclipse
Shadow“. Sýningin stendur yfir í
tvo mánuði og 8. mars, á Alþjóð-
legum baráttudegi kvenna, verður
haldið málþing í Kunstlerhaus um
sýnileika og þátttöku miðaldra
kvenna í listheiminum. Katrín seg-
ist aldrei hafa sýnt áður í Austur-
ríki og fagnar því bæði að fá að
sýna þar og verðlaununum. „Þetta
er flott safn,“ segir hún um Kunst-
lerhaus í Vínarborg.
helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Verðlaunahafi Katrín Elvarsdóttir á sýningunni Þessi eyja jörðin í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í janúar sl. en hún var sýningarstjóri hennar.
Hlaut EIKON-verð-
launin og sýnir í Vín
Austurríski kvikmyndaleikstjórinn
Michael Haneke segir Metoo-
hreyfinguna hafa leitt til kross-
ferðar gegn erótík sem minni á
nornaveiðar á myrkum miðöldum.
Eins og kunnugt er snýst Metoo um
að afhjúpa kynferðislega áreitni og
ofbeldi og hófst með umfjöllun um
brot kvikmyndaframleiðandans
Harvey Weinstein.
Haneke segir í viðtali við austur-
ríska dagblaðið Kurier að þessi
hreyfing eða bylting hafi leitt af sér
nornaveiðar. „Þessi nýja hrein-
trúarstefna sem lituð er af hatri á
karlmönnum og kemur í kjölfar
#Metoo-hreyfingarinnar veldur
mér áhyggjum,“ sagði Haneke í
viðtalinu. „Við listamenn erum
orðnir uggandi þar sem þessi kross-
ferð beinist gegn hvers kyns birt-
ingarmynd erótíkurinnar.“
Haneke tekur þó fram að refsa
beri fyrir nauðgun eða hvers kyns
kynferðislegar þvinganir en segist
uggandi yfir öllum þeim ásökunum
sem komið hafi
fram vegna 20
eða 30 ára gam-
alla atburða.
Hann vilji hrein-
lega ekki vita
hversu margar
þeirra séu raun-
verulega vegna
kynferðislegra
árása.
Haneke segir leikara nú klippta
út úr kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum ef grunur leiki á því að þeir
hafi brotið á sér og það sé gert til
að missa ekki áhorfendur.
Segir Metoo hafa leitt til nornaveiða
Michael Haneke
Fasteignir
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 10.40Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 8, 10.15
SÉRBLAÐ
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 16. mars
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 12. mars.