Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þingmenn úr röðum repúblikana í
Bandaríkjunum hafa gagnrýnt
áform Donalds Trumps forseta um
að leggja verndartolla á innflutt stál
og ál. Þeir óttast að verndartollarnir
leiði til tollastríðs sem skaði fyrir-
tæki og neytendur í Bandaríkjunum.
Á meðal þeirra sem hafa deilt á
verndartollastefnu Trumps er Paul
Ryan, forseti fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings. „Við höfum mjög miklar
áhyggjur af afleiðingum viðskipta-
stríðs og hvetjum forsetann til að
láta ekki verða af þessum áformum,“
sagði talsmaður Ryans. Hann skír-
skotaði til yfirlýsingar Trumps í vik-
unni sem leið um að hann hygðist
leggja 25% verndartoll á innflutt stál
og 10% á innflutt ál.
Öldungadeildarþingmaðurinn
Orrin Hatch, repúblikani frá Utah,
sagði að verndartollarnir myndu
koma niður á bandarískum neyt-
endum, hægja á hagvexti og grafa
undan ávinningnum af nýlegum
skattalækkunum repúblikana.
„Klikkuð verndartollastefna frá
átjándu öld verður til þess að banda-
rískar fjölskyldur þurfa að greiða
hærra verð fyrir vörurnar,“ sagði
annar repúblikani, Ben Sasse,
öldungadeildarþingmaður frá
Nebraska. The Wall Street Journal
kveðst hafa heimildir fyrir því að
þingmenn repúblikana útiloki ekki
þann möguleika að breyta lögum til
að hindra verndartollana.
Embættismenn í Hvíta húsinu
hafa ítrekað sagt að ekkert land
verði undanþegið verndartollunum.
Trump tísti þó á Twitter að Kanada
og Mexíkó kynnu að fá undanþágu
frá tollunum ef löndin féllust á kröf-
ur Bandaríkjastjórnar um breyt-
ingar á NAFTA, fríverslunarsamn-
ingi Norður-Ameríkuríkja.
Hótar tollum á evrópska bíla
Stjórnvöld í Kanada og Mexíkó
hafa sagt að ekki komi til greina að
fallast á tilslakanir í viðræðunum um
breytingar á NAFTA gegn því að
löndin verði undanþegin verndar-
tollunum. Fyrstu viðbrögð þeirra við
áformum Trumps benda til þess að
þau torveldi samkomulag um
NAFTA, að sögn The Wall Street
Journal. Blaðið hefur eftir sérfræð-
ingum í milliríkjaviðskiptum að hót-
anir Trumps geti torveldað fyrir-
hugaða viðskiptasamninga Banda-
ríkjanna við önnur ríki og orðið til
þess að erfitt verði fyrir viðsemjend-
urna að fallast á tilslakanir.
Embættismenn Evrópusam-
bandsins hafa sagt að ef Trump
leggur verndartolla á stál- og álinn-
flutninginn ætli það að svara með
25% tollum á innflutning á
ákveðnum varningi frá Bandaríkj-
unum, m.a. Harley Davidson-
vélhjólum, viskíi og gallabuxum.
Innflutningurinn á varningnum
nemur alls 3,5 milljörðum dollara á
ári. Trump hefur sagt að ef ESB
geri þetta ætli hann að leggja tolla á
innflutning á bílum frá aðildar-
ríkjum sambandsins. Bandaríkin
eru stærsti markaðurinn fyrir bíla
frá ESB-löndum, þangað fara um
25% af öllum bílaútflutningi þeirra.
Hagfræðingar hafa varað við því
að verndartollar á innflutt stál og ál
geti aukið kostnað bandarískra
verksmiðja sem nota málmana til að
framleiða bíla, vélar og annan varn-
ing. Starfsmenn þessara fyrirtækja
eru alls 6,5 milljónir, en aðeins
140.000 manns starfa í stálverk-
smiðjunum sem Trump leggur
áherslu á að vernda.
Repúblikanar deila á tolla Trumps
Óttast að áform Trumps um verndartolla leiði til viðskiptastríðs sem skaði fyrirtæki og neytendur
í Bandaríkjunum „Klikkuð verndartollastefna frá átjándu öld,“ segir einn þingmanna repúblikana
Bandaríkin eru stærsti stálinnflytjandi heimsins
1
Kanada
16% af
innflutningnum
Stálinnflutningur Bandaríkjamanna
Heimild: IHS GLobal Inc/Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna
Helstu lönd sem selja
Bandaríkjunum stál
2
Brasilía
13%
*Jan. til sept. 2017
Stálinnflutningur
Bandaríkjanna
árið 2016
1 milljón eða meira
400.000 – 1 milljón
200.000 – 400.000
100.000 – 200.000
Minna en 100.000
Tonn
3
Suður-Kórea
10%
4
Mexíkó
9%
5
Rússland
9%
6
Tyrkland
9%
7
Japan
5%
8
Taívan
4%
9
Þýskaland
3%
10
Indland
2%
Skaða bandamenn
» Leggi Trump verndartolla á
innflutt stál og ál koma þeir
niður á mörgum löndum sem
hafa verið á meðal helstu sam-
starfslanda Bandaríkjanna.
» Aðeins um 2% af öllum stál-
innflutningi Bandaríkjanna
koma frá Kína.
» Trump hefur sagt að vernd-
artollar á innflutt stál verði til
þess að störfum í bandarískum
stálverksmiðjum fjölgi mjög en
sérfræðingar draga það í efa.
» Störfum í bandarískum stál-
verksmiðjum fækkaði um þrjá
fjórðu á árunum 1962 til 2005,
aðallega vegna tækniframfara
sem urðu til þess að fram-
leiðnin á hvern starfsmann
fimmfaldaðist – ekki vegna
frjálsra viðskipta.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogi einræðisstjórnarinnar í
Norður-Kóreu, Kim Jong-un, hefur
sagt sendinefnd frá Suður-Kóreu að
hann vilji hefja viðræður við stjórn-
völd í Bandaríkjunum um samning
sem fæli í sér að Norður-Kóreumenn
afsöluðu sér kjarnavopnum gegn því
að öryggi einræðisstjórnarinnar yrði
tryggt.
Þjóðaröryggisráðgjafi stjórnvalda
í Suður-Kóreu, Chung Eui-yong,
skýrði frá þessu í gær. Hann sagði að
Kim hefði einnig sagt að hann vildi
eiga fund með forseta Suður-Kóreu,
Moon Jae-in, í apríl.
Viðbrögð Don-
alds Trumps
Bandaríkjafor-
seta við tíðindun-
um voru var-
færnisleg.
Bandarískir emb-
ættismenn hafa
látið í ljós efa-
semdir um þíðuna
sem hefur verið í
samskiptum Kóreuríkjanna að
undanförnu og telja að markmið ein-
ræðisstjórnarinnar með því að bæta
samskipti landanna tveggja sé að
reka fleyg á milli Bandaríkjanna og
Suður-Kóreu.
Suðurkóreskir sérfræðingar í mál-
efnum Norður-Kóreu eru efins um
að einræðisstjórnin sé í raun og veru
tilbúin að afsala sér kjarnavopnum.
„Þetta eru eintóm látalæti og brella
til að komast hjá refsiaðgerðum,“
sagði einn þeirra, Yoo Dong-ryul.
„Norður-Kóreustjórn hefur aldrei
staðið við neina samninga sem hún
hefur undirritað.“
Suðurkóreskur sérfræðingur í ör-
yggismálum, Kim Dong-yub, sagði
að Norður-Kóreustjórn kynni að
reyna að reka fleyg á milli Banda-
ríkjamanna og Suður-Kóreumanna
með því að krefjast þess að öryggis-
tryggingin fæli meðal annars í sér að
bandarískir hermenn færu frá
Suður-Kóreu.
Hafa efasemdir um tilboð
N-Kóreu um viðræður
Kim segist ljá máls á því að afsala sér kjarnavopnum
Kim Jong-un