Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 af umsóknarferli í menntaskóla og margir hverjir leggja mikið á sig vegna þess. „Það er mismunandi hvort nemendur taka þetta alvarlega og vilja komast í góðan mennta- skóla,“ segir Regína og bætir Ísak við að „sumir læri ekki neitt á meðan aðrir læri mjög mikið“. Undanfarnar vikur hefur stór hluti af kennslu farið í undirbúning fyrir prófin og hafa þau þreytt mikið af þeim prófum sem lögð hafa verið fyr- ir 10. bekk árin áður. „Við erum mik- ið að fara yfir gömul samræmd próf í tímum,“ segir Regína. „Það er farið nokkuð vel yfir þetta í skólanum en ég læri líka vel heima og reyni að kíkja á gömul próf þegar ég kem heim úr skólanum,“ segir Ísak. Spurð um hvernig áhersla kennara hafa verið á mikilvægi samræmdu prófanna segja þau að skilaboðin hafi verið í báðar áttir. „Sumir kennarar segja að þetta skipti engu máli og við eigum bara ekki að vera stressuð. Aðrir segja að við verðum að standa okkur vel,“ segir Regína. Þar sem þau eru fyrsti árgang- urinn sem þreytir prófin í 9. bekk benda þau bæði á að ákveðin óvissa fylgi því hvað gæti komið á próf- unum. „Maður fær engan beinan gát- lista, og því veit enginn hvernig próf- in verða. Kennararnir eru með lista yfir hvað nemendur eiga að kunna eftir 9. bekk og ég held það verði að- allega farið eftir því. Við erum svolít- ið oft í prófum í okkar skóla en maður er búinn að læra hvernig maður á að læra fyrir þau, en hér veit maður ekkert út í hvað maður er að fara með þetta,“ segir Regína. Ísak tekur und- ir og segir að það sé öðruvísi að læra fyrir þessi próf en önnur. „Ég myndi segja að það væri meiri pressa í þess- um prófum en öðrum prófum“. Þau eru sammála um að það sé meiri ein- beiting meðal nemenda í undirbún- ingi fyrir samræmdu prófin og minni læti í tímum. En þar sem mikill tími hefur farið í yfirferð eldri prófa, segja þau einnig bæði að það sé orðið þreytt að vera alltaf að gera það sama og virðast spennt að ljúka við prófin. í núverandi fyrirkomulagi: íslensku, stærðfræði og ensku. Hann segist vera afar bjartsýnn á gengi nemenda í prófunum og telur börn í dag vera mun klárari en áður og nefnir m.a. öfluga enskukunnáttu unglinga sem dæmi. Undirbúa sig vel fyrir prófin Morgunblaðið ræddi við Regínu Sjöfn Sveinsdóttur og Ísak Leon Júl- íusson, nemendur í 9. bekk í Vatns- endaskóla um upplifun þeirra af und- irbúningi fyrir samræmdu prófin. Þau segja að nemendur séu afar með- vitaðir um að prófin geta verið hluti Farþegum Icelandair fækkaði um 5% í febrúar frá því sem var í sama mánuði í fyrra. Í tilkynningu frá Icelandair segir að fækkunin skýr- ist að mestu leyti af fækkun farþega á vegum flugfélagsins til Íslands en eftirspurn hafi ekki aukist í takt við heildarframboðsaukningu á mark- aði. Þá dróst framboð saman um 1% og sætanýting var 74,3% í febrúar en 75,9% í febrúar í fyrra. Bogi Nils Bogason, framkvæmda- stjóri fjármála Icelandair Group, segir í samtali við Morgunblaðið flugfarþegum til Íslands ekki hafa fækkað þó að ljóst sé að þeim fjölgi nú hægar. Hann segir fækkun far- þega hjá Icelandair komna til vegna verðlags. „Það er mikil samkeppni á markaðnum og framboðsaukning í heild það mikil, að ef þú ætlar að fjölga farþegum þarftu að lækka verðið umfram skynsamleg mörk að okkar mati. Við höfum frekar viljað vera raunsæ í verðlagningu en að horfa eingöngu á markaðshlutdeild- ina. Hjá okkur er það ekki markmið í sjálfu sér að vaxa á öllum mörk- uðum á hverjum tíma, til lengri tíma verður vöxtur að vera arðbær,“ seg- ir Bogi. Þá segir í tilkynningunni að far- þegum Air Iceland Connect fækki einnig um 3% á milli ára. Einnig segir að fjöldi flugferða hafi verið felldur niður í mánuðinum sökum veðurs en sætanýting var 62,6%. Fraktflutningar jukust um 24% á milli ára. Skýrist það af auknum innflutningi til landsins, en einnig hefur verkfall sjómanna á Íslandi á síðasta ári áhrif á samanburðinn. Seldum gistinóttum hjá hótelum fé- lagsins fækkaði einnig um 5% á milli ára. Flugfar- þegum fækkar  5% samdráttur hjá Icelandair Morgunblaðið/Sigurður Bogi Icelandair Farþegum fækkar í ár. Sögu samræmdu könnunarprófanna má rekja til skólaársins 1946 til 1947 þegar svokölluð Landspróf voru tekin upp. Voru þau tekin upp þegar skólastofnununum á framhaldsskólastigi fjölgaði og voru einskonar inn- tökupróf í bóklegt nám. Skólaárið 1976 til 1977 tóku samræmd könn- unarpróf við af Landsprófi og gerðist það í tengslum við endurskoðun á grunnskólalögum. Á árunum 1977 til 1982 var prófað í sex námsgreinum: íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku, samfélagsgreinum og náttúrufræði. Á árunum 1983 til 1992 var prófað íslensku og stærðfræði og frá 1993 til 2003 voru prófin fjögur: íslenska, stærðfræði, enska og danska. Þeim fjölgar svo aftur í sex á árunum 2004 til 2008, þangað til grunn- skólalögin voru endurskoðuð 2009. Þá var prófum fækkað úr sex í þrjú og þau hættu að vera lokapróf og fengu stöðu könnunarprófa þess í stað. Þá voru próf í 10. bekk færð á haustið. Prófin eru síðan gerð rafræn og í stað 10. bekkjar að hausti eru þau lögð fyrir 9. bekk að vori. Prófin í sífelldri endurskoðun SAGA SAMRÆMDU PRÓFANNA Á ÍSLANDI Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Rúmlega 4.300 nemendur í 141 grunnskóla þreyta samræmt könn- unarpróf í íslensku í dag. Nemendur í 9. bekk þreyta prófið í ár en ekki nemendur í 10. bekk eins og síðustu ár. Sverrir Óskarsson, sviðstjóri matssviðs hjá Menntamálastofnun, segir að tilgangurinn með að hafa prófið fyrir börn í 9. bekk sé að færa það fjær því að vera lokapróf og nær því að vera könnunarpróf. „Hug- myndin var sú að hafa þetta ekki lokapróf heldur hafa þetta könn- unarpróf. Nota þetta betur sem tæki til að veita nemendum, foreldrum og skóla endurgjöf á styrk- og veikleika nemandans. Þannig að það væri meira svigrúm innan grunnskólans til að vinna betur úr því og bregðast við.“ Spurður segir hann að nemendur eigi ekki að hugsa prófið sem hluta af inntökuferli í framhaldsskóla. „Við erum einmitt að reyna að draga úr því. Þetta er ekki gagn fyrir fram- haldsskóla. Það verða heilmiklar breytingar á þessu eina ári og krökk- um standa margar leiðir til boða. Það er mjög mikilvægt að hanga ekki í því að láta eitt svona próf ákveða hlut- ina.“ Segir hann einnig að það sé hans persónulega skoðun að prófin ættu ekki að vera hluti af inntökuferl- inu. „Ég er á þeirri skoðun að sam- ræmd könnunarpróf eigi ekki að vera efniviður fyrir framhaldsskólana til að meta inntöku. Þetta eru próf með afmarkaða þætti sem eiga að vera endurgjöf til nemenda og foreldra á uppbyggilegan og jákvæðan hátt.“ Breyttar áherslur með árunum Sverrir segir að áherslurnar sem prófaðar eru í samræmdu prófunum hafi breyst mikið með árunum. Próf- in í ár eru fjórðu prófin sem eru raf- ræn og var nemendum í fyrsta skipti í ár boðið að spreyta sig á kynning- arprófi á netinu. Segir hann prófin leggja meiri áherslu á leikni og hæfni en gert var áður fyrr. „Við vorum í gömlu prófunum að spyrja þekking- arspurninga og nú erum við að færa okkur yfir í það að meta leikni og hæfni nemenda. Við erum að biðja nemendur um að lesa út úr þrautum, lesa út úr stöplaritum, draga álykt- anir og sýna meiri lesskilning. Við er- um að reyna að þróa námsmatið meira í átt að leikni og hæfni.“ Segir hann að þessi breyting sé til þess að mæta hæfniskröfum 21. aldarinnar en einungis er prófað í þremur fögum Morgunblaðið/Hanna Vel undirbúin Regína og Ísak eru meðal þeirra þúsunda nemenda sem þreyta samræmt próf í íslensku í dag. Þúsundir þreyta samræmt próf  Prófin ekki gagn fyrir framhaldsskóla, segir sviðstjóri hjá Menntamálastofnun Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Við uppgötvuðum þetta bara við fyrstu rukkun frá tryggingafélaginu. Þá sáum við að bíllinn var 2015-ár- gerð en ekki 2016-árgerð eins og við héldum, segir Jónas Óskarsson, fað- ir drengs sem keypti sér Toyota Aygo-bifreið fyrir tæpum tveimur árum. Frétt Morgunblaðsins í síðustu viku um reglur um skráningu bif- reiða hefur vakið talsverða athygli. Í henni kom fram að Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefði um árabil gagnrýnt að skráning bifreiða væri ekki nógu ítarleg. Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri FÍB, lýsti því að aðeins eitt af þrennu þyrfti að vera í skráningarvottorðinu; fyrsti skráningardagur, árgerð eða hönn- unarár, eða framleiðsluár. Þetta geti valdið misskilningi og sagði Runólf- ur að reglulega hefðu komið upp til- vik þar sem fólk teldi sig vera að kaupa yngri bíla en raun bar vitni. Jónas segir að sonur sinn, Skarp- héðinn Óskar, hafi að vel íhuguðu máli keypt sér áðurnefnda Toyota- bifreið. Í maí 2016 hafi hann gengið frá kaupunum en við rukkun frá tryggingafélaginu hafi komið fram að hún hafi verið forskráð í desem- ber árið 2015. Taldi hann sig hafa verið blekktan og vísaði málinu til kærunefndar lausafjár- og þjónustu- kaupa. Í úrskurði nefndarinnar, sem kveðinn var upp í október 2017, einu og hálfu ári síðar, er kröfu Skarp- héðins að fá afhenta nýja bifreið ár- gerð 2016 hafnað. Grundvallarmisskilningur Sagan er rakin í úrskurðinum. Skarphéðinn kveðst hafa farið til seljenda í febrúar 2016 og óskað eftir nýrri dökkblárri, fjögurra dyra Toyota Aygo-bifreið, árgerð 2016, en verið tjáð að umrædd bifreið væri ekki til og væri í framleiðslu. Af- greiðsluferlið væri einhverjar vikur og sending væntanleg. Í apríl hefði honum verið tjáð að slík bifreið væri væntanleg með skipi innan tveggja vikna. Í kjölfarið hefði honum verið sagt að hann gæti fengið bifreiðina innan við viku síðar. Úr varð að Skarphéðinn keypti bifreiðina og taldi að framleiðsluár hennar væri 2016. Síðar hefði áðurnefnd for- skráning sem var gerð 23. desember komið í ljós. Telur Skarphéðinn aug- ljóst að bifreiðin hafi staðið í geymslu frá áramótum og fram í apríl 2016. Furðulegt sé að hún hafi ekki verið til í febrúar 2016 en hafi samt verið forskráð í desember 2015. Í andsvörum seljanda, Toyota, segir að um grundvallarmisskilning um skráningu nýrra bifreiða sé að ræða. Seljandi segir að hugtakið „ár- gerð bíla“ hafi ekki verið notað í fjölda ára heldur sé alltaf miðað við fyrsta skráningardag bifreiðar. Óheppilegt sé að sum tryggingafélög miði við forskráningardag í stað ný- skráningardags, enda byrji notkun bifreiðar ekki fyrr en þá. Kærunefndin leitaði til sérfræð- ings við úrlausn málsins. Telur sér- fræðingurinn galla í skráningu bif- reiðarinnar hjá Samgöngustofu að árgerð eða framleiðsluár bifreiðar- innar hafi ekki verið skráð í öku- tækjaskrá heldur aðeins forskrán- ingardagur. Framleiðsluár bifreiða miðist við upplýsingar frá framleið- anda en ekki skráningu í einstöku landi sem flytur bifreiðina inn, en það geti verið túlkunaratriði hvaða dagsetning sé notuð, dagsetning verksmiðjunúmers eða dagsetning forskráningar í bifreiðaskrá. „Galli“ í skráningu á bifreiðum  Skarphéðinn taldi sig blekktan við kaup á nýjum bíl  Reglur um skráningu bifreiða valda misskilningi  Margir telja bíla sína yngri en þeir eru  Sérfræðingur segir „túlkunaratriði“ við hvað sé miðað Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýir bílar Reglulega koma upp tilvik hér á landi þar sem fólk telur sig vera að kaupa yngri bíla en raun ber vitni. Hægt er að deila um hvað er nýr bíll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.