Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 56. tölublað 106. árgangur
SAMVINNA HR
OG SÉRSAM-
BANDA ÍSÍ 19 SVEITIR KOMA FRAM
ODDUR OG
SIGGI FJALLA
UM EINELTI
SVARTMÁLMSTÓNLISTARHÁTÍÐ 30 UNGLINGASÝNING 31MÆLINGAR ÍÞRÓTTIR
Sverrir Óskarsson, sviðstjóri
matssviðs hjá Menntamálastofnun
segir að ekki eigi að líta á sam-
ræmdu könnunarprófin sem gagn til
inntöku í framhaldsskóla. Prófin séu
ætluð fyrir nemendur, foreldra og
skóla til að fá endurgjöf á styrk- og
veikleika nemandans. Nemendur í 9.
bekk þreyta samræmdu prófin í ár
og munu rúmlega 4.300 nemendur í
141 grunnskóla taka samræmt próf í
íslensku í dag. Sverrir segir að hluti
af tilganginum með því að láta börn
í 9. bekk þreyta prófin sé að draga
úr því að þau séu notuð sem gagn
inn í framhaldsskóla. „Það verða
heilmiklar breytingar á þessu eina
ári og krökkum standa margar leið-
ir til boða og það er mjög mikilvægt
að hanga ekki í því að láta eitt svona
próf ákveða hlutina,“ segir Sverrir.
Nemendur hafa val um hvort þeir
láta niðurstöður
prófanna fylgja
með umsókn í
framhaldsskóla
að ári liðnu. Segir
Sverrir sína per-
sónulegu skoðun
vera að prófin
eigi alls ekki að
vera efniviður
fyrir framhaldsskólana enda sé
prófið að meta afmarkaða þætti.
Morgunblaðið ræddi við þau Reg-
ínu Sjöfn Sveinsdóttur og Ísak Leon
Júlíusson, nemendur í 9. bekk í
Vatnsendaskóla, sem hafa undirbúið
sig mikið fyrir samræmdu prófin á
síðustu vikum. Þau segja að nem-
endur séu mjög meðvitaðir um að
nota megi niðurstöður prófanna til
inngöngu í framhaldsskóla.
mhj@mbl.is »6
Prófin ekki efniviður framhaldsskólanna
Helgi Bjarnason
Anna Sigríður Einarsdóttir
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
„Ég er bara ánægð með að hafa það
staðfest að ég njóti trausts þingsins
og þakklát fyrir að það hafi komið
fram,“ sagði Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra eftir að þingið
hafði fellt vantrauststillögu Sam-
fylkingarinnar og Pírata. Logi Ein-
arsson, formaður Samfylkingarinn-
ar, sagði að málinu væri ekki lokið.
Tillaga Samfylkingarinnar og
Pírata til þingsályktunar um van-
traust á dómsmálaráðherra var
felld við atkvæðagreiðslu á Alþingi
í gær. 29 þingmenn stjórnarand-
stöðunnar ásamt tveimur þing-
mönnum VG greiddu atkvæði með
vantrausti en Bergþór Ólason,
þingmaður Miðflokksins, sat hjá.
Allir þingmenn stjórnarliðsins
nema Rósa Björk Brynjólfsdóttir
og Andrés Ingi Jónsson, þingmenn
VG, greiddu atkvæði á móti.
Ekki tilefni til stóryrða
Birgir Ármannsson, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna, sagði
við umræður um vantraustið mik-
ilvægt að hafa í huga að ágreining-
urinn sem á endanum stóð upp úr í
hæstaréttarmálinu snerist um það
hversu vel rannsókn hefði farið
fram. Ekki um aðra þætti. „Þarna
var um að ræða ágreining um mat á
því hvernig matskennd regla hefði
verið framkvæmd. Það er nú stór-
málið sem hér er til umræðu og
gefur ekki tilefni til þeirra stóryrða
um vantraust á réttarkerfinu og
hrun lýðræðis á Íslandi og ég veit
ekki hvað menn hafa sagt hérna,“
sagði Birgir.
Sigríður Á. Andersen kvaðst í
gærkvöldi vonast til að umræðu um
málið væri nú lokið og að vinnu-
friður skapaðist í þinginu. „Ég vona
að þessu þvargi um þetta mál sé nú
lokið. Ég vona að menn fái nú ein-
hvern vinnufrið.“
Hún sagðist eftir sem áður
reiðubúin í gott samstarf við alla
þingmenn. Hún hefði, bæði í þessu
máli sem öðrum, átt frumkvæði að
gegnsæju samtali við þingmenn,
eins og þeir hefðu óskað eftir. „Ég
mun halda því áfram. Ég vona að
það verði gagnkvæmt. Mönnum ber
skylda til þess að vinna hér að góð-
um málum,“ sagði Sigríður.
Vandræðagangur áfram
„Að sjálfsögðu eru þetta von-
brigði vegna þess að við töldum
þetta nauðsynlegt skref til að end-
urreisa traust á dómsmálum í land-
inu,“ sagði Logi Einarsson í gær-
kvöldi og lýsti þeirri skoðun sinni
að málinu væri ekki lokið.
Spurður um framhaldið sagði
Logi þingmennina virða lýðræðis-
lega niðurstöðu. „Auðvitað getur þó
verið að vandræðagangur dóm-
stigsins sé ekki úr sögunni,“ sagði
hann og bætti því við að mikil
óvissa væri um niðurstöðu mála-
ferla um hæfi dómara við Lands-
rétt.
Vonast eftir vinnufriði á þingi
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ánægð með að tillaga um vantraust var felld á Alþingi
Tveir þingmenn VG greiddu atkvæði með stjórnarandstöðunni Þingmaður Miðflokksins sat hjá
Morgunblaðið/Hari
Vantraust Ráðherrar voru missáttir við atkvæðaskýringar þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu.
MTveir með stjórnarandstöðu »4, 18
Yan Pascal Tortelier hljómsveitarstjóri
Nicola Lolli einleikari
19:308. MARS
Charles Gounod
Sinfónía nr. 2
Sergej Prokofíev
Fiðlukonsert nr. 1
Maurice Ravel
La valse
Sólveig Anna Jónsdóttir verður for-
maður Eflingar – stéttarfélags þeg-
ar ný stjórn tekur við völdum. Hún
var formannsefni á B-lista sem hún
bauð fram á móti A-lista fráfarandi
stjórnar.
Á kjörskrá í stjórnarkosningunni
voru liðlega 16.500 félagsmenn en
hún fór fram í gær og í fyrradag.
Niðurstöður talningar voru kynntar
upp úr miðnætti. 2.618 félagsmenn
greiddu atkvæði. B-listinn fékk 2.099
atkvæði eða um 80% og A-listi
stjórnar og trúnaðarráðs með Ingv-
ar Vigur Halldórsson sem formanns-
efni fékk 519 atkvæði. Átta einstak-
lingar skipa hvorn lista, formaður,
gjaldkeri og sex meðstjórnendur, en
fullskipuð stjórn er fimmtán manna
með þeim stjórnarmönnum sem
kosnir voru á síðasta ári.
Sigraði með yfirburðum
Sólveig Anna
verður næsti for-
maður Eflingar
Morgunblaðið/Hari
Sigur Sólveig Anna Jónsdóttir fagnar sigri skömmu eftir miðnætti.