Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt sam- komulag borgarinnar við Veður- stofu Íslands um mælireiti í Reykja- vík. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna þessa samkomulags er áætlaður 65 millj- ónir króna. Samningurinn byggist á vilja- yfirlýsingu sem borgarstjóri og fjár- mála- og efnahagsráðherra undirrit- uðu 2. júní 2017, um að vinna sameiginlega að þróun og skipu- lagningu á lóðum í Reykjavík sem eru ýmist í eigu eða umráðum ríkis- ins. Færsla veðurmælireitsins við Veðurstofuna er forsenda þess að taka megi svæðið, sem markast af Bústaðavegi og Kringlumýrarbraut, austan við núverandi húsnæði Veð- urstofu Íslands, nefnt Veðurstofu- hæðin, til deiliskipulags og upp- byggingar íbúðarhúsnæðis. Áætlað er að á reitnum geti risið allt að 150 íbúðir. Áformað er að þarna rísi íbúðabyggð sem henta á náms- mönnum, tekjulágum og ungu fólki til fyrstu kaupa. Færast í „Litlu Öskjuhlíð“ Svo hraða megi þeirri vinnu og stytta þann samanburðartíma sem nauðsynlegur er, til að ná samfellu í veðurmælingum í Reykjavík, felur samningurinn einnig í sér uppbygg- ingu veðurstöðvakerfis, tíu stöðva í borginni og nærumhverfi hennar. Stefnt er að flutningi veðurmæl- ireits á nýja lóð vestan megin við húsnæði Veðurstofunnar á Bústaða- vegi 7, oft nefnda „Litlu Öskjuhlíð“ . Reykjavíkurborg kostar uppbygg- ingu veðurstöðvakerfis í borginni. Annarsvegar byggingu fimm nýrra stöðva og hinsvegar nauðsynlegar lagfæringar þeirra fimm stöðva sem þegar eru í rekstri. Forráðamenn Veðurstofunnar svo og veðurfræðingar höfðu áhyggjur af þeirri röskun sem gæti orðið á samfelldum mælingum í borginni með flutningi, en þessar mælingar hafa staðið samfellt yfir vel á aðra öld, eða samfellt í 148 ár. Fjölmargir veðurfræðingar lýstu yf- ir áhyggjum sínum í grein sem þeir rituðu í Morgunblaðið í fyrrasumar. En nú hefur samkomulag tekist um málið. Tillaga liggur fyrir um staðsetn- ingu veðurstöðvanna, en unnið verð- ur með borginni að frekari útfærslu á þeim tillögum. Nýjar veðurstöðvar verða: Fossvogsdalur, Elliðaárdalur eða Víðidalur, Laugardalur eða Geirsnef, Miðbær/Hljómskálagarð- ur og Nesvöllur, Seltjarnarnesi. Endurnýjun eða flutningur núver- andi veðurstöðva: Veðurstofureitur, núverandi mælireitur verði fluttur í „Litlu Öskjuhlíð“, Hólmsheiði, Korpúlfsstaðavöllur, mælir fluttur frá Keldnaholti, Geldingarnes og Reykjavíkurflugvöllur. Grunnþættir mældir Gert er ráð fyrir mælingum á öll- um núverandi þáttum veðurs í nýj- um Veðurstofureit og öllum grunn- þáttum veðurs, vindhraða, vindátt, lofthita og loftraka á öðrum mæli- stöðvum. Auk þessara grunnþátta verður úrkoma mæld á flestum stöðvum. Einnig er fyrirhugað að á einhverjum stöðvum verði skyggni og skýjafar mælt auk þess sem gerðar verið tilraunir með mælingar á mengun. Í samkomulaginu er tiltekið að nýr mælireitur skuli vera af svipaðri stærð og núverandi mælireitur eða um 1.000 fermetrar með nærvernd- arsvæði af svipaðri stærð og fyrir núverandi mælireit, þ.e. 10.000 fer- metrar. Reiturinn skal vera grasi gróinn, afgirtur sléttur flötur þar sem leitast skal við að fjarlægð til hindrana í landslagi, gróðurs eða mannvirkja sé meira en tíföld hæð þeirra. Borgin og Veðurstofan semja um flutning á veðurmælum  Áformað er að skipuleggja hverfi 150 íbúða á Veðurstofuhæð í Öskjuhlíð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veðurstofuhæðin Stofnunin rekur umfangsmikið kerfi mælitækja. Samfelldar mælingar hafa staðið yfir í 148 ár. Veðurstofan telur að framtíð- arstaðsetning Veðurstofunnar á Veðurstofuhæð- inni og staðsetn- ing á nýjum mæli- reit ásamt upp- byggingu veðurstöðvakerfis í Reykjavík upp- fylli kröfur um áreiðanleika sam- felldra veðurmælinga innan höf- uðborgarsvæðisins. Þetta segir Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofunnar. „Það er mikil áskorun að halda veðurmælingum innan þéttbýlis ótrufluðum til langs tíma. Skipu- lagsbreytingar, nýbyggingar og gróðurfarsbreytingar eru ráðandi þáttur í því. Til dæmis mun helg- unarsvæði núverandi reits aldrei koma fullkomlega í veg fyrir áhrif á veðurmælingar frá slíkri þróun. Áform um nýtingu Veðurstofuhæð- arinnar er dæmi um þetta en stað- fest er í drögum að samkomulagi milli ríkis og borgar frekari uppbygg- ing á íbúðarhúsnæði á austurhluta hæðarinnar,“ segir Árni. Hann segir mjög mikilvægt fyrir Veðurstofuna að í drögunum komi fram að „Reykjavíkurborg mun tryggja að tekið verði fullt tillit til starfsemi Veðurstofunnar á svæðinu til framtíðar …“. Með varanlegri uppbyggingu á aðstöðu Veðurstof- unnar á núverandi stað sé tryggt að mælingar og sjónmetnar mælingar myndi sem næst órofna heild. Í samningi milli Reykjavík- urborgar og Veðurstofunnar, sem samþykktur var í borgarráði, sé jafn- framt búið að tryggja annars vegar framtíðarstaðsetningu mælireitsins á nálægum friðuðum stað og hins vegar net 10 mælistöðva innan borg- arsvæðisins. Með tilkomu 5 nýrra mælistöðva og uppfærslu á þeim 5 sem fyrir eru, eins og gert er ráð fyr- ir í samningnum, sé ennfremur verið að auka verulega umfang og gæði veðurmælinga á höfuðborgarsvæð- inu. „Á grundvelli þeirra eykst þjón- usta Veðurstofunnar sem færir borginni tækifæri til að auka þjón- ustu sína við íbúa,“ segir Árni. Tryggir áreiðanleika mælinga STAÐSETNING VEÐURSTOFUNNAR Á SAMA STAÐ ER TRYGGÐ Árni Snorrason Nafnanefnd Reykjavíkur hefur gert tillögur að götuheitum á lóð- inni númer 2 við Austurbakka Reykjavíkurhafnar. Nefndin leggur til að sá hluti Pósthússtrætis sem liggur milli Tryggvagötu og Geirsgötu verði endurnefndur Steinbryggja. Hún leggur til að gata sem lögð verður á Austurbakkanum, næst fyrir vestan fyrirhugaða byggð, að hóteli, verði kölluð Bryggjugata. Þá er lagt til að gatan sem liggur milli Stein- bryggju og Kalkofnsvegar, samsíða Tryggvagötu og Geirsgötu, verði nefnd Kolagata. Á aðalteikningum arkitekta hef- ur gata sem liggur frá Tryggva- götu, í gegnum alla lóðina, yfir Geirsgötu að Hörpu, verið kölluð Reykjastræti. Nefndin telur það heiti ekki við hæfi og leggur til að gatan verði nefnd Tónagata. Borgarráð samþykkti að vísa til- lögum um heiti gatna sem liggja innan lóðarinnar til umsagnar lóð- arhafa. sisi@mbl.is Leggja til götuheiti á Hörpureitnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Erlendum ferðamönnum sem komu um Keflavíkurvöll fjölgaði um 8% í febrúar frá því sem var á sama tíma í fyrra. Voru þeir samtals 160.078 samkvæmt brottfarartaln- ingum, en það er um 11.700 fleiri en í febrúar í fyrra. Þetta er sam- bærileg fjölgun og síðustu mánuði. Sé febrúarmánuður fyrri ára hafð- ur sem viðmið er hins vegar að hægja á þeirri fordæmalausu fjölg- un ferðamanna sem verið hefur undanfarin ár – til að mynda 47,2% 2016-2017. Fjöldi Breta og Bandaríkja- manna stendur í stað Af þeim sem Ísland heimsækja og flugu utan í síðustu mánuði eru Bretar og Bandaríkjamenn stærsti hópurinn. Alls voru þetta um 47 þúsund manns eða nærri helmingur þeirra sem um Leifsstöð fóru. Brottförum fólks af öðru þjóð- erni fjölgar, svo sem fólki frá Aust- ur-Evrópu og Asíu. Hlutfallslega mest Pólverjum sem voru ríflega tvöfalt fleiri í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra. Ferða- málastofa telur að þetta séu í tals- verðum mæli Pólverjar sem búi á Íslandi og vinni hér, en skreppi síð- an til Póllands í frí. Íslendingar á faraldsfæti Brottfarir Kínverja, Japana, Hong Kongbúa, Indverja, Taívana, Singapúrbúa og Suður-Kóreubúa voru um 11,6% af heildarfjölda brottfara í febrúar sl. en byrjað var að telja fimm síðasttöldu þjóðernin sérstaklega í júní á síðasta ári. Um 40 þúsund Íslendingar fóru utan í febrúar í ár eða 14,4% fleiri en í febrúar í fyrra. Samtals voru brottfarir Íslendinga í janúar og febrúar um 70 þúsund. sbs@mbl.is Færri fljúga af landi brott  Pólverjarnir fara heim í frí Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðamenn Hægir á fordæmalausri fjölgun sem verið hefur síðustu ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.