Morgunblaðið - 07.03.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Alexandra Ósk Ólafsdóttirólst upp í Breiðholti þarsem hún gekk bæði ígrunn- og framhalds-
skóla. Á framhaldsskólaárunum
kviknaði áhugi Alexöndru á manns-
líkamanum og hvernig hægt er að
vinna með hann. Hún stundaði nám
á íþróttabraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, þaðan sem hún útskrif-
aðist árið 2012. Með námi starfaði
hún hjá fimleikadeild Fylkis þar
sem hún þjálfaði fimleika, allt frá
grunnhópum og upp í meistarahóp
en að sögn Alexöndru hefur hún
alltaf verið mikil íþróttamanneskja
og æfði sjálf fimleika á yngri árum.
Hún vissi því alltaf að hún
myndi enda á að starfa innan heil-
brigðisgeirans og var því staðráðin
í að íþróttabraut væri fyrir sig.
„Ég íhugaði að læra sjúkra-
þjálfun eða hjúkrunarfræði, en
fannst það samt aldrei nógu spenn-
andi til að stökkva á það. Ég ákvað
því að halda áfram að þjálfa þang-
að til ég myndi átta mig betur á því
hvað ég vildi læra. Í maí árið 2014
komst ég að því að ég og unnusti
minn, Kristófer Númi, ættum von á
barni. Við tók dásamlegt fæðingar-
orlof með Sigrúnu Dís dóttur okk-
ar, en Kristó nýtti orlofið meðal
annars til að klára BA í lögfræði
frá Háskóla Íslands. Rétt fyrir eins
árs afmæli Sigrúnar Dísar kom-
umst við að því að fjölskyldan
kæmi til með að stækka ennþá
frekar. Báðar meðgöngurnar gengu
svo ótrúlega vel að ég gat þjálfað
fimleika nánast fram á síðasta dag.
Í byrjun árs 2016 fengum við svo
aðra stúlku í hendurnar, hana
Emblu Marín, og hjartað okkar
stækkaði enn meira“
Kláraði prófin kasólétt
Á meðan Alexandra gekk með
seinna barn sitt uppgötvaði hún
kírópraktík og segir hún það hafa
verið ákveðna opinberun.
„Ég áttaði ég mig á því að það
væri sennilega akkúrat greinin sem
ég hafði verið að leita að,“ segir
Alexandra sem ákvað því að prófa
að sækja um í skóla í Bretlandi.
„Ég sótti um skóla hér í
Bournemouth og fékk svar til baka
um að ég þyrfti að hafa meiri bak-
grunn í líffræði og lífeðlisfræði til
að fá inngöngu beint inn á fyrsta
árið. Námið samanstendur af fimm
árum, en ef nægilegur líffræði-
grunnur er fyrir, þá er möguleiki
að vera metin inn á fyrsta árið, í
stað þess að vera valin inn í svo-
kallað núll ár, sem er nokkurskon-
ar undirbúningsár. Ég lét ekki
segja mér það tvisvar og skellti
Fann draumanámið
á seinni meðgöngu
Að uppgötva kírópraktík var ákveðin opinberun fyrir Alexöndru Ósk Ólafsdóttur.
Hún áttaði sig á að það væri akkúrat greinin sem hún hefði verið að leita að til
að mennta sig. Hún sótti um í skóla í Bournemouth í Bretlandi og komst inn, og
við tók nýtt ævintýri í nýju landi fyrir litlu fjölskylduna. Og framtíðin er björt.
Til starfa Alexandra Ósk í vinnufatnaði í verklegu námi kírópraktors.
Kraftur – félag ungs fólks sem
greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur hefur að leiðarljósi
að beita sameinuðum kröftum sín-
um til að aðstoða og styðja fyrr-
nefnt fólk. Kraftur stendur reglu-
lega fyrir kaffihúsakvöldum og eitt
slíkt verður einmitt í kvöld, mið-
vikudagskvöldið 7. mars, kl. 20-22,
í Skógarhlíð 8, þar sem Ráðgjafar-
þjónusta Krabbameinsfélagsins er
til húsa. Markmiðið með kaffihúsa-
kvöldunum er að ungt fólk sem
hefur greinst með krabbamein og
aðstandendur geti hitt aðra í sömu
sporum og spjallað. Allir sem reynt
hafa vita hvað það getur hjálpað
mikið og skiptir miklu máli að vera
í samskiptum við þá sem hafa
reynt það sama.
Fulltrúar frá Krafti ætla að taka
vel á móti gestum og heitt verður á
könnunni og notalegt.
Vefsíðan www.kraftur.org
Kraftur Ungt fólk sem greinst hefur með með krabbamein stendur þétt saman.
Gott að hittast og tala saman
Nú þegar daginn er farið að lengja og
fólk horfir til komandi sumars er til-
valið að huga að lengri gönguferðum
sem bóka þarf með fyrirvara. Fátt er
betra fyrir líkama og sál en að ganga
dagana langa í óbyggðum. Fyrirtækið
Þín leið verður með kynning á há-
lendisferðum sumarsins nk. laugar-
dag, 10. mars, kl. 13-14 í Jógasmiðj-
unni í Spöng í Grafarvogi.
Kynntar verða ferðir um Kjöl,
Fjallabak og heilsuferð í Þjórsárdal.
Einnig verða dagsgöngur sumarsins
kynntar og síðdegisgöngur vorsins.
Ferðir fyrirtækisins byggjast m.a. á
því að stunda jóga úti í náttúrunni.
Endilega …
… skellið ykkur í jóga úti
í náttúrunni í sumar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útivist Yndisleg leið til að slaka á.
Þríeykið Andrea Ágústa Aðalsteins-
dóttir, Freyja Eilíf og Sigthora Odins
kalla sig myndlistarkvendi, en þær
opna samsýningu í dag, miðvikudag,
undir heitinu COMPUTER SPIRIT.
Á sýningunni eru gestir boðnir vel-
komnir inn í veröld óséðra tengsla
milli tölvunnar og mannsins, að hliði
sýndarveruleikans þar sem dreginn
er fram rafmagnaður andi andans,
íklæddur holdi af innra hugbúnaði.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem
og að á sýningunni sé heimur tölv-
unnar meðal annars rannsakaður
með aðferðum andlegra vísinda og
meðvitund hennar efnisgerð með
tækjum og tólum myndlistarinnar.
Gestum stendur einnig til boða að
fylgja hugleiðslu inn á stafrænar
víddir sem og upplifa verk sem má
skilgreina sem atburði, ýmist í efni-
við eða rými.
Myndlistarkvendin ætla að opna
sýninguna Computer spirit í dag kl.
18-21, á tveimur stöðum, annars veg-
ar í Ekkisens (Bergstaðastræti 25B)
og hins vegar í Gallery Port (Lauga-
vegi 23B). Allir velkomnir.
Sýning um netheima og dulheima
Myndlistarkvendi bjóða gestum
að skoða andann í tölvunni
Flottar Andrea Ágústa, Freyja Eilíf og Sigthora Odins eru myndlistarkvendi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.