Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Plankaparket í miklu úrvali Burstað, lakkað, olíuborið, hand- heflað, reykt, fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket? Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ný meðferðarstöð SÁÁ í Vík á Kjalarnesi var tekin í notkun á fimmtudag í síðustu viku, 1. mars. Nánast allt starf samtakanna hef- ur nú verið flutt á höfuðborgar- svæðið en endurhæfingarstöðinni á Staðarfelli í Dölum var lokað jafn- hliða flutningum í Vík. Alls eru rúm fyrir 40 sjúklinga í nýbygg- ingunni á Vík sem er um 3.000 fer- metrar. Salarkynni eru björt og rúmgóð, og allir sjúklingar hafa eigið herbergi. Þá hefur 800 fer- metra bygging í Vík, sem var þar fyrir, verið endurnýjuð og reist viðbygging með aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Þar er pláss fyrir 21 konu sem kemur til meðferðar. Algjör aðskilnaður er þó milli kynjanna í meðferðinni. Starfið verður sérhæfðara Flutningarnir frá Staðarfelli í síðustu viku gengu greiðlega fyrir sig og tóku aðeins daginn, svo meðferð sjúklinganna raskaðist aldrei. „Við getum gert meðferð- arstarfið sérhæfðara og heildstæð- ara með aðkomu fleiri sérfræð- inga, nú þegar starfsemin er komin á nánast einn stað. Stað- arfell hefur dugað okkur vel núna í hátt í 40 ár, en að ein deild í starf- seminni sé í 200 kílómetra fjar- lægð hafði auðvitað hindranir í för með sér,“ segir Valgerður Rúnars- dóttir, yfirlæknir SÁÁ. Í starfi SÁÁ er gangurinn sá að fyrst eru sjúklingar í að meðaltali 10 daga á sjúkrahúsinu Vogi. Fara svo ef ástæða þykir til í 28 daga dvöl á Vík. „Þegar kemur að fram- haldsmeðferð er samt mikilvægt að fólk sé komið í jafnvægi, bæði varðandi líkamlega og andlega heilsu. Meðferð hér er mikil vinna með fundum, hópastarfi, viðtölum og fræðslu frá morgni til kvölds,“ segir Torfi Hjaltason, dagskrár- stjóri í Vík. Meðferðarstarfið segir hann vera í stöðugri þróun, en sú lína sem þar sé fylgt þyki gefa góða raun. Vandi margra sjúklinga er mikill Alls koma um 1.700 manns í meðferð hjá SÁÁ á ári hverju og fer þörfin vaxandi. „Framboðið af vímuefnum er mikið, áfengi er algengasta vanda- málið en annars er þetta allt í bland; ólöglegir vímugjafar og lyf. Vandi margra sjúklinga okkar er mikill og oft flókinn, bæði félags- og heilsufarslega. Aldur þeirra sem leita meðferðar er lágur, með- alaldurinn er um 35 ár, en sjúk- lingarnir eru þó á öllum aldri. Sumir þeirra yngri hafa í raun aldrei náð að fóta sig í samfélag- inu, hvorki með fjölskyldu, í námi né á vinnumarkaði. Þurfa því mikla aðstoð til að komast út í lífið að nýju ef vel á að vera,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir. Meðferðarstöð fyrir 40 sjúklinga tekin í notkun  SÁÁ í Vík  Allt á einn stað  Starfsemi hætt á Staðarfelli Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vík Nýbyggingin fremst. Fyrir er á staðnum meðferðarstöð ætluð konum. Meðferð Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir SÁÁ, og Torfi Hjaltason sem er dagskrárstjóri í Vík. Valgerður segir vanda sjúklinganna oft flókinn. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nýt met var sett í fuglamerkingum í fyrra og voru merktir 21.470 fuglar af 85 tegundum. Í fyrra komu 52 að- ilar að fuglamerkingunum. Aldrei áður hafa yfir 20.000 fuglar verið merktir hér á einu ári, að sögn Guð- mundar A. Guðmundssonar, dýra- vistfræðings hjá Náttúrufræðistofn- un Íslands. Hann hefur umsjón með fuglamerkingum fyrir hönd NÍ. Af einstökum fuglategundum var mest merkt af auðnutittlingum og voru merktir 8.784 einstaklingar af þeirri tegund. Guðmundur sagði að mikið væri merkt af spörfuglum hér á landi enda væri hægt að merkja þá allan ársins hring því margir þeirra væru staðfuglar og dveldu hér allan ársins hring. Mófuglar, sem flestir eru farfuglar, eru aðallega merktir hér sem ungar á sumrin. Algengast er að fuglarnir séu merktir með númeruðum fótmerkj- um. Þegar merktur fugl er end- urheimtur er Náttúrufræðistofnun látin vita hvar fuglinn fannst, dauður eða lifandi. Þannig er hægt að fylgj- ast með ferðalögum fuglanna. Það hefur aukist að íslenskir sjó- fuglar séu merktir með dægurritum. Það eru lítil rafræn tæki sem mæla ljós og tímasetja sólarupprás og sól- arlag hvern dag. Út frá þeim gögn- um er hægt að reikna hvar fuglinn var staddur hverju sinni og fræðast þannig um ferðir hans. Í fyrra voru 1.584 lundapysjur merktar með málmmerki í samvinnu Náttúrustofu Suðurlands og Sæ- heima í Vestmannaeyjum. Þær hafa aldrei verið fleiri síðan árið 1996. Guðmundur sagði að vonandi væri það til marks um bætta afkomu lunda. Þeir hafa líkt og margar teg- undir sjófugla á Suður- og Vest- urlandi liðið afkomubrest síðan árið 2005 vegna hruns sandsílastofnsins. Sílið er mikilvæg fæða fyrir lunda- pysjur. Guðmundur er að ganga frá skýrslu um fuglamerkingar 2017 og verður hún birt fljótlega á vef Nátt- úrufræðistofnunar Íslands (ni.is). Methafi í fuglamerkingum 2017 Ingvar Atli Sigurðsson, jarðfræð- ingur og forstöðumaður Náttúru- stofu Suðurlands í Vestmanna- eyjum, var afkastamesti fuglamerkingamaður landsins 2017. Hann merkti 3.649 fugla í fyrra. Ég merkti langmest af auðnutittling- um,“ sagði Ingvar. Hann er með nokkra fóðrara og fóðurbretti við húsið sitt í Breiðholti og líka í Vest- mannaeyjum þar sem hann heldur einnig heimili. Ingvar setur sólblómafræ í fóðrarana og það laðar að auðnutittlinga, krossnefi og fink- ur. Þá bræðir hann tólg og hellir yfir rúsínur. Fuglarnir eru sólgnir í þessa orkuríku klumpa. Einnig gef- ur hann saxaðan mör, epli og brauð. Fuglana sem Ingvar merkir fang- ar hann marga í gildru í Breiðholti í Reykjavík. Hún er með opi sem fugl- arnir fara inn um. Ingvar tínir þá svo út og merkir með fótmerki áður en þeim er sleppt. Ingvar merkti um 700 lundapysj- ur í Vestmannaeyjum í fyrra í sam- vinnu við Sæheima. Þá hefur hann merkt mikið af störum í Eyjum og Reykjavík, eitthvað af snjótitt- lingum, skógarþröstum og svart- þröstum. Einnig flækinga eins og krossnefi og eina barrfinku 2017. Ingvar hefur einnig fylgst með skrofuvarpinu í Ystakletti í Vest- mannaeyjum. Vestmannaeyjar eru eini varpstaður skrofunnar á Íslandi. Ingvar sagði að annað árið í röð hefði endurheimst merkt skrofa í Vestmannaeyjabæ sem hann hefði merkt skömmu áður sem ófleygan unga. Nýtt met sett í fjölda fuglamerkinga  Í fyrra voru merktir hér 21.470 fuglar af 85 tegundum  Aldrei áður hafa verið merktir fleiri en 20.000 fuglar á einu ári  Langmest var merkt af auðnutittlingum og voru merktir 8.784 slíkir Morgunblaðið/Golli Auðnutittlingar Fullorðinn fugl fóðrar unga í Laugardal í Reykjavík. Flestir fuglar sem merktir voru hér í fyrra voru auðnutittlingar. Auðnutittlingur er lítil finka og eru fullorðnir fuglar auðþekktir á rauðum ennisfjöðrum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.