Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 24

Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 24
Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna, hefur þegið boð Kims Jong-uns, leiðtoga Norður-Kóreu, um að koma til samningaviðræðna um kjarn- orkuáætlun Norður-Kóreu. Hvíta húsið greindi frá þessu í fyrrinótt, að íslenskum tíma. Stefnt er að því að halda fundinn í lok maí. Þetta verður í fyrsta sinn sem sitjandi forseti Bandaríkjanna hittir leiðtoga Norður-Kóreu. Leiðtogar Rússlands, Kína, Japans og Suður-Kóreu lýstu yfir ánægju sinni með hinn fyrirhugaða fund. AFP-fréttastofan hafði eftir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, að fundurinn yrði skref í rétta átt. Hann kvaðst vona að af fundinum yrði því það væri sannarlega þörf á að bæta ástandið á Kóreuskaganum. Kínverjar hvöttu báða leiðtogana til að fækka kjarnorkuvopnum á Kóreu- skaga. gudni@mbl.is Þjóðarleiðtogar Kim og Trump. KIM OG TRUMP FUNDA Ræða kjarnorku- vopn á Kóreuskaga 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is Sendum frítt um allt land Skoðaðu úrvalið á carat.is Glæsilegt úrval Trúlofunar og giftingarhringir í öllum litum og gerðum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Margir þjóðarleiðtogar hafa veru- legar áhyggjur af mögulegu al- þjóðlegu viðskiptastríði í kjölfar þess að Bandaríkjaforseti ákvað að leggja nýja tolla á innflutt stál og ál. Málið er afar umdeilt innan og utan Bandaríkjanna og hefur efna- hagsráðgjafi forsetans, Gary Cohn, sagt af sér vegna málsins. Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna, skrifaði á fimmtudag undir tilskipun þess efnis að inn- heimta skuli 25% toll af innfluttu stáli og 10% af innfluttu áli. Sagð- ist Trump koma á þessum tollum til að vernda bandarískan stál- og áliðnað þar sem „þessi iðnaður hefur þurft að sæta aðförum frá erlendum ríkjum. Við verðum að vernda bandarískt verkafólk og bandarísk fyrirtæki,“ hefur AFP eftir Trump. Vekur áhyggjur Verndartollarnir og yfirlýsingar Trumps um málið hafa sætt harðri gagnrýni leiðtoga annarra ríkja og Evrópusambandinu. Kínverjar eru ósáttir við orð Trumps í sinn garð. „Sagan sýnir að viðskiptastríð er aldrei rétt aðferð til þess að leysa vandamál. Í hnattvæddum heimi væri viðskiptastríð mistök. Afleið- ingarnar eru eingöngu skaðlegar. Kína þarf að mæta slíku með rétt- mætum og nauðsynlegum aðgerð- um,“ hefur New York Times eftir utanríkisráðherra Kína, Wang Yi. Talsmaður japanskra stjórn- valda, Yoshihide Suga, hefur sagt fyrirhugaðar aðgerðir Bandaríkj- anna ógna viðskiptakerfi heimsins og að Japan muni leita leiða til að komast hjá tollunum í samstarfi við yfirvöld í Washington. Brigitte Zypries, efnahagsráð- herra Þýskalands, segir Trump hafa komið á „tollum sem fara gegn reglum Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar“ (WTO). Stjórn- völd í Suður-Kórea sögðust í gær ætla að senda formlega kvörtun til WTO vegna málsins. Suður-Kórea er í þriðja sæti á lista yfir ríki sem selja mest af stáli til Bandaríkj- anna. Aðgerðum svarað Snörp orðaskipti milli leiðtoga Evrópusambandsins og Trumps urðu í byrjun vikunnar. Trump fór á Twitter og sagði að þegar millj- arðar bandaríkjadala væru í húfi væru „viðskiptastríð af hinu góða“. Því svaraði Donald Tusk, forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins, og sagði að viðskiptastríð væru slæm og auðvelt væri að tapa þeim. „Markmið Evrópusambands- ins er að viðhalda lífi í heims- viðskiptum og það mun, ef telst nauðsynlegt, vernda evrópska hagsmuni með viðeigandi aðgerð- um.“ Cecilia Malmström, við- skiptastjóri ESB, tilkynnti að sam- bandið mundi svara aðgerðum Trumps og leggja tolla á hnetu- smjör, bandarískt viskí, trönuber, appelsínusafa, mótorhjól, gallabux- ur, stál og aðrar iðnaðarvörur. Þá vekur athygli að vörurnar eru mestmegnis framleiddar í ríkj- um þar sem Trump þarf að sigra í næstu forsetakosningum ef hann ætlar að ná endurkjöri. Einnig eru þessar vörur að miklu leyti fram- leiddar í kjördæmum áhrifamikilla þingmanna repúblikana og gæti það því haft veruleg áhrif á af- stöðu þeirra. Þá hefur t.a.m. Paul Ryan, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mótmælt aðgerð- um Trumps, en Harley Davidson mótorhjólin eru framleidd í heima- ríki hans, Wisconsin. Reynst illa George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ákvað árið 2002 að setja innflutningstolla á stál í þeim tilgangi að vernda þarlenda stálframleiðendur. Fyrrverandi starfsmenn Hvíta hússins, sem störfuðu þar í forsetatíð Bush, sögðu við Washington Post á þriðjudag að verndartollar af þessu tagi hefðu reynst illa. Afleiðing aðgerða Bush var að 200.000 störf töpuðust í fram- leiðslugreinum sem háðar eru stáli, samkvæmt skýrslu Trade Partnership Worldwide. Verndartollar Trumps á stál og ál vekja hörð viðbrögð  Þjóðarleiðtogar hafa áhyggjur  Gagnaðgerðum hótað  Gæti farið fyrir WTO AFP Verndartollar Forseti Bandaríkjanna undirritar tilskipun um nýja tolla í viðurvist stál- og áliðnaðarmanna. Veldur áhyggjum » Bandaríkin leggja 25% toll á innflutt stál og 10% toll á inn- flutt ál. » Árið 2002 töpuðust um 200.000 störf í Bandaríkj- unum vegna tolls á stál. » Evrópusambandið hyggst svara aðgerðunum með nýjum tollum á bandarískar vörur. » Tollarnir stríða hugsanlega gegn reglum WTO. Grænlensk sendinefnd sem fór á kaupstefnu um skemmtisiglingar í Flórída sneri heim full bjartsýni, að sögn hins grænlenska Sermitsiaq. Útgerðir skemmtiferðaskipa sýna mikinn áhuga á siglingum til Grænlands og stefna að því að bæta því við sem áfangastað fyrir skip með allt að 2.500 farþega. Búið er að skylda skipin til að vera með grænlenska hafnsögu- menn um borð við Grænland. Jakob Nordstrøm hjá grænlensku hafn- söguþjónustunni segir að þetta hafi orðið til þess að stórar útgerðir sem ekki hafa reynslu af siglingum á norðurslóðum þori nú að senda skip sín þangað. gudni@mbl.is Fleiri skemmti- ferðaskip GRÆNLAND Mannabein sem fundust á Kyrra- hafseyjunni Nikumaroro árið 1940 voru líklega af flugkonunni frægu Ameliu Earhart, að því er fram kem- ur í bandaríska vísindaritinu Foren- sic Anthropology. BBC greindi frá. Earhart og Fred Noonan, flugleið- sögumaður hennar, hurfu sporlaust yfir Kyrrahafi 2. júlí 1937. Ótal kenn- ingar og getgátur komu fram um ör- lög þeirra en nú virðist gátan leyst. Richard Jantz, prófessor við Ten- nessee-háskóla, stýrði rannsókninni. Flórída-háskóli greindi fyrst frá nið- urstöðunum. Þar er talið að líkams- leifarnar sem fundust á eynni Nik- umaroro, um 2.900 km suðvestur af Hawaii, tilheyri Earhart. Vitað var að hún var á þeim slóðum þegar hún hvarf í tilraun sinni við að fljúga í kringum hnöttinn. Breskur leiðangur kannaði eyna árið 1940 og fann þá hauskúpu og fleiri bein sem talin voru vera af karlmanni, kvenskó, verkfæri sjóliða eins og Fred Noonan átti og flösku af Benedictine-líkjör en Earhart var vön að taka hann með sér. „Menn grunaði þá að beinin gætu verið líkamsleifar Ameliu Earhart,“ skrifaði dr. Janz. Beinin 13 sem fundust voru send til Fiji þar sem dr. D.W. Hoodless sagði að þau væru af karlmanni. Dr. Janz sagði að rétt- arbeinafræði hefði þá verið á frum- stigi og líklega hefði Hoodless kom- ist að rangri niðurstöðu. Beinin týndust og varð því að styðjast við mælingar sem gerðar voru á þeim. Dr. Janz hlóð mælingum inn í For- disc, tölvuforrit sem réttarmann- fræðingar nota, og bar saman við hæð og líkamsvöxt Earhart. Niður- staðan var sú að 99% samræmi væri með beinunum og líkamsvexti Ear- hart. gudni@mbl.is Beinin líklega af Ameliu Earhart  Ráðgátan um flugkonuna leyst Ljósmynd/Harris & Ewing Amelia Earhart Hún varð fyrst kvenna til að fljúga yfir Atlantshaf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.