Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 12

Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Ljósmynd/Barnaheill Líf og fjör Bangsinn Blær kom eitt sinn í Garðabæ með þyrlu Landhelgisgæslunnar og vakti það lukku krakkanna. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta efni er mannbætandifyrir börn og fullorðna,þetta er forvarnarverkefnigegn einelti og þeirri sýn að einelti sé félagslegt, menningar- legt og samskiptalegt mein, en ekki einstaklingsbundinn vandi. Þetta þjálfar félagsfærni barna, sam- skiptafærni og brýtur upp allskonar mýtur um samskipti. Í gegnum þetta efni átta foreldrar sig líka á mikil- vægi þess að eiga gott samstarf við aðra foreldra, til dæmis um afmælis- veislur og heimboð. Þeir átta sig á að einelti og útilokun í barnahópi er óá- sættanlegt, jafnvel þó þeirra eigið barn lendi ekki í því. Foreldrar finna fyrir miklu öryggi þegar barnið þeirra vinnur með þetta efni, því auðvitað vilja allir foreldrar að börn- um þeirra líði vel og eignist vini,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri Vináttu hjá Barna- heillum, en n.k þriðjudag 13. mars halda samtökin námstefnu, sem er öllum opin, um Vináttuverkefnið sem Barnaheill hafa boðið upp á undanfarin tvö ár. „Vináttuverkefnið er námsefni sem Barnaheill gefur út, það er í tösku en með fylgir fjólublái bangs- inn Blær sem er táknmynd verkefn- isins. Skólarnir sem vilja taka þátt kaupa þetta efni og fara á námskeið til að læra að nota það. Námsefnið er búið til og þróað í Danmörku og byggist á nýjustu rannsóknum um einelti. Það er reglulega tekið út og nýjustu niðurstöður á árangri eru nýkomnar út og verða einmitt kynntar á ráðstefnunni. Hin danska Dr. Dorte Marie Søndergaard verð- ur aðalfyrirlesari námstefnunnar. Hún er prófessor í háskólanum í Ár- ósum og þar hefur þessu verið fylgt eftir með rannsóknum og skýrslum, og þess vegna vitum við að þetta virkar. Þetta er afar vel undirbyggt verkefni, öll hugmyndafræðin og að- ferðafræðin er samþætt inn í náms- efnið.“ Bangsinn gefur þeim rödd Margrét segir að vináttuverk- efnið byggist á fjórum gildum; um- hyggju, umburðarlyndi, virðingu og hugrekki, og er þessum gildum flétt- að inn í námsefnið. „Þetta er í raun tæki til að vinna með góðan skóla- brag, félagsfærni og á þeirri grunn- hugsun að allir eiga rétt á að tilheyra og líða vel. Kennarar geta ýmist sett þetta efni inn í dagskipulag eða flétt- að með öðrum hætti inn í daglegt starf og samverustundir. Í námsefn- inu eru til dæmis samræðuspjöld með myndum af ýmsum aðstæðum sem geta komið upp í skólastarfi og í samskiptum, til dæmis þegar verið er að skilja einhvern út undan. Þetta er líka efni sem hægt er að grípa til þegar aðstæður krefjast þess. Hvert barn í leikskóla fær einn lítinn bangsa. Börnin nýta bangsann í margs konar tilgangi, hann gefur þeim rödd og huggar þau og hug- hreystir. Þau geta treyst bangs- anum fyrir því sem þeim liggur á hjarta. Ef þau sjá að einhverju öðru barni líður illa, þá eru mörg dæmi um að þau rétti því barni bangsa og spyrji: Viltu fá bangsann þinn svo þér líði betur? Þannig myndast teng- ing. Kennarar eru mjög ánægðir með efnið, því það er mjög handhægt og auðvelt að vinna með það og auð- velt að samþætta öðru skólastarfi.“ Margrét segir að einn hluti verkefnisins fjalli um útileiki, hvern- ig við leikum úti þannig að við séum vinir og getum unnið saman og leyst ágreining ef upp kemur. Að börnin útiloki ekki hvert annað. ,,Ég vil ekki leika við þig, eða ég vil ekki leiða þig“ eru orð lítilla leikskólabarna. Vinátta leggur áherslu á að kenn- arar finni leiðir til að bregðast við slíku og koma í veg fyrir. Einn af þeim skólum sem hafa verið með þetta verkefni hér á landi lét okkur vita að nú eru börnin þar farin að bjóða í leikinn, þau spyrja: Viltu vera með? Í stað þess að barn þurfi að biðja: Má ég vera með?“ Árangur kemur strax í ljós Margrét segir að árið 2014 hafi Barnaheill fyrst farið af stað með vináttuverkefnið hér heima, þá með sex leikskólum, en nú eru þeir orðnir rúmlega hundrað sem taka þátt í verkefninu. „Viðtökurnar hafa verið frá- bærar og fólk segir að þetta hafi mjög góð áhrif á börnin og alla sem vinna með þeim, það sést strax eftir nokkurra vikna notkun á efninu. Þetta er algert undrameðal,“ segir Margrét og bætir við að grunnskólar hér á landi hafi einnig tekið þetta upp í sínu starfi. „Fimmtán grunn- skólar hér á Íslandi fóru af stað í haust með verkefnið. Við ætlum líka að gefa út forvarnarefni fyrir börn alveg niður í eins árs, um leið og þau fara til dagforeldra eða leikskóla. Til að þjálfa þau í að tjá tilfinningar og Einelti í barnahóp er óásættanlegt „Við viljum breiða út boðskapinn, í átt til betra samfélags,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri Vináttu hjá Barnaheillum, verkefnis sem hefur gengið mjög vel bæði í leikskólum og grunnskólum. Vináttuverkefnið byggist á fjórum gildum; umhyggju, umburðarlyndi, virðingu og hugrekki, og er þessum gildum fléttað inn í námsefnið. „Þetta er algert undrameðal,“ segir Margrét. Morgunblaðið/Eggert Margrét Júlía Námsefnið um vináttu er í tösku og með fylgir bangsi. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri frumsýndi LoveStar eftir Andra Snæ Magnason í Hofi á Akureyri í gær. Í til- kynningu kemur fram að rúmlega 70 menntaskólanemar komi að uppsetn- ingunni sem er sú stærsta sem leik- félagið hefur ráðist í og eru leikmynd, búningar, förðun, hárgreiðsla, tónlist og dans alfarið í höndum nemenda. Unnið er eftir leikgerð Bergs Þórs Ing- ólfssonar og leikstjóri er Einar Aðal- steinsson. Um leikritið segir: Í há- tæknilegu samfélagi blómstrar alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar með höfuðstöðvar sínar í Öxnadal. Fyrirtæki þessu hefur tekist að mark- aðssetja dauðann, handfrelsa fólk með bylgjum og hanna reikniformúlur til að koma skipulagi á ástina. En til verða hugmyndir um hvernig megi fullkomna stórveldið og forstjóri þess kemst einu skrefi nær almættinu. Indriði og Sigríður eru ungt hand- frjálst par sem telur sig hafa fundið ástina með hefðbundnum leiðum. Þeim berst bréf frá LoveStar með þeim upplýsingum að þau séu ekki sálufélagar og að hinn raunverulegi hinn helmingur Sigríðar bíði hennar í Öxnadalnum. Spurt er: Getur ástin blómstrað hjá fólki sem fylgir ekki vísindalegum útreikningum? Er hægt að bjarga ástinni? Næstu sýningar eru 15., 16. og 18. mars. LoveStar sýnt á Akureyri Getur ástin blómstrað hjá fólki sem fylgir ekki útreikningum? Lovestar Nemendur Leikfélags Menntaskólans á Akureyri í hlutverkum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.