Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 07.03.2018, Síða 30
Bernharður, Gísli Þór Ólafs- son og fjórir Ví- etnamar en for- vitnilegar smásögur um ástir og átök eru eftir Orkneying- inn George MacKay Brown, Þórdísi Helga- dóttur og Steinunni Lilju Emils- dóttur. Ritstjóri þessa heftis er Silja Að- alsteinsdóttir, sem í tvígang hefur verið ritstjóri TMM. Hún „brúar hér bilið“ eftir að ritstjórinn Guð- mundur Andri Thorsson var kjör- inn á þing og þar til nýr ritstjóri verður ráðinn. Út er komið Tímarit Máls og menn- ingar, fyrsta hefti ársins. Flaggskip heftisins er ljóð eftir Þorstein frá Hamri sem lést fyrir skömmu. Hann valdi það sjálfur til að halda upp á áttræðisafmæli sitt sem hefði verið hinn 15. mars, en eins og seg- ir í tilkynningu „er það nú kveðja hans til okkar allra“. Annað dýrmætt efni í heftinu eru tvö ljóðabréf frá Ara Jósefssyni sem féll sviplega frá ungur árið 1964. Jón Kalman Stefánsson fann þessi ljóðabréf í fórum móðursystur sinnar, Jóhönnu Þráinsdóttur, og fylgir þeim eftir með grein. Meðal höfunda skáldskapar í hefðinu eru Alda Björk Valdimars- dóttir, Tóroddur Poulsen, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Bjarni Fjölbreytilegt efni í nýju hefti TMM Þorsteinn frá Hamri 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur fyrir heimilið Stærð 232 cm | Verð 299.000 kr. Stærð 202 cm | Verð 275.000 kr. Stærð 172 cm | Verð 235.000 kr. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alþjóðlega svartmálmshátíðin Ora- tion MMXVIII verður haldin á skemmtistaðnum Húrra 7. og 8. mars og 9. mars í Listasafni Reykja- víkur í Hafnarhúsi og munu 19 hljómsveitir, inn- lendar sem er- lendar, koma fram. Hátíðin hefur verið haldin síðustu tvö ár og vex með ári hverju hvað varð- ar fjölda flytj- enda og gesta. Þessi sérstaka tegund þunga- rokks, svart- málmur, hefur notið sívaxandi vin- sælda hér á landi hin síðustu ár og hafa margar íslenskar svartmálm- ssveitir sprottið fram og notið alþjóð- legrar athygli og hylli, eins og fram kemur í tilkynningu frá aðstand- endum hátíðarinnar, Stephen Lock- hart og Gunnhildi Eddu Guðmunds- dóttur sem eru kærustupar og svartmálmsunnendur. Þau segja að tónlistarhátíðin gefi svartmálm- ssveitum og fylgjendum þeirra vett- vang í Reykjavík til að koma, sjá og njóta þess nýjasta sem svartmálm- urinn hafi upp á að bjóða hér á landi. Níu erlendar hljómsveitir leika á hátíðinni: Abyssal frá Bretlandi, Aluk Todolo frá Frakklandi, holl- enska sveitin Asagraum, Devouring Star frá Finnlandi, Inferno frá Tékk- landi, Sortilegia frá Kanada, íslensk- írska sveitin Slidhr, norsku hljóm- sveitirnar Vemod og Virus. Hinar ís- lensku eru svo Abominor, Almyrkvi, Auðn, Mannveira, Misþyrming, Naðra, NYIÞ, Rebirth of Nefast, Sinmara, Slidhr og Svartidauði. Há- tíðin er styrkt af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði, ÚTÓN og sendiráðum Kanada og Noregs á Íslandi. Framleiðir og leikur Stephen er framkvæmdastjóri há- tíðarinnar en hann er líka hljóð- vinnslumaður og rekur hljóðstúdíóið Studio Emissarry í Reykjavík. Stephen hefur átt sinn þátt í vaxandi vinsældum íslensks svartmálms á er- lendri grundu því hann hefur tekið upp tónlist margra íslenskra svart- málmssveita, m.a. Svartadauða, Sin- mara og Auðnar, allt frá árinu 2008. Hann segir að smám saman hafi hljómsveitunum fjölgað sem tóku upp hjá honum en hann hafi líka sjálfur leikið í svartmálmssveitum, Sinmara, Slidhr og Rebirth of Ner- fast en sú síðastnefnda er í raun sóló- verkefni hans. „Þannig að ég hef framleitt ansi mikið af svartmálms- tónlistinni sem komið hefur frá Ís- landi á síðustu árum,“ segir Stephen. Margar málmtegundir Áður en lengra er haldið er kannski betra að útskýra fyrir þeim lesendum sem ekki vita hvað svart- málmur er, „black metal“ á ensku, og hver munurinn er á þeirri tónlist og „metal“ þungarokki, málmtónlist. Stephen segir að jafnan sé meiri áhersla lögð á drungalegt andrúms- loft í svartmálmi en málmi. „Dauða- málmur er til dæmis með meiri áherslu á hraða eða þyngd en svart- málmur getur verið hvort tveggja hraður eða þungur en líka hægur. Oftast er áherslan – og mér finnst að hún ætti að vera þar – á andrúmsloft frekar en að spila eins hratt og mað- ur getur eða á þunga,“ útskýrir Stephen. – Maður þarf að þekkja vel til málmsins til að heyra muninn á milli greina hans, ekki satt? „Jú. Ef þú hlustar ekkert á málm heyrirðu kannski ekki muninn á Met- allicu og svartmálmsbandi, fólk heyr- ir þá líklega bara hávaða,“ segir Stephen kíminn en lesendum til upp- lýsingar flokkast Metallica sem þrasssveit en þrass er ein af greinum málmsins. Stephen segir í framhaldi af þessu að undirgreinar málmsins eða teg- undir séu margar og ekki fyrir hvern sem er að átta sig á þeim öllum. „Það eru t.d. margir sem hlusta bara á svartmálm og svo margir sem hlusta bara á ákveðna tegund svartmálms,“ segir hann. Það séu því undirflokkar í flokkunum eða undirgreinar í grein- unum. Frægð í ólíkum kimum „Í fyrra var mikil þröng á þingi,“ segir Stephen sposkur, spurður út í aðsóknina að hátíðinni. Hún var, með öðrum orðum, einkar góð og erlendir gestir í meirihluta enda Íslendingar lengi að taka við sér þegar kemur að miðakaupum á tónlistarhátíðir, eins og þekkt er. – Eru einhverjar sveitir þekktari en aðrar af þeim erlendu sem koma fram á hátíðinni í ár? „Já, Virus er býsna þekkt og hin síðustu ár Vermod en eins og ég segi þá er frægðin á ólíkum stigum í heimi svartmálmsins. Þetta er mjög af- markaður tónlistarkimi,“ svarar Stephen og bendir á að plötusala sé til dæmis ekki mælikvarði á vinsæld- ir svartmálmssveita. Þær geti notið mikilla vinsælda í ákveðnum kreðs- um þótt fáir utan þeirra hafi heyrt á þær minnst. Stephen er að lokum spurður hvort hátíðin sé ekki kjörið tækifæri til að kynna sér svartmálminn og svarar hann því til að vissulega sé hún það. Fólk megi ekki láta drunga- legt útlit og framkomu flytjenda hræða sig eða blekkja. Stemningin á tónleikum svartmálmssveitar sé lík- ari þeirri sem er á klassískum tón- leikum en reifi (e. „rave“). Miðasala á Oration MMXVIII fer fram á tix.is. Drungalegt andrúmsloft og notaleg stemning  Svartmálmstónlistarhátíðin Oration haldin í þriðja sinn  19 hljómsveitir koma fram, innlendar og erlendar  Minnir meira á klassíska tónleika en reif segir framkvæmdastjóri hátíðarinnar Ljósmynd/Woda i Pustka Óárennilegir Félagarnir í svartmálmssveitinni Rebirth of Nefast á síðustu Oration-hátíð, þeirri sem haldin var í fyrra. Hljómsveitin leikur einnig í ár. Stephen Lockhart

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.