Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Samræmdu könnunarprófi í ensku, sem ríflega fjögur þúsund nem- endur í níunda bekk áttu að þreyta í gærmorgun, var frestað vegna tæknilegra örðugleika. Sömu vandamál komu upp og þegar ís- lenskuhluta prófsins var frestað á miðvikudaginn. Mikil óánægja hefur brotist út meðal nemenda og foreldra þeirra enda liggur mikill undirbúningur að baki hjá mörgum. Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varma- hlíðarskóla, telur að niðurstöður úr prófi gærdagsins geti vart talist marktækar. „Í raun dáumst við að nemend- um sem sýndu stillingu en mörg- um var auðvitað órótt innra með sér. Þessar aðstæður eru bara sár- grætilegar. Nemendur duttu inn og út úr prófinu og þegar þeir voru inni voru þeir farnir að hraða yfirferð sinni. Það er varla nokk- urt barn að sýna fyllilega getu sína við þessar aðstæður. Við lögðum til að allir nemendur okkar hættu próftöku en hluti nemenda hér vildi ljúka prófi og fékk að gera það.“ Hún segist vona að tekin verði skynsamleg ákvörðun á fundi menntamálaráðherra með for- stjóra Menntamálastofnunar og hagsmunaðilum í næstu viku. „Eins og unnið er úr niðurstöð- um samræmdra prófa finnst okkur það ekki geta talist samanburð- arhæft þegar próftaka klúðrast með þeim hætti sem raunin var. Grundvöllurinn, að fyrirlögnin sé sambærileg í öllum skólum, er brostinn. Ég legg til að engar nið- urstöður verði teknar saman né gefnar úr prófunum, hvorki ís- lensku né ensku. Eins verði að taka tillit til þess við mat á stærð- fræðinni þar sem prófumgjörðin frá deginum áður olli álagi. Skyn- samlegast væri að aflýsa töku prófanna fyrir þennan árgang, það er ekki meira á hann leggjandi. Svo verður bara að vinna að því að undirbúa próftöku fyrir næsta ár og taka ákvarðanir í kringum það.“ Fundað í næstu viku Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði í gær að hún væri afar ósátt við það hversu illa framkvæmd sam- ræmdra prófa hefði gengið. Hún sagði að nemendur myndu njóta vafans þegar kæmi að ákvarðana- töku um það hvort próf yrðu lögð fyrir að nýju eður ei. Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, hefur verið boðaður á fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis á mánudag ásamt starfsmönnum menntamálaráðuneytisins. Samræmdu prófunum verði aflýst í ár  Öðru samræmdu prófi á þremur dögum var frestað í gær  Mikil óánægja meðal nemenda og for- eldra  Skólastjóri vill aflýsa prófunum og segir ekki meira á árganginn leggjandi  Fundað eftir helgi Samræmt klúður? » Tveimur af þremur samræmd- um prófum sem lögð voru fyrir nemendur í 9. bekk var frestað. » Erlendur þjónustuaðili sér um tæknilega útfærslu prófanna fyr- ir Menntamálastofnun. » Þetta er þriðja árið sem prófin eru lögð fyrir með rafrænum hætti. » Menntamálaráðherra fundar um næstu skref í málinu á mið- vikudag. Það hefur verið gestkvæmt í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum síðustu daga enda er þar glæsi- legur haförn í heimsókn og til sýnis í útigerði. Örninn hefur tekið forvitnum gestum með kost- um og kynjum en það kom aðeins á hann þegar köttur bauð sér sjálfur í bæinn í gær. Kötturinn stalst í mat arnarins sem á endanum fékk nóg. Haförninn hvessti sig aðeins og þá leist kisa ekki lengur á blikuna og lét sig hverfa. Ójöfn viðureign í Húsdýragarðinum Ljósmynd/Hannes Þorsteinsson Heimilisköttur í búri hafarnar Búast má við því að veðrið verði nokkuð skaplegt víðast hvar um helgina. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem fengust frá Veðurstofunni í gærkvöld var búist við snjókomu víða vestanlands í nótt og jafnvel talsverðri ofankomu á Suðurnesjum, Snæfellsnesi og syðst á Vestfjörðum. Þá var möguleiki á snjókomu í Reykjavík. Birta á til um hádegið og gæti dagurinn í dag orðið bjartur og úrkomulítill. Hins vegar er bakki með éljum væntanlegur á Norðaust- urlandi. Á sunnudag er hins vegar spáð stífri norðaustanátt með úrkomu syðst en bjartviðri á Vesturlandi. Hiti verður á bilinu 0-5 stig með suð- urströndinni en annars í kringum frostmark. Bjart veð- ur og lítil úrkoma  Norðaustanátt í vændum á morgun Vetur Útlit er fyrir kalt en fallegt veður áfram í höfuðborginni. Ólöf Ragnarsdóttir olofr@mbl.is „Í byrjun vorum við skelkuð, við vorum á leiðinni til ókunnugs lands. En þegar við komum á flugvöllinn, þökk sé guði, þá hvarf óttinn,“ segir Anwar Alsadon, í samtali við mbl.is, en rúm vika er liðin frá því að hún flutti ásamt börnum sínum Sultan og Qamar til Ísafjarðar. Eru þau hluti flóttamannahópsins sem kom hingað til lands fyrir skemmstu, en Anwar og börn hennar eru frá Basra í suð- urhluta Íraks. Blaðamaður mbl.is hitti Anwar nýverið og ræddi með- al annars um heimkynni þeirra, lífið á Íslandi og veðrátt- una hér. Viðtalið verður birt á mbl.is um helgina. Hún segir Ísland og Íslendinga mun vinalegri en hún gat ímyndað sér í fyrstu. „Nágranni okkar barði að dyr- um og spurði hvort okkur vantaði eitthvað. Fyrir ofan okkur býr eldri kona, hún heilsar upp á okkur og spyr hvort við þurfum eitthvað. Á hverjum degi heilsar hún okkur og athugar hvort okkur vanti eitthvað,“ segir hún. Óttinn hvarf við komuna hingað  Blaðamaður mbl.is hitti flóttafólk frá Írak og ræddi m.a. um heimkynni þess og lífið hér  Birtist á mbl.is um helgina Morgunblaðið/Hallur Ísafjörður Anwar Alsadon (t.h.) kom hingað frá Írak.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.