Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018
Félagsstarf eldri borgara
Raðauglýsingar
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og foreldramorgnar eru kl 10.30.
Prjónahópur hittist kl. 13 í sófunum hjá okkur og söngstund við
píanóið er kl. 13.45. Hlökkum til að sjá ykkur!
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimilli kirkjunnar kl. 13
til 16. Að vanda byrjum við á stólaleikfimi kl. 13.30. Eigum síðan nota-
lega stund með spjalli, handavinnu og keramikmálun fyrir þá sem
það vilja. Kaffi og með því í boði kirkjunnar kl.14.30. Velkomin.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Söngstund með Helgu. Opið
hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Sími 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Harmonikkuspil og söngur
kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Myndlist kl. 9-12.
Tölvu- og snjallsímaaðstoð frá kl. 9.30-10.10. Morgunkaffi kl. 10-10.30.
Botsía kl. 10.40-11.20. Glerlist kl. 13-16. Spiladagur, frjáls spilamenn-
ska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Breiðholtskirkja Eldri borgara starf í Breiðholtskirkju kl. 13.15.
Handavinna, spil og spjall. Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudögum kl. 13, Svava Kristín
Ingólfsdóttir kemur með barnakórinn og þau syngja fyrir okkur.
Athugið að ferðin á Akranes er miðvikudaginn 14. mars. Kaffið góða á
sínum stað. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Dalbraut 18-20 Samverustund með sr. Davíð Þór kl.14, verslunar-
ferð í Bónus kl. 14.40.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2749 -
loggildurmalari@gmail.com
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
SIGURVEIG GEORGSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést 4. mars.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
föstudaginn 9. mars klukkan 11.
Lárus Þorv. Guðmundsson
Georg Kr. Lárusson Vala Agnes Oddsdóttir
Ragnheiður Lárusdóttir
Özur Lárusson Margrét Ása Sigfúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Mín fyrstu kynni
af Atla voru þegar
við réðum hann til
starfa hjá Hug hf.
rétt fyrir síðustu
aldamót. Samstarfsmaður okkar
hafði mælt með honum. Þetta voru
mikil uppgangsár í okkar geira,
upplýsingatækninni. Starfsmönn-
um fjölgaði jafnt og þétt og við-
skiptavinirnir kölluðu eftir meiri
og meiri þjónustu. Við höfðum
fram að þessu einbeitt okkur að
tækniþjónustunni en minna hafði
farið fyrir því að kenna á nýju
kerfin sem við vorum að setja í
gang hjá viðskiptavinum. Atli var
einmitt ráðinn til þess að sinna
þeim verkefnum. Skemmst er frá
því að segja að Atli var fljótur að
vinna traust bæði samstarfsmanna
og viðskiptavina. Allir áttuðu sig
fljótt á því að hann bjó yfir mikilli
þekkingu á bókhaldi og hvernig
best væri að haga verklagi þannig
að kerfin sem verið var að innleiða
myndu nýtast sem best. Viðmót
Atla einkenndist af ljúfmennsku
og græskulausum húmor. Ég veit
að hann eignaðist marga góða fé-
laga á þessum árum.
Atli var Bliki – með mjög
stórum staf! Vann ómælda vinnu
fyrir félagið sitt í ótal verkefnum.
Hitti hann reglulega í nokkur sum-
ur þegar dóttir mín var að keppa á
Símamótinu í Kópavoginum þar
sem hann stóð vaktina fyrir félagið
sitt. Fótboltinn var sameiginlegt
áhugamál okkar Atla. Við hittumst
alltaf á vellinum þegar Blikar og
KR mættust og hann minnti mig
alltaf á það með góðum fyrirvara
að nú styttist í leikinn, hvort ég
væri ekki klár?
Nú er komið að leikslokum hjá
Atla, þau urðu alltof fljótt. Minn-
ing lifir um ljúfmenni sem gaf sig
alltaf að fullu í verkefnin. Aðstand-
endum færi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Gunnar Ingimundarson.
Það kom sem reiðarslag þegar
ég frétti af andláti míns gamla og
Atli Heiðar
Þórsson
✝ Atli HeiðarÞórsson fædd-
ist 12. nóvember
1959. Hann lést 27.
febrúar 2018.
Útför Atla fór
fram 5. mars 2018.
góða vinar, Atla.
Aldrei fréttist af
honum annað en að
allt væri í góðu lagi
enda var hann mað-
ur sem leit á björtu
hliðarnar og hafði
gaman af lífinu.
Við Atli kynnt-
umst fyrir nokkrum
árum þegar við hóf-
um nám í Versló og
náðum strax mjög
góðu sambandi. Hvort það var
vegna ættartengsla okkar beggja
við Vestmannaeyjar, áhugi á
íþróttum eða annað þá var vin-
skapur okkar alltaf einstaklega
góður þó samskiptin á fullorðins-
árum hefðu mátt vera reglulegri.
Minningarnar hrannast upp
þegar hugsað er til fyrri ára, hvort
sem þær tengjast skólaárunum,
skemmtanahaldi, útilegum,
þjóðhátíðum eða utanlandsferð-
um með góðum félögum.
Það er ekki langt síðan við hitt-
umst nokkrir skólafélagarnir og
áttum góða kvöldstund og ákveðið
var að alls ekki mætti líða eins
langur tími í næsta hitting. Sá
hittingur verður nú heldur öðru-
vísi en reiknað var með en minn-
ingin um góðan félaga verður allt-
af með okkur.
Atli var einstaklega tryggur
trúnaðarvinur og ég er þakklátur
fyrir allar samverustundirnar og
símtölin sem við áttum saman.
Ég sendi ættingjum og stórum
vinahópi Atla mínar bestu samúð-
arkveðjur.
Guðjón Þór Victorsson.
Farðu í friði góði vinur
þér fylgir hugsun góð og hlý
sama hvað á okkur dynur
aftur hittumst við á ný.
(Magnús Eiríksson)
Atli Þórsson var vinur minn.
Hann var vandaður maður og fór
ekki í manngreinarálit. Hann var
ekki maður margra orða þó hann
hafi sannarlega haft skarpar og
skýrar skoðanir á hlutunum og lét
ekki sitt eftir liggja í rökræðum
um hin ýmsu málefni. Hann var
málafylgjumaður og ef hann batt
tryggð sína við eitthvert málefni
þá máttir þú vita að hann myndi
verja þann málstað. Hann var
Bliki fram í fingurgóma, var fórn-
fús og taldi ekki eftir sér að
leggja fram vinnustundir til fé-
lagsins síns þegar þess var óskað.
Breytti þá engu hvort um var að
ræða að vinna á gull- og silfur-
mótinu eða vera í meistaraflokks-
ráði karla eða kvenna. Hann vann
jafnt fyrir alla.
Þær eru ófáar veislurnar sem
við Atli sóttum bæði og ber tvær
þeirra hæst. Annars vegar
uppskeruhátíð knattspyrnudeild-
ar Breiðabliks þar sem við Atli
stigum „brúðardans“ með mikl-
um stæl. Hitt var partíið sem stóð
í sólarhring og Atli var fremstur
meðal jafningja þegar vinirnir
tóku atriði úr kvikmyndinni The
Full Monty. Þetta eru stundir
sem eru algjörlega ógleymanleg-
ar þeim sem voru viðstaddir.
Það var aldrei neitt vesen á
Atla og það var svo sem alveg
dæmigert af honum að kveðja
eins og hann gerir nú. Skyndilega
og án fyrirvara. Atla Heiðars
Þórssonar verður saknað. Minn-
ing hans lifir.
Ingibjörg Hinriksdóttir.
Það var ónotaleg tilfinning
sem greip okkur þegar Atli
mætti ekki til vinnu án þess að
boða forföll. Hann var eins og
klukka og lét sig aldrei vanta,
hvort sem það var í vinnu eða á
aðrar samkomur með okkur
vinnufélögunum hjá Hafnar-
fjarðarbæ. Lífið er stundum
óvænt og ósanngjarnt að okkur
finnst og það á svo sannarlega við
um skyndilegt fráfall Atla.
Atli var drengur góður og það
var ávallt stutt í hláturinn. Hann
ljómaði í hvert sinn sem Breiða-
blik eða Manchester United unnu
leik en aldrei ljómaði hann jafn
skært og þegar hann talaði um
frænkur sínar og börnin þeirra.
Þau áttu hug hans og hjarta og
hann sinnti þeim sem væru hans
eigin börn og barnabörn. Þeirra
missir er mikill.
Atli skilur eftir sig skarð í hug-
um okkar vinnufélaganna. Minn-
ing hans er góð og hún mun lifa
með okkur um ókomna tíð.
Við vinnufélagarnir og vinir
hjá Hafnarfjarðarbæ kveðjum
Atla með söknuði og vottum
Árna, Kittý, Eyrúnu og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu sam-
úð. Megi Guð styrkja ykkur í
sorginni.
Rósa Steingrímsdóttir.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Lífið er undarlegt. Atli er lát-
inn án nokkurs fyrirvara eða und-
irbúnings fyrir okkur samferða-
fólkið. Atli sá um rekstrarmálin
fyrir okkur á Fjölskylduþjónustu
Hafnarfjarðar í hátt í áratug.
Hann var lengi starfsmaður skrif-
stofu Fjölskylduþjónustunnar og
setti sinn svip á starfsmannahóp-
inn. Hann var vel að sér í mála-
flokknum og hægt að treysta á
hans sýn, þekkingu og dómgreind
þegar kom að margvíslegum álita-
málum. Atli var réttsýnn og mik-
ilvægur hlekkur í starfi Fjöl-
skylduþjónustunnar.
Atli var góður félagi, með góða
kímnigáfu og hafði unun af því að
vera innan um fólk. Hann lét sig
aldrei vanta þegar við gerðum
okkur glaðan dag á vinnustaðnum
og skemmti sér alltaf vel. Atli var
einstaklega félagslyndur og var
félagi í Kiwanis og Oddfellow,
mikill íþróttaáhugamaður, tók
þátt í starfi Breiðabliks og hafði
skoðanir á stjórnmálum. Sjálf-
stæðisflokkurinn var hans flokkur
og fór hann ekki leynt með það.
Það sem ekki síst er að minnast
í fari Atla er væntumþykja hans
og umhyggja gagnvart bróður-
dætrunum og börnum þeirra.
Ófáar sögurnar sagði Atli af þess-
um kæru frænkum og börnum
þeirra. Hann sýndi myndir af
þeim og sagði af þeim skemmti-
sögur. Hann ljómaði af gleði þeg-
ar hann sagði okkur frá ýmsum
atburðum í þeirra lífi.
Góður drengur er farinn og er
hans sárt saknað. Við þökkum
fyrir samfylgdina og sendum
samúðarkveðjur til hans nánustu.
F.h. Fjölskylduþjónustu Hafn-
arfjarðar,
Rannveig Einarsdóttir
sviðsstjóri.
Í dag kveð ég vin
minn Skúla og lang-
aði mig til að skrifa
nokkur orð og
þakka fyrir okkar
vináttu. Hann og Ásta áttu heima
í næsta húsi við ömmu mína og
afa og þegar hann sá mig koma
heim úr skólanum kallaði hann
alltaf á mig til að gefa mér nammi
því hann sagði að Ásta ætti alltaf
nammi í búrinu. Ég sagði nú ekki
Þorsteinn Skúli
Bjarnason
✝ Þorsteinn SkúliBjarnason
fæddist 19. júní
1927. Hann lést 17.
febrúar 2018.
Útför Skúla fór
fram 2. mars 2018.
nei við því. Seinna
eftir að við fluttum
upp á Jóffa og ég
labbaði framhjá
húsinu þeirra á
hverjum degi á leið
heim úr Flensborg
stoppaði ég oft hjá
þeim ef þau voru ut-
an dyra og hafði
Skúli alltaf áhuga á
hvað var að gerast í
mínu lífi. Alltaf þótti
mér vænt um að hann gaf sér
tíma til að tala við mig og þó
stundum bara að við veifuðum
hvort til annars ef þau hjónin
sátu inni í stofu. Ég þakka fyrir
að hafa átt Skúla að góðum vin.
Guðbjörg Rúnarsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær
sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður,
en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar