Morgunblaðið - 07.03.2018, Side 36
Olivier Manoury
leikur í Salnum í dag
Franski bandoneonleikarinn Olivier
Manoury leikur verk eftir Gardel,
Piazzolla, Bernstein og Monk auk eig-
in verka á tónleikum í Salnum í dag
kl. 12.15. Tónleikarnir eru liður í dag-
skrá Menningarhúsanna í Kópavogi
undir yfirskriftinni Menning á mið-
vikudögum og er aðgangur ókeypis.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 66. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Hreinsuðu blóðdropann …
2. Kanna orðróm um andlát …
3. Hvað var Jennifer Garner …
4. Vísa ásökunum Berglindar …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvartettinn
Kjarr kemur fram
á vegum Jazz-
klúbbsins Múlans
í Hörpu í kvöld kl.
21. Leiknar verða
djassperlur eftir
Monk, Hancock,
Jarrett og Swall-
ow í bland við
frumsamið efni. Sérstakur gestur er
danski trompetleikarinn Jesper
Blæsbjerg, en með honum leika Jak-
ob Hagedorn Olsen á gítar, Guðjón
Steinar Þorláksson á bassa og Jón
Óskar Jónsson á trommur.
Kjarr á Múlanum
KrakkaRÚV efnir til sögusam-
keppni fyrir krakka. Af þessu tilefni
verður Atli Sigþórsson, öðru nafni
Kött Grá Pje, í Borgarbókasafninu í
Spönginni á morgun og mánudag kl.
16-18 báða daga og aðstoðar 9-12 ára
krakka við að semja sögur
sem má senda inn í sam-
keppnina. Ókeypis að-
gangur en skrán-
ing er nauðsynleg.
Nánari upplýs-
ingar á vef
safnsins.
Kött Grá Pje stýrir
sögusmiðju barna
Á fimmtudag Norðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él, en yfirleitt létt-
skýjað sunnan- og vestantil. Frost 1 til 8 stig.
Á föstudag Suðaustan 5-13 um landið vestanvert, skýjað og dálítil
snjókoma, einkum seinnipartinn. Norðaustlæg átt annars staðar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s. Víða léttskýjað sunn-
an- og vestantil, en annars él. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.
VEÐUR
Haukar eru með
vænlega stöðu
Liverpool og Real Madrid urðu í gær-
kvöld fyrstu liðin til að tryggja sér
sæti í átta liða úrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu. Liv-
erpool var ekki í vandræðum með að
halda fimm marka forskoti sem liðið
náði í útileiknum gegn
Porto en leikur liðanna
á Anfield endaði 0:0.
Real Madrid vann Par-
ís SG öðru sinni,
nú 2:1 í Frakk-
landi, og sigr-
aði 5:2 sam-
anlagt. »2
Real Madrid og Liver-
pool í átta liða úrslit
Framundan er bikarhelgin í hand-
boltanum þar sem leikið er til und-
anúrslita á fimmtudag og föstudag
og til úrslita á laugardag, bæði í
karla- og kvennaflokki. Morgun-
blaðið fer yfir liðin átta sem taka
þátt í undanúrslitunum en í karla-
flokki mætast Haukar – ÍBV og Sel-
foss – Fram og í kvennaflokki ÍBV –
Fram og KA/Þór – Haukar. »4
Átta lið sem geta unnið
bikarmeistaratitil
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Þetta er félag sem vill stuðla að
jafnrétti, jafnvægi og framþróun.
Það eru um 300 konur skráðar í
félagið og við hittumst á við-
burðum einu sinni til tvisvar í
mánuði, höldum námskeið, förum í
fyrirtækjaheimsóknir og byggjum
tengslanet okkar á milli og inn í
atvinnulífið,“ segir Sigyn Jóns-
dóttir, hugbúnaðar- og rekstr-
arverkfræðingur og formaður
Ungra athafnakvenna (UAK). Fé-
lagið verður með UAK-daginn,
ráðstefnu tileinkaða ungum konum
í atvinnulífinu sem verður haldin í
fyrsta skipti um helgina í Norður-
ljósum Hörpu.
Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Höfum áhrif í breyttum heimi“ og
verða tekin fyrir málefni á borð
við fjórðu iðnbyltinguna og áhrifa-
miklar konur í fjölmiðlum. Meðal
gesta verða Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðn-
aðar- og nýsköpunarráðherra,
Halla Tómasdóttir, Alda Karen
Hjaltalín, frumkvöðullinn Laura
Kornhauser, Paula Gould og Eliza
Reid forsetafrú. Fundarstjóri er
Edda Hermannsdóttir.
Fyrir ungar konur
á öllum aldri
Sigyn segir að félagið sé í raun
opið öllum konum sem finnist þær
vera ungar og yngsti meðlimurinn
sé aðeins 19 ára en sú elsta um
fertugt.
„Við höfum t.d. verið með nám-
skeið um að semja um laun,
streitustjórnun og núvitund. Með
ári hverju erum við að efla vitund
ungra kvenna um félagið og þegar
við komum inn í fyrirtæki og hitt-
um stjórnendur og leiðtoga þá
finnum við að fólk veit af okkur.
Ég tel að það hafi jákvæð áhrif inn
á vinnumarkaðinn að það sé til fé-
lag ungra kvenna sem ætla sér að
sækja tækifærin og láta vita af
sér. Þegar við heimsækjum fyr-
irtæki og stofnanir eða erum með
panelumræður þá reynum við að
skora á stjórnendur og stjórn-
málamenn að taka mark á kröfum
um jöfn tækifæri kynjanna. Á ráð-
stefnunni um helgina verður
fjallað um fjórðu iðnbyltinguna,
sem er heitt umræðuefni þessa
dagana, og tekin fyrir gervi-
greind, vélmenni og gríðarmikill
vöxtur og framfarir í tækni. Þá
verður á dagskrá staða kvenna
innan þessarar nýju iðnbyltingar,
en í námsgreinum og störfum í
tæknigeiranum eru langmest karl-
ar, og rætt hvað það geti þýtt fyr-
ir konur í framtíðinni.“
Ætla að sækja sér tækifærin
Ungar athafna-
konur með ráð-
stefnu í Hörpu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Formaður UAK Sigyn Jónsdóttir er hugbúnaðar- og rekstrarverkfræðinur, en ráðstefnan mun meðal annars fjalla
um tækni og stöðu kvenna gagnvart námi og atvinnutækifærum í framtíðinni vegna fjórðu iðnbyltingarinnar.
Félagið Ungar athafnakonur (UAK) var
stofnað í maí 2014 af Lilju Gylfadóttur
og hóf formlega störf með stofnfundi
félagsins í september sama ár. Til
marks um áhugann mættu hátt í 200
ungar konur á stofnfund UAK.
Meðlimir eru með fjölbreyttan bak-
grunn, ýmist úr atvinnulífinu eða námi. Félagið leitast við að skapa vett-
vang fyrir konur til að fræðast og efla hver aðra. Því fylgir tengslanet
kvenna sem stefna að markmiðum sínum á ýmsum sviðum. UAK vill hjálpa
meðlimum að finna styrkleika sína og fylla þátttakendur viðburða eldmóði.
Markmiðið er að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur
og þátttakendur í atvinnulífinu.
Að styrkja stöðu ungra kvenna
HÁTT Í 200 UNGAR KONUR MÆTTU Á STOFNFUND UAK
Í Hörpu Ráðstefna UAK um helgina.
Haukar eiga langbestu
möguleikana á að tryggja
sér deildarmeistaratitilinn í
Dominos-deild karla í körfu-
knattleik þegar loka-
umferðin fer fram annað
kvöld. ÍR getur þó náð topp-
sætinu af Hafnfirðingunum.
Röð efstu liðanna mun skýr-
ast endanlega í lokaumferð-
inni en þó liggur fyrir að
Keflavík verður í áttunda
sæti og mætir verðandi
deildarmeisturum. »3