Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 6
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi hefur lengi heillað ferðalanga og er fjaran neðan þess fjölsótt jafnt vetur sem sumar. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins sótti náttúruperluna heim var þar stór hópur fólks að virða fyrir sér náttúruöflin – kraftmiklar öldurnar og kaldan ísinn. Einn lét sér nægja að setjast á ísmulning, nokkuð hugsi á svip, á meðan aðrir tóku sér myndavél í hönd. Morgunblaðið/RAX Fjölbreytt sjónarspil náttúru heillar ferðalanginn 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð frá: 388.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Þessi ævintýraferð hefst í Bergen er við siglum framhjá West Cape út á rúmsjó á leiðinni til Ålasund. Siglt verður norður eftir ströndinni yfir Norðurheimskautsbauginn framhjá skörpum tindum Lofoten og til North Cape sem er einn nyrsti oddi Evrópu og eru heimkynni Sama. Við endum þessa mögnuðu ferð í bænum Kirkenes, nyrst í Noregi. 13. - 19. júní Fararstjórn: Inga Erlingsdóttir & Guðni Ölversson Sigling umfirði Noregs Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Félag lykilmanna, sem er stéttarfélag fyrir stjórnendur og sérfræðinga og aðra þá sem vilja vera fyrir utan hefð- bundin verkalýðsfélög á almennum vinnumarkaði, hefur eflst að undan- förnu með fjölgun félagsmanna en það var stofnað árið 2012. Gunnar Páll Pálsson er í forsvari fyrir félagið og stjórnarformaður þess. Hann var um árabil formaður VR. Félagið veitir ekki alla þá þjónustu sem hefðbundin stéttarfélög veita. Félagsgjaldið er mun lægra en í stétt- arfélögum almennt eða 0,05% af laun- um. Í félaginu er lögð sérstök áhersla á að starfrækja sjúkrasjóð og er markmiðið að styrkja stöðu fé- lagsmanna á almennum vinnumark- aði og stuðla að tekjuöryggi þeirra. Vinnuveitendur félagsmanna greiða 1% sjúkrasjóðsiðgjald af launum í sjóðinn. Aukin aðsókn síðustu daga Að sögn Gunnars Páls hefur að- sóknin í félagið aukist síðustu daga og fyrirspurnum hefur fjölgað. „Við sjáum að það eru 400 til 600 manns sem heimsækja heimasíðu okkar daglega undanfarið. Fé- lagsmenn voru rúmlega 400 um ára- mótin en stefna í að fara yfir 500 þeg- ar komið er fram í apríl,“ segir hann. Gunnar Páll segir að um það bil 20% fólks á vinnumarkaði hérlendis standi utan stéttarfélaga. ,,Þetta var fyrst og fremst hugsað sem lausn fyr- ir þann hóp en félagið er opið fyrir alla,“ segir hann. ,,Það er ljóst að vinnumarkaðs- módelið á Íslandi er svolítið frá- brugðið því sem er í öðrum lönd- um, hér eru sjúkrasjóðir stétt- arfélaga að leysa hluta af því sem er almennt inni í al- mannatryggingakerfinu annars stað- ar,“ bætir hann við. Áhersla á sjúkrasjóð Í upphafi starfseminnar var ákveð- ið að meginverkefni þessara félaga- samtaka væri að koma á fót sjúkra- sjóði og afla félagsmanna til að styrkja grundvöll þess. Samkvæmt heimasíðu félagsins er hlutverk sjóðsins að veita félags- mönnum afkomubætur í veikinda- og slysatilfellum og brúa það tekjutap sem verður frá því að veikindarétti launþega lýkur hjá vinnuveitanda, sem er að jafnaði 3 mánuðir og þar til örorkulífeyrir greiðist frá lífeyris- sjóði. Þetta tímabil getur varað í allt að 9 mánuði og jafnvel lengur. Sjúkrasjóðurinn ábyrgist launa- tryggingu fyrir félagsmenn og greiðir bætur vegna slysa eða sjúkdóma, 80% af meðallaunum í allt að níu mánuði. Hafa óskað eftir gerð kjara- samninga en ekki fengið svör Félag lykilmanna annast ekki gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sem semja sjálfir um kaup og kjör við sinn vinnuveitanda í ráðningarsamningi en Gunnar Páll segir að félagið hafi ítrekað óskað eftir gerð kjarasamn- inga en ekki fengið nein svör við þeim erindum hjá samtökum atvinnurek- enda. Frá stofnun félagsins hefur það fyrst og fremst verið hugsað fyrir þá sem ekki eru meðlimir í öðrum stétt- arfélögum og á það við um megin- hluta núverandi félagsmanna, en að sögn Gunnars Páls er einnig eitthvað um að félagsmenn komi úr öðrum stéttarfélögum. Meðal félagsmanna í Félagi lykilmanna eru stjórnendur úr upplýsingatæknigeiranum en einnig má þar finna dagmæður og fólk úr ýmsum öðrum starfsgreinum, að sögn hans. Fram kemur á vefsíðu félagsins að það sé óháð stéttarfélag og það sé í eigu félaganna á hverjum tíma. Félögum fjölgar í Félagi lykilmanna  Hugsað sem lausn fyrir sérfræðinga, stjórnendur og aðra sem vilja standa utan hefðbundinna stétt- arfélaga  Fyrrverandi formaður VR er í forsvari fyrir félagið  Á von á að félagafjöldinn nái 500 í vor Gunnar Páll Pálsson Útför tónskáldsins Jóhanns Jóhannssonar fór fram frá Hallgrímskirkju í gær. Séra Jón Ragnarsson jarðsöng. Lárus Jóhannesson flutti minningarorð. Skúli Sverrisson og Kristín Björk Kristjánsdóttir höfðu umsjón með tónlistarflutningi við útförina. Fjöl- margir tónlistarmenn og vinir stigu á svið og fluttu tón- list Jóhanns auk tónlistar úr ýmsum áttum; brasssveitin Caput og vinir undir stjórn Guðna Franzsonar, strengjasveit undir stjórn Unu Sveinbjarnardóttur, Apparat Organ Quartet, Kórus og vinir undir stjórn Björns Thorarensen, Bryndís Halla Gylfadóttir og Bjarni Frímann Bjarnason. Líkmenn voru Skúli Sverrisson, Sigurður Magnús Finnsson, Pétur Hallgrímsson, Tim Husom, Ólafur Björn Ólafsson, Jóhannes Ágústsson, Hildur Guðna- dóttir og Úlfur Eldjárn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jóhann Jóhannsson borinn til grafar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.