Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Dönsk hönnun SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum með mál hjá okkur þar sem fólk hefur orðið fyrir verulegu tjóni og ábyrgð hefur verið hafnað,“ segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda. Vísar hann í máli sínu til ástands vega á höfuðborgarsvæðinu og tjóns sem ökumenn hafa orðið fyrir vegna hola sem myndast hafa á vegum. Á þessum árstíma koma holur í ljós þegar snjóa leysir og algengt er að ekki sé brugð- ist við í tæka tíð með nauðsynlegum við- gerðum. Algengt er að dekk bifreiða skemm- ist og tjón verði á undirvögnum en í sumum tilvikum getur tjón orðið alvarlegra en það. „Ástandið er hörmulegt og það er óþol- andi að það þurfi að vera þannig ár eftir ár. Það sem er þó jákvætt er að veghaldarar hafa í ár sýnt meiri ábyrgð en oft áður. Bæði með því að vekja athygli vegfarenda á slæmu ástandi og með því að grípa fyrr inn í en oft áður til að tryggja að ekki verði meiri skaði,“ segir Runólfur. Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa gjarnan komið upp tilvik þar sem deilt er um ábyrgð, tryggingafélög hafi krafist sönnunar þess að búið væri að tilkynna um holur á vegum til að þau telji sig bótaskyld. FÍB hefur nú látið gera app, Hola, þar sem hægt er að koma á framfæri tilkynningum um holur í vegakerf- inu. Ástand vega blasir við öllum Samkvæmt upplýsingum sem Morgun- blaðið fékk frá Vegagerðinni í gær hafa það sem af er ári borist 95 tilkynningar um tjón vegna holuaksturs. Í fyrra bárust 179 slíkar tilkynningar allt árið og árið 2016 bárust 135 tilkynningar en árið 2015 var algert metár. Þá bárust 338 tilkynningar um tjón vegna holuaksturs, samkvæmt tölum Vegagerðar- innar. Runólfur segir að ástand vega á höfuð- borgarsvæðinu blasi við öllum. Tilkynningar berist þó líka um tjón á landsbyggðinni og fregnir berist af slæmu slitlagi um allt land. Rannsaka þurfi hvers vegna ástandið sé svona slæmt ár eftir ár. „Og þá er það sem við höfum verið að ræða, hver er ábyrgð yfirvalda? Þau hafa með niðurskurði til viðhalds og framkvæmda valdið því í ákveðnum tilvikum að vegfar- endur lenda jafnvel í stórtjóni með ökutæki sín. Fyrir utan það sem er alvarlegast, að þetta skapar hættu varðandi umferðarör- yggi, hættu fyrir fólkið sjálft, segir hann. „Það var tekin meðvituð ákvörðun um nið- urskurð og menn báru fyrir sig hrun. Við er- um nú að súpa seyðið af þessari ákvörðun, að draga úr viðhaldi og jafnvel að leggja þynnra slitlag en áður var gert. Er sann- gjarnt að vegfarendur beri það tjón að fullu? Bera kjörnir fulltrúar ekki ríkari ábyrgð en fram hefur komið til þessa?“ Morgunblaðið/Hanna Holóttir vegir Ástand vega í höfuðborginni þykir slæmt um þessar mundir. Fjölmargar tilkynningar hafa borist um tjón á bílum vegna þess. Ástandið „hörmulegt“ ár eftir ár  Alls hafa 95 tilkynningar borist um tjón á bílum vegna holuaksturs í ár  Dæmi um að bílar verði fyrir verulegu tjóni  Óþolandi ástand, segir framkvæmdastjóri FÍB og spyr um ábyrgð yfirvalda Ólöf Ragnarsdóttir olofr@mbl.is Utanríkisráðuneytið kannar nú hvort orðrómur þess efnis að Íslend- ingur hafi fallið í átökum í Afrin í Sýrlandi eigi við rök að styðjast. Ráðuneytið hefur sett sig í samband við alþjóðadeild lögreglu og ræðis- menn í Tyrklandi vegna málsins. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri í ráðuneytinu, ekki kunnugt um veru mannsins, eða annarra Íslendinga, í Sýrlandi. Tyrkneskir miðlar hafa birt myndir af manninum og segja hann hafa barist með vopnuðum sveitum Kúrda (YPG) í norðvestur- hluta Sýrlands og hann hafi látist í árás Tyrkja hinn 24. febrúar. Meðal þeirra sem greina frá mál- inu er tyrkneski vefmiðillinn Etha. Þá er einnig greint frá því í tyrk- nesku útgáfu fréttamiðilsins CNN og í frétt Hurriyet, sem er einn stærsti fréttamiðill Tyrklands. Í frétt á vefsíðu Etha segir að mað- urinn hafi komið til Sýrlands í gegn- um grísku anarkistasamtökin RUIS og gengið til liðs við samtök að nafni International Freedom Batallion (IFB). Í gær var svo greint frá því á Facebook-síðu International Free- dom Batallion að maðurinn hefði reynt að komast til Sýrlands árið 2016 en þá hefði honum verið vísað til baka til Íslands. Hann hefði þó ekki gefist upp heldur snúið aftur og þá til að taka þátt í orrustunni í Raqqa, sem lauk í fyrra, en þar börðust sam- tökin gegn uppgangi vígamanna Rík- is íslams. Hann hafi svo tekið þátt í því að verja Afrin gegn herjum Tyrkja og fallið í þeim bardögum. AFP Átök Hersveitir undir stjórn Tyrkja hafa setið um Afrin í sex vikur. Segja Íslending hafa fallið í átökum í Afrin í Sýrlandi Afrin ÍRAK TYRKLAND JÓRDANÍA LÍ B. 50 km DAMASKUS SÝRLAND RaqaAleppo Deir Ezzor Homs  Ráðuneytið kannar orðróm tyrkneskra miðla Búnaðarþing vill að niðurstaða EFTA-dómstólsins, sem lýsti tak- markanir íslenskra stjórnvalda á innflutningi á fersku kjöti and- stæðar skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningum, verði ekki innleidd óbreytt í íslensk lög. Það verði gert með samninga- viðræðum við Evrópusambandið. Þetta er ein af þeim leiðum sem búnaðarþing leggur til að verði far- in til að íslensk löggjöf tryggi áfram vernd heilsu manna og dýra með bestu mögulegum aðferðum. Tilgangurinn er að vernda inn- lenda búfjárstofna, koma í veg fyrir fjölgun matarsýkinga og aukna sýkingu af völdum sýklalyfja- ónæmra baktería. Búnaðarþingi lauk í gær. Sindri Sigurgeirsson var endurkjörinn formaður. helgi@mbl.is Samið verði við ESB um ferska kjötið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.