Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Það er alls staðar fiskur og grjótnóg af honum,“ sagði Birgir Sigurðsson, skipstjóri á Maron GK 522, undir há- degi í gær. Þeir voru þá að draga net- in í Garðsjó norður af Garðskaga, en neta- og færabátar hafa mokfiskað þar síðustu daga. Á sama tíma hefur heldur dofnað yfir línuveiðum eftir að loðnan gekk fyrir Reykjanesið og fór í efsta sæti á matseðli þorsksins. „Hér eru færabátar og netabátar í einum haug í blíðuveðri og menn eru að fá svakalega flottan fisk,“ sagði Birgir.„Loðnan hefur verið að skríða inn fyrir Garðskagaflösina og fisk- urinn hefur nóg að éta. Ég er búinn að vera í þessu í 40 ár með marga báta og held að síðustu ár hafi aldrei annar eins bingur af fiski gengið hérna inn á svæðið til hrygningar. Við erum búin að safna svo miklum fiski í gegnum árin að það horfir til vandræða.“ Birgir kom inn til Njarðvíkur upp úr hádegi með um 12 tonn úr tæplega 50 netum. Á miðvikudag reru þeir á Maroni frá Grindavík og tvílönduðu þá til að auðvelda verkunina í landi, 16-17 tonn í hvort skipti af hálfsprikl- andi fiski, eins og Birgir orðar það. „Þetta var algjört bingó á miðviku- daginn,“ segir hann. Mikið líf í Sandgerði Mikið líf hefur verið við höfnina í Sandgerði síðustu daga og 30-40 bátar landað þar daglega. Auk heimabáta landa þar hátt í 20 að- komubátar víðs vegar að af landinu, sem koma árvisst á vertíð í Sandgerði í mars-apríl. Blíða og nánast sléttur sjór hefur verið síðustu daga og fyrir þá hraðskreiðustu er aðeins 15-20 mínútna sigling frá Sandgerði á mið- in norðan við Garðskaga. Þar hafa margir bátar verið á tiltölulega litlu svæði. Fimm löndunarkranar eru í Sand- gerði og þegar mest hefur gengið á síðdegis og bátarnir komið hver af öðrum að landi hafa menn oft þurft að bíða eftir að komast að. „Þeir hafa verið að fá mjög góðan fisk og óhætt að segja að þetta sé góð vertíð þó svo að margt hafi breyst frá vertíðar- stemningunni sem var í gamla daga,“ segir Þórhallur Ásgrímsson, hafn- arvörður í Sandgerði. Vegna brælu og mikillar öldu gátu minni bátarnir lítið róið frá Grindavík fram eftir febrúarmánuði. Síðustu daga hefur verið mjög góður afli í net og í lok febrúar og byrjun mars var gott fiskirí á línuna. Þar hafa 12-14 bátar landað síðustu daga, sam- kvæmt upplýsingum Arnfinns Ant- onssonar hafnarvarðar. Marsmánuður byrjar vel Yfir fjögur þúsund tonnum var landað í febrúar í höfnum Snæfells- bæjar; Rifi, Ólafsvík og Arnarstapa, að sögn Björns Arnaldssonar hafn- arstjóra. Þrátt fyrir leiðindatíð segir hann að nokkuð þétt hafi verið róið og mánuðurinn sé á pari við febrúar síðustu ára. Það eigi þó ekki við um síðasta ár þegar tíu vikna sjómanna- verkfall stóð til 20. febrúar. Björn segir að marsmánuður byrji ágætlega og nefnir að Steinunn SH hafi fengið 52 tonn í dragnót á þriðju- dag. Stóru línubátarnir í Rifi, Tjald- ur, Örvar og Rifsnes, sem eru með beitningarvélar um borð, hafi landað upp í 100 tonnum eftir þrjá daga. Minni línubátarnir hafi komið með frá sex tonnum upp í 17-18 tonn eftir daginn. Síðustu daga hefur meðalverð á fiskmörkuðum verið frá rúmlega 200 krónum upp í 240 krónur fyrir kílóið af óslægðum þorski. Alls staðar fiskur og grjótnóg af honum  „Við erum búin að safna svo miklum fiski í gegnum árin að það horfir til vandræða,“ segir Birgir Sigurðsson, skipstjóri á Maron GK  Góður afli í net og á handfæri en dofnað hefur yfir línufiskiríi Morgunblaðið/RAX Afslappaður Birgir Sigurðsson við komuna til Njarðvíkur í gær. Vel hefur fiskast undanfarið og segir Birgir að mikið af hrygningarfiski sé á ferðinni. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Löndunarbið Þegar bátarnir koma inn til Sandgerðis á svipuðum tíma síðdegis er oft bið eftir löndunarkrana. ,,Febrúarmán- uður var auðvit- að erfiður hjá okkur eins og öðrum vegna veðurs en það hefur verið allt annað og betra upp á síðkastið. Það er að færast vertíðarstemn- ing yfir veiðina hér syðra og ufsaveiðin er að aukast,“ segir Jóhannes Ellert Ei- ríksson, skipstjóri á Ottó N. Þor- lákssyni RE, í samtali heimasíðu HB Granda. Ottó hefur verið að veiðum suð- vestur og vestur af Reykjanesi und- anfarna daga en skipið á að vera komið til hafnar í Reykjavík í fyrra- málið. ,,Við höfum ekkert norður á Vestfjarðamið að sækja þegar þessi tími er kominn. Hefðbundin vertíð- arstemning með tilheyrandi þorsk- gengd og sem betur fer er ufsa- veiðin að glæðast,“ segir Jóhannes meðal annars. Vertíðarstemning að færast yfir veiðina Jóhannes Ellert Eiríksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.