Morgunblaðið - 14.02.2018, Side 36

Morgunblaðið - 14.02.2018, Side 36
 Kvæðamannafélagið Iðunn stend- ur fyrir skemmtidagskrá á Sóloni við Bankastræti í kvöld kl. 20 og mun allur ágóði af miðasölu renna í út- gáfusjóð á Segulböndum Iðunnar. Úrvals kvæðafólk kemur fram, m.a. Ása Ketilsdóttir, Bára Gríms- dóttir, Gunnar Straumland og Rósa Þorsteinsdóttir og munu þau m.a. flytja gamanmál í bundnu og óbundnu máli. Sumt af efninu er eft- ir þekkta hagyrðinga Iðunnar. Ragn- ar Ingi Aðalsteinsson verður kynnir og hlutavelta verður haldin með fjöl- breyttum vinningum. Segulbönd Ið- unnar er bók með 160 kvæðalögum úr safni kvæðamannafélagsins, á nótum og í hljóðriti, kvæðum og ýmsum fróðleik um kveðskap, kvæðamenn, bragfræði o.fl. Kvæða- mannafélagið gefur bókina út í samvinnu við Stofnun Árna Magn- ússonar og bóka- útgáfuna Opnu. Útgáfa styrkt með kvæðakvöldi MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Telur sér vera haldið í gíslingu 2. Þjóðleikhús í klípu vegna Heimilistóna 3. „Toppurinn á ísjakanum“ 4. Missti 27 kíló »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Píanóleikarinn Agnar Már Magn- ússon kemur fram með tríói sínu á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í kvöld kl. 21 í Björtuloftum í Hörpu. Tríóið mun frumflytja nýja frum- samda tónlist eftir Agnar. Auk Agn- ars eru í tríóinu bassaleikarinn Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson og Scott McLemore sem leikur á trommur. Tríóið hefur leikið saman um árabil og sendi frá sér geisladiskinn Svif ár- ið 2016. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Tríó Agnars leikur djass í Björtuloftum Á fimmtudag Norðaustan 8-15 á Vestfjörðum, annars austlæg eða breytileg átt 3-10. Dálítil él, en yfirleitt þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi. Víða frostlaust við ströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 15-25 m/s, en 25-30 syðst. Lægir eftir hádegi sunnanlands, síðar í öðrum landshlutum. Snjókoma, slydda eða rigning um allt land, einkum eystra. VEÐUR Íslandsmeistarar Fram unnu annan stórsigur á Stjörnunni á skömmum tíma í Olís-deild kvenna í handknattleik í gærkvöldi, 37:26. Vonir Stjörnunnar um sæti í úrslitakeppninni fara þverrandi með hverjum leiknum sem líður. Haukar halda öðru sætinu eftir sig- ur á Selfossi og Valskonur sitja í efsta sæti eftir sigur á Fjölnisliðinu, sem skoraði aðeins 10 mörk. »3 Stórsigur Íslands- meistaranna Lægð Keflavíkur hefur lengi verið í kortunum „Nú er ég laus við þessa leiðindaspurningu, um hvort ferillinn minn geti talist full- kominn án ólympíugull- verðlauna. Nú er búið að eyða þessari spurningu,“ sagði Austurríkismaðurinn Marcel Hirscher, eftir sigur sinn í alpatvíkeppni á Vetrarólympíu- leikunum í Pyeongchang. »1 Laus við þessa leiðindaspurningu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Íslenski hesturinn Hörður fer með eitt aðal- hlutverka í þýsku myndinni Hörður – Zwischen den Welten sem sýnd var hér á landi nýverið á þýskum kvikmyndadögum. Hörður fæddist í Þýskalandi. Hann er nítján vetra og í eigu föður Stefanie Plattner sem er einn handritshöfunda og framleiðenda kvikmyndarinnar. Steffi, eins og hún er kölluð, er lærð leikkona og hefur unnið sem slík. Eiginmaður hennar, Ekrem Ergün, er líka leikari og það var í verkefnalægð sem þau ákváðu að skrifa handritið að myndinni. „Hand- ritið varð bara betra og betra með tímanum svo við ákváðum að framleiða myndina líka. Við stofn- uðum framleiðslufyrirtækið Storming Donkey og Ekrem leikstýrði svo myndinni,“ segir Steffi. Fallegur og rólegur Hörður er frá hrossaræktarbúinu Wiesenhof í Þýskalandi og ræktaður af Bruno Podlech. Faðir Steffi keypti Hörð fyrir nokkrum árum og notaði hann sem reiðhest. „Þegar við unnum að handrit- inu vissi ég strax að Hörður yrði fullkominn í hlutverkið. Hann er fallegur og rólegur en það er líka mikill leikur í honum. Hann stóð sig mjög vel og það var alltaf eins og hann vissi hvað hann ætti að gera,“ segir Steffi sem sá um að „leikstýra“ Herði. „Það þurfti að vera heilmikill kvikmynda- tökubúnaður í kringum hann og ég reið honum meira að segja með búnað hangandi út frá hnakknum og hann var sallarólegur.“ Steffi er mikill aðdáandi íslenska hestsins. For- eldrar hennar áttu hestabúgarð og hún hefur ver- ið með nokkrar merar í ræktun. „Núna á ég þrjá keppnishesta og reyni að eyða öllum mínum tíma utan vinnu í hesthúsinu. Bergþór Eggertsson er góður vinur minn en hann á hestabúgarð hér í Berlín og hestarnir mínir eru þar. Ég er mjög tengd Íslandi í gegnum hestana og við eigum núna litla íbúð í Reykjavík því við ferðumst svo mikið til landsins. Ég hef mikla ástríðu fyrir ís- lenska hestinum og finnst hann mjög fallegur.“ Steffi segir að kvikmyndatökuliðið hafi verið sammála um að íslenski hesturinn væri fullkom- inn í kvikmyndaleik, hann væri svo góður og ró- legur. „Það hefur margt fólk lýst aðdáun sinni á hestinum í gegnum vefsíðu og facebooksíðu myndarinnar. Þá varð aðstoðarkvikmyndatöku- maðurinn svo heilluð af íslenska hestinum að hún endaði á að kaupa einn.“ Hesturinn Hörður heillaði alla  Íslenskur hestur í aðalhlutverki í þýskri kvikmynd Hestakona Stefanie Plattner í útreiðartúr á Herði í þýskum skógi. Hún er mikill aðdáandi íslenska hestsins. Í myndinni segir frá 17 ára múslimskri stelpu sem kemst í kast við lögin og þarf að sinna samfélagsþjón- ustu á hestabúgarði. Þar hittir hún hestinn Hörð og hrífst af honum. Hún fær að þjálfa hann fyrir keppni og samband þeirra fær hana til að skoða líf sitt, drauma sína og þrár. Myndin var frumsýnd í Þýskalandi árið 2015 og var sýnd í 48 kvikmyndahúsum þar, sem þykir mjög gott fyrir sjálfstæða mynd. Síðan hefur hún farið víða, m.a. til Írans, Dakar, Marokkó og Mexíkó, og verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða. Hún hefur verið tilnefnd til nokkurra verðlauna og vann m.a. German Film Critics Association Awards fyrir bestu barnamyndina 2015. Var valin besta barnamyndin HÖRÐUR – ZWISCHEN DEN WELTEN Leikarar Almila Bagriacik, sem lék stelpuna, ásamt Herði. Sigur Hattar í Keflavík er óvæntustu úrslit vetrarins í Dominos-deild karla í körfubolta. Tölfræði Keflvíkinga á heimavelli er algjörlega galin. Lægð karlaliðs þeirra hefur samt verið lengi í kortunum og lítið sem ekkert hefur komið fram af frambærilegum drengjum hjá þeim undanfarin ár. Urald King var besti leik- maðurinn í 18. umferð. Bene- dikt Guð- mundsson fjallar ít- arlega um það sem gerðist í umferðinni. »4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.