Morgunblaðið - 07.03.2018, Page 17

Morgunblaðið - 07.03.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þingmenn úr röðum repúblikana í Bandaríkjunum hafa gagnrýnt áform Donalds Trumps forseta um að leggja verndartolla á innflutt stál og ál. Þeir óttast að verndartollarnir leiði til tollastríðs sem skaði fyrir- tæki og neytendur í Bandaríkjunum. Á meðal þeirra sem hafa deilt á verndartollastefnu Trumps er Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings. „Við höfum mjög miklar áhyggjur af afleiðingum viðskipta- stríðs og hvetjum forsetann til að láta ekki verða af þessum áformum,“ sagði talsmaður Ryans. Hann skír- skotaði til yfirlýsingar Trumps í vik- unni sem leið um að hann hygðist leggja 25% verndartoll á innflutt stál og 10% á innflutt ál. Öldungadeildarþingmaðurinn Orrin Hatch, repúblikani frá Utah, sagði að verndartollarnir myndu koma niður á bandarískum neyt- endum, hægja á hagvexti og grafa undan ávinningnum af nýlegum skattalækkunum repúblikana. „Klikkuð verndartollastefna frá átjándu öld verður til þess að banda- rískar fjölskyldur þurfa að greiða hærra verð fyrir vörurnar,“ sagði annar repúblikani, Ben Sasse, öldungadeildarþingmaður frá Nebraska. The Wall Street Journal kveðst hafa heimildir fyrir því að þingmenn repúblikana útiloki ekki þann möguleika að breyta lögum til að hindra verndartollana. Embættismenn í Hvíta húsinu hafa ítrekað sagt að ekkert land verði undanþegið verndartollunum. Trump tísti þó á Twitter að Kanada og Mexíkó kynnu að fá undanþágu frá tollunum ef löndin féllust á kröf- ur Bandaríkjastjórnar um breyt- ingar á NAFTA, fríverslunarsamn- ingi Norður-Ameríkuríkja. Hótar tollum á evrópska bíla Stjórnvöld í Kanada og Mexíkó hafa sagt að ekki komi til greina að fallast á tilslakanir í viðræðunum um breytingar á NAFTA gegn því að löndin verði undanþegin verndar- tollunum. Fyrstu viðbrögð þeirra við áformum Trumps benda til þess að þau torveldi samkomulag um NAFTA, að sögn The Wall Street Journal. Blaðið hefur eftir sérfræð- ingum í milliríkjaviðskiptum að hót- anir Trumps geti torveldað fyrir- hugaða viðskiptasamninga Banda- ríkjanna við önnur ríki og orðið til þess að erfitt verði fyrir viðsemjend- urna að fallast á tilslakanir. Embættismenn Evrópusam- bandsins hafa sagt að ef Trump leggur verndartolla á stál- og álinn- flutninginn ætli það að svara með 25% tollum á innflutning á ákveðnum varningi frá Bandaríkj- unum, m.a. Harley Davidson- vélhjólum, viskíi og gallabuxum. Innflutningurinn á varningnum nemur alls 3,5 milljörðum dollara á ári. Trump hefur sagt að ef ESB geri þetta ætli hann að leggja tolla á innflutning á bílum frá aðildar- ríkjum sambandsins. Bandaríkin eru stærsti markaðurinn fyrir bíla frá ESB-löndum, þangað fara um 25% af öllum bílaútflutningi þeirra. Hagfræðingar hafa varað við því að verndartollar á innflutt stál og ál geti aukið kostnað bandarískra verksmiðja sem nota málmana til að framleiða bíla, vélar og annan varn- ing. Starfsmenn þessara fyrirtækja eru alls 6,5 milljónir, en aðeins 140.000 manns starfa í stálverk- smiðjunum sem Trump leggur áherslu á að vernda. Repúblikanar deila á tolla Trumps  Óttast að áform Trumps um verndartolla leiði til viðskiptastríðs sem skaði fyrirtæki og neytendur í Bandaríkjunum  „Klikkuð verndartollastefna frá átjándu öld,“ segir einn þingmanna repúblikana Bandaríkin eru stærsti stálinnflytjandi heimsins 1 Kanada 16% af innflutningnum Stálinnflutningur Bandaríkjamanna Heimild: IHS GLobal Inc/Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna Helstu lönd sem selja Bandaríkjunum stál 2 Brasilía 13% *Jan. til sept. 2017 Stálinnflutningur Bandaríkjanna árið 2016 1 milljón eða meira 400.000 – 1 milljón 200.000 – 400.000 100.000 – 200.000 Minna en 100.000 Tonn 3 Suður-Kórea 10% 4 Mexíkó 9% 5 Rússland 9% 6 Tyrkland 9% 7 Japan 5% 8 Taívan 4% 9 Þýskaland 3% 10 Indland 2% Skaða bandamenn » Leggi Trump verndartolla á innflutt stál og ál koma þeir niður á mörgum löndum sem hafa verið á meðal helstu sam- starfslanda Bandaríkjanna. » Aðeins um 2% af öllum stál- innflutningi Bandaríkjanna koma frá Kína. » Trump hefur sagt að vernd- artollar á innflutt stál verði til þess að störfum í bandarískum stálverksmiðjum fjölgi mjög en sérfræðingar draga það í efa. » Störfum í bandarískum stál- verksmiðjum fækkaði um þrjá fjórðu á árunum 1962 til 2005, aðallega vegna tækniframfara sem urðu til þess að fram- leiðnin á hvern starfsmann fimmfaldaðist – ekki vegna frjálsra viðskipta. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogi einræðisstjórnarinnar í Norður-Kóreu, Kim Jong-un, hefur sagt sendinefnd frá Suður-Kóreu að hann vilji hefja viðræður við stjórn- völd í Bandaríkjunum um samning sem fæli í sér að Norður-Kóreumenn afsöluðu sér kjarnavopnum gegn því að öryggi einræðisstjórnarinnar yrði tryggt. Þjóðaröryggisráðgjafi stjórnvalda í Suður-Kóreu, Chung Eui-yong, skýrði frá þessu í gær. Hann sagði að Kim hefði einnig sagt að hann vildi eiga fund með forseta Suður-Kóreu, Moon Jae-in, í apríl. Viðbrögð Don- alds Trumps Bandaríkjafor- seta við tíðindun- um voru var- færnisleg. Bandarískir emb- ættismenn hafa látið í ljós efa- semdir um þíðuna sem hefur verið í samskiptum Kóreuríkjanna að undanförnu og telja að markmið ein- ræðisstjórnarinnar með því að bæta samskipti landanna tveggja sé að reka fleyg á milli Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Suðurkóreskir sérfræðingar í mál- efnum Norður-Kóreu eru efins um að einræðisstjórnin sé í raun og veru tilbúin að afsala sér kjarnavopnum. „Þetta eru eintóm látalæti og brella til að komast hjá refsiaðgerðum,“ sagði einn þeirra, Yoo Dong-ryul. „Norður-Kóreustjórn hefur aldrei staðið við neina samninga sem hún hefur undirritað.“ Suðurkóreskur sérfræðingur í ör- yggismálum, Kim Dong-yub, sagði að Norður-Kóreustjórn kynni að reyna að reka fleyg á milli Banda- ríkjamanna og Suður-Kóreumanna með því að krefjast þess að öryggis- tryggingin fæli meðal annars í sér að bandarískir hermenn færu frá Suður-Kóreu. Hafa efasemdir um tilboð N-Kóreu um viðræður  Kim segist ljá máls á því að afsala sér kjarnavopnum Kim Jong-un

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.