Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.03.2018, Qupperneq 31
Að geta sett sig í spor annarra Ljósmynd/Hörður Sveinsson Hæfileikar „Oddur og Siggi eru einstaklega hæfileikaríkir listamenn með mikinn sviðssjarma,“ segir um leikarana Odd Júlíusson (t.h.) og Sigurð Þór Óskarsson sem sýnt hafa sýninguna Oddur og Siggi víðsvegar um landið. lítilsvirðingu sína gagnvart þol- endum, skoðunum þeirra og þörf- um, gerendur halda upplýsingum meðvitað frá þolendum, baktala þá, stríða þeim og leyfa sér að öskra á þá og niðurlægja. Oddur, Sigurður Þór og Björn Ingi nálgast þetta vandasama um- fjöllunarefni af virðingu og innsæi, en ekki síður húmor – enda marg- sannað að hláturinn er besta leiðin að hjarta áhorfenda. Umgjörð sýn- ingarinnar, sem er tæplega klukkustundarlöng, er nokkurs konar uppistand eða skemmti- dagskrá þar sem Oddur og Siggi fagna 10 ára vinaafmæli sínu. Tveir hljóðnemar fremst á sviðinu nýtast til að fara í „vinaleikinn“ þar sem kannað er hversu vel leik- ararnir tveir þekkjast í raun. Fljótlega hættir upprifjunin að snúast eingöngu um sameig- inlega fortíð Odds og Sigga og brestur á með margvíslegum frá- sögnum úr grunnskólanum þar sem stríðni og einelti kemur við sögu, bæði í raunheimum og staf- rænum. Áhrifarík var senan þar sem gerandi eineltis hitti í fyrsta sinn þolanda sinn í raunheimum. Einnig var upplýsandi og þarft að minna á að það eru ekki aðeins nemendur sem leggja hver annan í einelti, því gerandinn getur líka leynst í hópi kennara. Oddur og Siggi eru ein- staklega hæfileikaríkir listamenn með mikinn sviðssjarma. Strax á upphafsmínútum sýningarinnar fanga þeir athygli áhorfenda svo um munar með skemmtilegri keppni um hvor geti staðið lengur á höndum, hittni Odds og vínberja- át Sigga vakti bæði aðdáun og kát- ínu og flutningur þeirra á frum- sömdu lokalagi féll augljóslega í kramið hjá leikhúsgestum sem svöruðu umsvifalaust kalli fyrr í sýningunni þegar óskað var eftir orðum fyrir tónlistarspuna sem þeir félagar frömdu á sviðinu. Eðli málsins samkvæmt bregða Oddur og Siggi sér í marg- vísleg hlutverk í þeirri brota- kenndu frásögn sem matreidd er. Siggi fór hreinlega á kostum sem spyrill, með sérstakt dálæti á puls- um, í skemmtiþætti sínum í sjón- varpssal. Og Oddur brá sér létti- lega í hlutverk jafnt kennara og grunnskólastúlku. Undir styrkri stjórn Björns Inga tekst vel að halda utan um hinn lausbeislaða spuna sem liggur í margar skemmtilegar áttir og nær undan- tekningarlaust tekst að flétta mik- ilvægum upplýsingum, um t.d. nauðsyn þess að segja frá einelti, inn í framvinduna án þess að það virki eins og kennsluleikrit. Það gagnast sennilega einhverjum að heyra að munur sé á því að kjafta frá, til að koma einhverjum í vand- ræði, og segja frá, til að koma ein- hverjum úr vandræðum. Sýningin Oddur og Siggi er fyrirtaksleið til að brjóta ísinn í umræðunni um einelti og mik- ilvægi þess að geta sett sig í spor annarra. Minnt er á að gerendur eineltis stjórnast yfirleitt af ótta og eigin vanlíðan sem vinna þarf með af fullri alvöru eigi að vera hægt að uppræta eineltið – enda skila innantómar afsökunarbeiðnir litlu ef framkoman breytist ekki til frambúðar. Oddur og Siggi er þriðja sýn- ingin úr smiðju Björns Inga síðan hann var ráðinn til að sjá um barna- og fræðslustarf Þjóðleik- hússins árið 2016, en áður hefur hann sviðsett Lofthrædda örninn hann Örvar með Odd í aðal- hlutverki og Ég get. Allt eru þetta vandaðar sýningar sem bera leik- stjóra sínum fagurt vitni. Vonandi fær Björn Ingi tækifæri til að skapa fleiri úrvalssýningar fyrir ólíka aldurshópa á komandi miss- erum. » Þannig hefur ein-elti neikvæð áhrif á sjálfsmat þolenda og eykur líkurnar á þung- lyndi, einangrun og ein- semd meðan gerendur eru líklegri til að leiðast úr í vímuefnaneyslu og afbrot. Niðurstaðan er sú að allir tapa á einelti. AF LEIKLIST Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Eftirvæntingin var mikil þegar grunnskólabörn af höfuðborgar- svæðinu lögðu leið sína í Þjóðleik- húsið í síðustu viku til að sjá á Stóra sviðinu leiksýninguna Odd og Sigga úr smiðju leikaranna Odds Júlíussonar og Sigurðar Þórs Óskarssonar og leikstjórans Björns Inga Hilmarssonar. Sýn- ingin var frumsýnd á Ísafirði í október og hefur síðan farið í hringferð um landið sem lauk í höfuðborginni nú í marsmánuði. Þetta er önnur hringferð Þjóðleik- hússins á jafnmörgum árum (sú fyrri var farin með Lofthrædda örninn hann Örvar) og á leikhúsið hrós skilið fyrir að sinna börnum og ungmennum landsins af miklum metnaði með vönduðum og skemmtilegum sýningum. Í sýningunni Oddi og Sigga, sem ætluð er grunnskólanem- endum á aldrinum 10-14 ára, er fjallað um einelti – sem er af- skaplega þarft og mikilvægt um- fjöllunarefni. Reglulega berast dapurlegar fréttir af einelti í skól- um þar sem gerendur misnota vald sitt kerfisbundið í skjóli styrks, stærðar eða getu. Þolendum er strítt vegna t.d. útlitseinkenna og ráðist er á þá eða þeir hundsaðir og skildir út undan. Rannsóknir hafa sýnt að sé ekki gripið inn í þetta neikvæða hegðunarmunstur getur það haft geigvænlegar af- leiðingar, ekki aðeins fyrir þol- endur heldur líka gerendur. Þann- ig hefur einelti neikvæð áhrif á sjálfsmat þolenda og eykur lík- urnar á þunglyndi, einangrun og einsemd meðan gerendur eru lík- legri til að leiðast út í vímuefna- neyslu og afbrot. Niðurstaðan er sú að allir tapa á einelti. Með aukinni tölvunotkun hef- ur eineltið einnig fundið sína leið inn í samfélagsmiðlana. En einelti einskorðast ekki bara við nem- endur og menntastofnanir. Það birtist líka hjá fullorðnu fólki í stjórnmálum og atvinnulífinu þar sem gerendur fara ekki dult með MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2018 Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 29/4 kl. 16:00 26.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Faðirinn (Kassinn) Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 21/3 kl. 19:30 20.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fim 22/3 kl. 19:30 21.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Oddur og Siggi (Stóra sviðið) Mið 7/3 kl. 11:00 Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.