Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 4
Nýi búnaðurinn algjör bylting í slökkvistarfi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu mun fá afhenta fjóra nýja slökkvi- liðsbíla í maí á næsta ári. Kostn- aður við bílana er rétt yfir 300 milljónir króna, en slökkviliðsbíl- arnir verða útbúnir með nýjum búnaði sem ekki hefur verið not- aður við slökkvistarf á Íslandi áð- ur. Búnaðurinn gerir slökkviliðs- mönnum kleift að úða vatni inn í brennandi rými án þess að rífa þau upp og fara sjálfir inn. „Þessi nýi búnaður er í raun og veru algjör bylting í slökkvistarfi,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Bílarnir sjálfir verða af nýrri kynslóð Scania-bíla og verða þeir sendir til Póllands þar sem þeim verður breytt í slökkviliðsbíla. Meðalaldur slökkviliðsbílanna á höfuðborgar- svæðinu er nú 19 ár og því þörf á að uppfæra flotann. Verða nýju bíl- arnir ekki bara með nýjum búnaði heldur mun hagkvæmari, t.d. verða þung tæki aðgengilegri sem minnkar líkamlegt hnjask á slökkviliðsmönnum. „Það sem er stóra byltingin fyrir okkar er það sem snýr að öryggismálum. Bæði öryggi borgaranna, því við erum að fá nýjan búnað sem gerir okkur öflugri í okkar daglega starfi, en aðallega öryggi starfsmanna,“ seg- ir Jón Viðar. Háþrýstislökkviskurðkerfi Nýju bílarnir verða allir með búnað sem heitir Cold cut cobra og er háþrýstislökkviskurðkerfi. Bún- aðurinn á uppruna sinn í Svíþjóð en sænska björgunarstofnunin SVR kom að þróun þess. „Þetta er bún- aður sem bæði sker og slekkur og hefur þetta verið í þróun síðan 1990. Þetta hefur undanfarin ár verið að slá í gegn síðan, bæði á Norðurlöndunum og í Bretlandi,“ segir Birgir Finnsson aðstoðar- slökkviliðsstjóri. Um er að ræða slökkvibyssu með tveimur gikkjum, annar þeirra leysir út íblöndunar- efni sem sker gat í gegnum veggi og hin skýtur frá sér vökva til að slökkva elda. Þannig geta slökkvi- liðsmenn byrjað að úða vökva inn í brennandi rými án þess að opna dyr eða brjóta sér leið inn en slíku fylgir oft mikil áhætta. Hefur bún- aðurinn hlotið athygli erlendis en hann nær að slá niður elda og hita- stig áður en slökkviliðsmenn ganga inn. „Þannig ertu að gera umhverf- ið bærilegra áður en þú ferð inn sem slökkviliðsmaður. Þarna ertu að slökkva í rýmum sem þú nærð ekki að slökkva í stundum án þess að rífa húsið. Þannig að þetta veld- ur bæði minna tjóni og eykur ör- yggi þeirra sem starfa við þetta,“ segir Jón Viðar. Allir slökkviliðsbílar höf- uðborgarsvæðisins hafa hingað til notast við samblöndu af vatni og froðu til að slökkva elda en nýju bílarnir munu blanda saman vatni, froðu og lofti. Slík samblanda er bæði öflugri og umhverfisvænni þar sem minni froða er notuð. Innleiðing sumarið 2019 Þegar bílarnar koma til lands- ins mun slökkviliðið hefja æfingar og prófanir á öllum tækjum áður en þeir verða teknir í notkun. Birg- ir segir að nýi búnaðurinn sé mikil breyting. „Þetta er heilmikill bún- aður sem við höfum ekki verið með áður og það er heilmikið ferli að læra á búnaðinn. Í fyrsta lagi þarf að kunna á hann og í öðru lagi í hvaða tilfellum maður notar bún- aðinn og hvernig maður nýtir hann best í slökkvistarf“. Ef allt gengur eftir verða nýju slökkviliðsbílarnir komnir í notkun haustið 2019. Morgunblaðið/Eggert Slökkvilið Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir það verða mikið ferli að læra á hinn nýja búnað. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Kjósum unga konu í bæjarstjórn! Guðbjörg Oddný Jónasdóttir 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þegar öll leyfi hafa fengist væri mögulegt að bjóða „mjög fljótlega“ út lagningu vegar og brúa á nýjum Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, allan vegarkaflann eða hluta hans. Framkvæmdir gætu hafist tveimur til þremur mánuðum síðar. Fram- kvæmdir gætu tekið þrjú ár en einnig er unnt að skipta verkinu í fjóra áfanga. Kemur þetta fram í svörum Vegagerðarinnar til Reykhóla- hrepps vegna skipulagsvinnu. Hreppsnefndin ákvað í fyrradag að leggja leiðina með ströndinni og þar með yfir fjarðarmynni Gufufjarðar og Djúpafjarðar og í gegnum Teigs- skóg til grundvallar við gerð að- alskipulags fyrir sveitarfélagið. Rétt er að taka fram að nokkrir kærufrestir eru gefnir á þeim tíma sem framundan er í skipulagsvinn- unni og þegar framkvæmdaleyfi verður gefið út. Saga þessa verk- efnis síðustu fimmtán árin sýnir að þeir sem eru andsnúnir fram- kvæmdinni hafa ýmsar leiðir til að standa á rétti sínum. Nefna má að Landvernd og hluti landeigenda í Teigsskógi hafa lýst yfir andstöðu við vegarlagningu um Teigsskóg. Af þeim sökum er ekki hægt að treysta því að hreppsnefndin geti gefið út framkvæmdaleyfi í haust, eins og hún stefnir að. Flestir þingmenn Norðvestur- kjördæmis lýstu sig fylgjandi frum- varpi sem Teitur Björn Einarsson flutti á síðasta ári um að heimila Vegagerðinni, án frekari tafa, að leggja veg um Teigsskóg. Nýtt frumvarp þessa efnis er tilbúið í þinginu en beðið hefur verið með framlagningu þess á meðan unnið hefur verið að skipulagsmálum. Gunnlaugur Pétursson, talsmaður eigenda Grafar, segir að þeir hafi enga ákvörðun tekið um framhaldið. Eyðileggur sérstöðu skógarins Gunnlaugur er óánægður með ákvörðun hreppsnefndar. Hann bendir á athugasemdir sem hann gerði í skipulagsferlinu og tekur undir bókun Karls Kristjánssonar varaoddvita sem greiddi atkvæði á móti tillögu um lagningu vegar um Teigsskóg og taldi að betur útfærð jarðgangaleið væri eina raunhæfa leiðin til að losa málið úr þeim átakafarvegi sem það hefði verið í og sætta sjónarmið umhverfis og vegagerðar. Í athugasemdum kem- ur fram sú skoðun Gunnlaugs að vegurinn muni eyðileggja sérstöðu og framtíðarnytjar Teigsskógar. Áhrifin á skóginn verði aldrei hægt að gera afturkræf með mótvægisað- gerðum. Gunnlaugur telur að færsla veg- línunnar um fáeina metra til og frá í skóginum breyti engu um þetta skemmdarverk. Ánægð með niðurstöðuna „Ég er óskaplega glöð yfir henni en ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið. Þeir sem eru á móti munu nota allar heimsins kæruleiðir til að tefja málið,“ segir Ásthildur Sturlu- dóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, þegar leitað er hennar viðbragða við samþykkt hreppsnefndar Reyk- hólahrepps. „Ég er bjartsýn á að stjórnvöld reyni að flýta þessu ferli eins og kostur er. Mér myndi hugnast það að sett yrðu lög á málið, fyrst leiðin er komin inn í aðalskipulag, eða taka landið eignarnámi,“ segir Ást- hildur. Teigsskógarkálið ekki sopið  Bjartsýn á að stjórnvöld muni flýta þessu ferli, segir bæjarstjóri Vesturbyggðar  Landeigendur í Teigsskógi hafa ekki ákveðið framhaldið  Lýsa andstöðu sinni Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Holur Eini óvegurinn sem eftir er á leiðinni er um Gufudalssveit. Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar sem talinn er af eftir vopnuð átök í Sýrlandi, minn- ist sonar síns á heimasíðu sinni norn.is undir fyr- irsögninni „Son- ur minn bylting- armaðurinn“. Í sömu færslu endirbirtir hún eldri færslu frá árinu 2003 þar sem segir meðal annars: „Byltingin ólgar í æðum hans. Hugarheimur hans hefur svosem ýmsa afkima en á stóra sviðinu fer fram heilagt stríð gegn óhamingju veraldarinnar sem hann skrifar ýmist á alheimsstjórn Bush Banda- ríkjaforseta, almenna neysluhyggju Vesturlandabúa eða útsendara Landsvirkjunar sem hvísla í hjört- um mannanna. Síðustu vikurnar hefur hann samt sem áður stöku sinnum nefnt Kárahnjúkavirkjun á nafn án þess að froðufella af heil- agri reiði og hann ræðir æ sjaldnar áætlanir sínar um að sprengja stífl- una í loft upp og ráða forkólfa Landsvirkjunar af dögum.“ Segir son sinn hafa rætt um að sprengja Kárahnjúkastíflu Haukur Hilmarsson Flokksþing Framsóknarflokksins hófst í gær og stendur fram á sunnudag. Yfirskrift þess er „Framsókn til framtíðar“. Á dag- skrá þingsins í gær voru meðal annars stjórnmálamálstofur og nefndarstörf. Í dag flytja þau Sig- urður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, og Ásmundur Einar Daða- son, félags- og jafnréttis- málaráðherra, yfirlitsræður. Eftir hádegi verður kosið í helstu embætti flokksins. Búist er við því að þau Sigurður Ingi og Lilja verði endurkjörin í embætti formanns og varaformanns. „Ég hef áhuga á því að vera áfram varaformaður,“ sagði Lilja við Mbl.is í gær. Hún sagði jafnframt að menntamál væru eitt af lyk- iláherslumálum þessa flokksþings. „Menntastefnuhópur hefur verið að störfum í heilt ár og var að skila mjög flottum tillögum um úr- bætur í menntamálum,“ sagði Lilja. Landsþing Viðreisnar hófst í gær í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Yfirskrift þingsins er „Ruggum bátnum“. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins, setti þingið síðdegis í gær og flyt- ur hún stefnuræðu sína upp úr há- degi í dag. Á morgun, sunnudag, verður kosið í embætti. Þorgerður Katrín býður sig fram til áframhaldandi formennsku og Þorsteinn Víg- lundsson hefur tilkynnt framboð til varaformanns. Menntamál í for- gang hjá Framsókn  Landsþing Viðreisnar suður með sjó Morgunblaðið/Hanna Forgangur Lilja Alfreðsdóttir talaði á flokksþingi Framsóknar í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.