Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 13

Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 13
gera sér grein fyrir eigin tilfinn- ingum,“ segir Margrét og bætir við að það skipti öllu máli að byrja að vinna með þessa þætti þegar börnin eru ung, svo það séu ekki búin að þróa einhverskonar samskipta- mynstur sem þarf að grípa inn í til að breyta, heldur koma í veg fyrir að þau myndist. „Við viljum breiða úr boðskap- inn, í átt til betra samfélags. Mar- grét tekur fram að námstefnan sé opin fyrir alla áhugasama, ekki síst fyrir þá sem láta sig varða velferð barna og góð samskipti í samfélag- inu meðal barna og fullorðinna. „Þetta er samfélagslegt viðfangsefni og er því ekki síður fyrir foreldra og börn en þá sem starfa í leikskólum og grunnskólum.“ Ljósmynd/Barnaheill Kátir krakkar Hér ríkir heldur betur ánægja með bangsann Blæ. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 DIV INE YOUTH FACE OIL Nýja Divine Youth Face Oil hefur einstök yngjandi áhrif á húðina. Ný og betrumbætt formúla inniheldur einstakt hlutfall af ilmkjarnaolíu úr Immortelle*, blóminu sem aldrei fölnar. Andoxunarefnin í ilmkjarnaolíunni hafa tvöfaldan kraft á við E-vítamín** sem þekkt er fyrir yngjandi eiginleika sína. Niðurstöður rannsókna sýna að áhrif Divine Youth Face Oil eru greinileg frá fyrstu notkun: húðin verður stinnari, fær aukin ljóma og ásýnd er unglegri. MEIRA AF ANDOXUNAREFNUM 2X MEIRIVIRKNIEN Í E-VÍTAMÍNI** * Í fyrsta skipti í Divine húðvörulínunni. **Prófanir í tilraunaglasi á efnasambandinu skvalen í eintengi við súrefni. UNGLEG OG HEILBRIGÐ Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Nú er hver að verða síðastur að sjá frábæra uppsetningu Leikdeildar Ungmennafélags Biskupstungna á leikritinu Sálir Jónanna ganga aftur, sem er bráðskemmtilegt tilbrigði við hið sígilda leikverk Gullna hliðið, og þar má finna vangaveltur um himnaríki og helvíti ásamt fleira merkilegu. Síðasta sýning verður í kvöld, laugardag 10. mars, kl. 20 í Aratungu í Reykholti í Biskups- tungum. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson en leikritið sem er „gaman-draugadrama“ kemur úr smiðju Hugleikshöfunda, samið af þremur konum, Ingibjörgu Hjartar- dóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur. Leikritið er byggt á þjóðsögunni Sálin hans Jóns míns líkt og Gullna hliðið, en hér eru efnistökin þó allt önnur. Fjórir Jónar deyja og makar þeirra ákveða að koma sálunum til himna- ríkis. Leiðin þangað er löng og grýtt og Kölski og árar hans bíða þess albúnir að hremma þau öll. Hægt er að kaupa mið fyrirfram í síma 896 7003, en einnig við inn- gang. Tilvalið er fyrir gesti að fá sér að borða á Mika kaffi í Reykholti áður en farið er í Aratungu að njóta leikverks. Endilega … Sálir Jónanna Ýmislegt gengur á. … sjáið og heyrið sálir Jónanna Mörg áhugaverð erindi verða á ráðstefnunni, meðal annars þessi :  Dr. Dorte Marie Søndergaard flytur erindið: New perspectives on bullying as a social phenomenon.  Christina Stær Mygind flytur erindið: How it began, the essence of Free of Bullying and the results after 10 years of work with the program.  Kennarar úr skólum segja frá reynslu sinni af Vináttuverkefninu.  Sýnt verður myndband frá Mary Foundation og Save the Children í Danmörku: Why does bullying happen? About the dynamics of bullying.  Guðjón Davíð Karlsson leikari (Gói) segir reynslusögu, undir yfirskriftinni: Mikilvægi forvarna gegn einelti. Jón Jónsson flytur nokkur lög. Námstefna um vináttu GÓI SEGIR REYNSLUSÖGU Dorte Marie Søndergaard Tveggja daga námskeið verður núna um helgina, laugardag og sunnudag, 10. og 11. mars í Wim Hof-aðferða- fræði. Í tilkynningu kemur fram að Wim Hof-aðferðin byggist á þremur stólpum: Kuldaþjálfun, öndun og staðfestu. Að stunda köld böð hefur í för með sér margþætt heilsubætandi áhrif, aukna brúna fitu sem brennir orku og býr til hita, kuldinn dregur úr bólgumyndun í líkamanum, styrkir ónæmiskerfið, stuðlar að jafnvægi hormónakerfisins, eykur svefngæði og framleiðslu endorfíns. Öndun skiptir máli, við öndum allan daginn en veitum ekki athygli hvernig við öndum og hvaða áhrif það hefur á líkamann. Þær öndunaræfingar sem kenndar, eru á námskeiðinu stuðla að betri líðan, meiri orku, minna stressi og efla ónæmiskerfið til að vinna á ýmsum kvillum. Til þess að tileinka sér köld böð og meðvitaða öndun þarf þolinmæði og staðfestu. Með góðri einbeitingu kemst fólk nær takmark- inu, að ná stjórn á eigin líkama og huga. Námskeiðið verður hjá Primal Iceland, Faxafeni 12, þar sem sérhönn- uð aðstaða hefur verið útbúin. Þór Guðnason kennir og fer yfir helstu grunnstoðir Wim Hof-aðferðafræð- innar, og m.a. verður farið út í náttúr- una, en tengingin við náttúruna spilar stórt hlutverk í þessari iðkun. Wim Hof-hugmyndafræðin er athyglisverð Kalt bað Mikla þolinmæði og staðfestu þarf að þjálfa til að þola kulda. Kuldaþjálfun um helgina Áhugasamir geta skráð sig á ráðstefnuna á heimasíðu Barna- heilla www.barnaheill.is, en þar má einnig sjá hvernig verkefnið lítur út, undir hnappnum vinátta. Facebook: Vinátta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.