Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 ✝ Marín Svein-björnsdóttir (Maja) fæddist að bænum Á í Unadal 1. apríl 1923. Hún lést á Heilbrigð- isstofnuninni á Sauðárkróki 2. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru Sveinbjörn Sigurður Svein- björnsson, f. 27. maí 1893, d. 27. júlí 1990, og Jóhanna Símonardóttir, f. 21. október 1899, d. 11. desember 1988. Systkini hennar eru: Anna Hallfríður, f. 28. ágúst 1921, d. 18. apríl 2017, Alfreð Elías, f. 26. apríl 1924, Sig- urlaug, f. 19. september 1927, Sigurður Bjarni, f. 28. ágúst 1935, d. 18. apríl 2002, Guðrún, f. 24. október 1937, og Ásdís Hulda, f. 8. mars 1940. Marín ólst upp að Á í Unadal til 1934 að hún fluttist að Ljóts- stöðum með foreldrum sínum og systkinum. Þann 26. janúar 1967 giftist Marín Hjalta Gísla- syni, f. 26. janúar 1930, d. 8. ágúst 2011. Hann var sonur Önnu Þuríðar Pálsdóttur, f. 1. janúar 1902, d. 23. desember 1986, og Gísla Benjamínssonar, f. 8. júní 1891, d. 19. mars 1976. Systur hans eru Hrefna, f. 27. ágúst 1921, Svafa, f. 10. desember 1924, og Hólmfríður Rósa (Lilla), f. 28. janúar 1944. Dóttir Hjalta og Marínar er Anna Hulda Hjaltadóttir, f. 24. ágúst 1971. Maður hennar er Sig- urður Hólmar Kristjánsson, f. 15. febrúar 1972. Þeirra synir eru: Kristján Hjalti Sig- urðsson, f. 12. maí 1995, maki Álf- heiður Kristín Harðardóttir, f. 29. janúar 1996, og dóttir Andrea Nótt, f. 19. ágúst 2013, Hallur Aron Sigurðsson, f. 12. ágúst 1998, og Jónas Pálmar Norð- fjörð Sigurðsson, f. 23. septem- ber 2003. Marín og Hjalti hófu búskap að Sælandi á Hofsósi og fluttu svo 1981 á Kárastíg 7 á Hofsósi er Anna móðir Hjalta flutti til þeirra. Marín vann við hefð- bundin sveitastörf auk þess sem hún vann sem saumakona. Hún lærði að sauma karl- mannaföt hjá Andrési Andr- éssyni klæðskera og kjólasaum hjá Dýrleifu Ármann. Hún vann við saumaskap meðal ann- ars hjá Belgjagerðinni og Hag- kaupum auk þess að sauma heima og eftir að hún hóf bú- skap á Hofsósi saumaði hún ís- lenska fánann ásamt fleiru á saumastofunni á Hofsósi. Marín verður jarðsungin frá Hofsóskirkju í dag, 10. mars 2018, og hefst útförin klukkan 11. Elsku mamma mín. Ég veit að pabbi hefur glaðst að fá þig til sín. Móðir góð svo mild og hlý við matargerð og vökur, börnin sækja ennþá í ömmu pönnukökur. Þessi ferskeytla sem samin var um þig á níræðisafmælinu lýsir þér best. Þú varst klett- urinn í lífi okkar, varst kær- leiksrík við alla sem þér kynnt- ust, tókst á við lífið af rósemi, lífsgleði og nægjusemi auk þess að baka óendanlegt magn af pönnukökum. Ég hugsa oft um hvað ég var heppin að eiga þig sem móður. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og studdir mig í því sem ég tók mér fyrir hendur. Ég hef þá trú að ég hefði ekki orðið það sem ég er í dag nema með hjálp ykkar pabba og þið eigið heiður skilið fyrir að hafa komið stelputryppinu til manns. Þið pabbi verðið alltaf fyrirmyndir mínar í lífinu en það er að miklu að stefna að fylgja í fótspor ykkar. Þú varst alltaf jákvæð og tal- aðir fallega um alla samferða- menn þína. Þú varst alltaf minn- ug og vissir hvar hlutirnir voru þó að þú hefðir tapað sjóninni og í samræðum um lífið og at- burði líðandi stundar mundir þú oft betur en þeir sem yngri voru. Alltaf varstu vel til höfð á mannamótum og hugaðir að út- litinu alla tíð. Það er ótrúlegt að minnast þess hvað þú varst skýr og hress til síðasta dags og því finnst okkur sem eftir stöndum þú hafa yfirgefið okkur helst til fljótt þrátt fyrir að vera að nálgast 95 árin. En þú hefðir ekki viljað hafa þetta öðruvísi því það hefði ekki átt við þig að vera rúmföst. Mikill er missir okkar sem eftir lifum en við eigum minn- ingar um einstaka konu. Með kærri þökk fyrir þær stundir sem við áttum saman. Anna Hulda og fjölskylda. Elsku Mæja okkar. Nú ertu komin til þeirra sem farnir eru á undan. Okkur langar að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem þú áttir með okkur. Alltaf varstu til staðar og tókst á móti okkur með hlýhug, kærleika og rósemd. Það var ætíð bjart yfir þér, þú fórst þínu fram með ró- legheitum og af staðfestu. Elsku Mæja okkar, innilegar þakkir fyrir allt og megi þú njóta bless- unar með ástvinum í drauma- landinu. Við geymum minningu þína í hjartastað. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blómi er verður að líta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjar dóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni og nú ertu gengin á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Ásdís Hulda Sveinbjörns- dóttir og fjölskylda. Marín Sveinbjörnsdóttir amma tileinkaði sér munum við afkomendur hennar sem eftir lif- um halda í heiðri um ókomna tíð. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Steingrímur Páll Þórðarson. Í dag kveðjum við í hinsta sinn elsku ömmu mína, sem mér þótti óendanlega vænt um. Það voru forréttindi að fá að verða henni samferða í þessu lífi. Hennar fallega, hlýja og góða hjarta hefur slegið sinn síðasta slátt, enda búin að gefa svo mikið af sér. Stórfjölskyldan hennar var umvafin ást og umhyggju alltaf. Áhrif ömmu náðu langt út fyrir það sem myndi kallast hefðbundin ömmustörf. Amma var mér fyr- irmynd í mörgu: sjálfstæð, vilja- sterk, hörkudugleg og alltaf já- kvæð. Amma hélt vel utan um fjölskylduna, sem skipti hana öllu máli, og það var ávallt ljóst að heiðarleiki, hollusta, góðvild og gjafmildi voru leiðarljós hennar í lífinu. Það er sárt að kveðja, en ég ylja mér um ókomna tíð við minningar um allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Ósjaldan kom mað- ur kaldur, blautur og svangur inn til ömmu eftir að hafa verið úti að leika. Þá sagði hún manni að setj- ast á lærið á sér og yljaði á manni hendurnar, sló létt á mallann og sagði: „Það er nú tómahljóð í þessum!“ Í framhaldinu bauð hún manni að kíkja í búrið. Það kom aldrei haust án þess að við færum í berjamó, þó að vissulega hafi alltaf verið mokað meira upp í sig en nokkurn tím- ann í einhvern dall. Ósjaldan var farið í Hróaldsstaði, en stundum í Haga, með viðkomu á Ásbrands- stöðum þar sem við keyptum okk- ur gúmmískó og bismarck-- brjóstsykur hjá Runa. Við bökuðum oft kleinur eins og enginn væri morgundagurinn. Engar kleinur brögðuðust betur en ömmu kleinur. Loks voru það jólin, en þau skipuðu stóran sess hjá fjölskyld- unni, og sér í lagi vegna þeirra hefða sem við eigum ömmu að þakka. Laufabrauðsskurður snemma í desember, ég að skreyta jólatréð hennar á Þor- láksmessu og að stórfjölskyldan komi saman á jóladag eru dæmi um slíkar hefðir. Þrátt fyrir að ég hafi búið í út- löndum síðastliðin 15 ár héldum við góðu sambandi. Ég verð ætíð þakklát fyrir þann tíma sem við náðum að eiga saman á Vopna- firði, nú í október og desember síðastliðnum. Innst inni vissum við báðar að við vorum að kveðjast þrátt fyrir að það væri ekki rætt. Amma vildi að ég eignaðist gift- ingarhringinn sinn og því nýtti ég þann tíma til að fá hana til að segja mér söguna á bak við hring- inn. Það er notalegt að ylja sér við þá hugsun að sú frásögn var okk- ar síðasta spjall. Fyrir utan allar góðu minning- arnar á ég ömmu líka margt að þakka. Eitt stendur þó upp úr meira en annað, ömmu var mikið í mun að maður gleymdi ekki upp- runa sínum. Það var alveg sama hversu lengi maður var að heim- an; þegar við spjölluðum saman minnti hún mann ávallt á ræturn- ar og það að vera sáttur við hlut- skipti sitt í lífinu, hvert sem það var. Að fylla skarð ömmu verður ekki auðvelt en ég hugga mig við þá tilhugsun að nú er hún loksins sameinuð afa á ný. Guð hefur fengið nýjan engil til að vaka yfir okkur. Elsku amma, takk fyrir allt. Hvíldu í friði. Þín nafna, Þorgerður Þórðardóttir. Elsku langamma. Það hefur alltaf verið hluti af því að koma til Vopnafjarðar að heimsækja ömmu Þorgerði. Ömmu sem á steininn en er samt ekki amma Steina heldur amma Þorgerður, mamma ömmu Steinu. Það jafnast ekkert á við kaffi bak við hús í garðinum hjá ömmu og það var alltaf gaman að spjalla við ömmu. Amma fylgdist með okkur leika á steininum. Steinninn var ýmist fjall, stökk- pallur eða Disney-land og góður staður til að stilla sér upp fyrir góða mynd. Manni fannst maður vera orðinn stór þegar maður komst upp á steininn sjálfur. En ef við vorum of lítil fengum við stól hjá ömmu. Langamma var mjög flink að mála og teikna og við eigum mik- ið af fallegu dóti og jólaskrauti sem hún bjó til og er orðið hluti af jólunum okkar, eins og jóla- sveinapokinn undir jólakortin og allt fína skrautið sem við setjum á jólatréð og hugsum þá til lang- ömmu. Langamma átti alltaf ís í frystikistunni og í þau örfáu skipti sem svo var ekki skutlaðist hún bara út í búð á rauða bílnum að kaupa hann. Hún átti líka oft eitthvert gott kex. Í eldhúsinu hennar ömmu var dagatal sem gaman var að skoða og það var líka gaman að leika sér í græna stólnum með fjar- stýringunni. Amma var góð kona með fal- leg brún-græn augu sem elskaði okkur öll mjög mikið. Henni fannst best í heimi að búa á Vopnafirði og henni fannst veðr- ið alltaf gott þar. Hún sat oft í græna stólnum í stofunni og við lékum okkur á gólfinu fyrir fram- an hana þarna hjá svarta styttu- hundinum hjá sjónvarpinu. Hún var alltaf tilbúin að spjalla við okkur. Við munum aldrei gleyma þér. Kveðja, Arnór Freyr Arnarson, Aníta Ósk Arnardóttir og Júlía Bjarklind Arnardóttir. Sólin skein á Vopnafirði þegar við sóttum Þorgerði heim. Þor- gerður var amma Helga Más æskuvinar míns. Hún tók á móti okkur með útbreiddan faðminn. Veitingar voru dregnar fram og mikið spjallað um líðandi stund. Hún átti dótakassa eins og sannri ömmu sæmdi. Börnin dunduðu með leikföngin á meðan fullorðna fólkið spjallaði. Hún rifjaði upp liðnar stundir þegar við vinirnir vorum litlir og spil- uðum fótbolta á túninu ofan við húsið hennar. Við komum inn eft- ir leikinn og fengum hressingu. Hún hlustaði ætíð af þolinmæði og áhuga á lýsingu okkar á leikn- um. Það skipti minnstu hver hafði sigur. Kærleikur skein frá hjarta hennar þegar hún rifjaði upp fallegar minningar um vin- áttu tveggja drengja. Hún átti sinn þátt í að styrkja þá vináttu með gæsku sinni og gestrisni. Ég leit eina lilju í holti, hún lifði hjá steinum á mel. Svo blíð og svo björt og svo auð- mjúk – en blettinn sinn prýddi hún vel. Ég veit það er úti um engin mörg önnur sem glitrar og skín. Ég þræti ekki um litinn né ljómann en liljan í holtinu er mín! Þessi lilja er mín lifandi trú, þessi lilja er mín lifandi trú. Hún er ljós mitt og von mín og yndi. Þessi lilja er mín lifandi trú! Og þó að í vindinum visni, á völlum og engjum hvert blóm. Og haustvindar blási um heiðar, með hörðum og deyðandi róm. Og veturinn komi með kulda og klaka og hríðar og snjó. Hún lifir í hug mér sú lilja og líf hennar veitir mér fró. (Þorsteinn Gíslason) Ég þakka yndislegri konu vin- áttu og góð kynni. Aðstandend- um Þorgerðar viljum við senda hugheilar samúðarkveðjur. Ásgeir Hannes Aðalsteinsson og fjölskylda. FALLEGIR LEGSTEINAR til 15.mars af öllum legsteinum Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Afsláttur Elskuleg eiginkonan mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma BETA EINARSDÓTTIR hjúkrunarkona, Langholtsvegi 39, lést föstudaginn 2. mars á Skjóli. Útför fer fram þriðjudaginn 13. mars klukkan 15. í Áskirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Fjalarr Sigurjónsson Anna Fjalarsdóttir Gísli Skúlason Máni Fjalarsson Anna Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN WAYNE WHEAT, Prestastíg 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans sunnu- daginn 4. mars. Jarðarförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 12. mars klukkan 13. Jón Óskar Jónsson Wheat María Kristinsdóttir Benjamín Jónsson Wheat Elva Dögg Guðbjörnsdóttir og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ALDA MARKÚSDÓTTIR, lést laugardaginn 3. mars. Hún verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 14. mars klukkan 13. Margrét Eggertsdóttir Guðbjörn Sigurmundsson Hildur Guðbjörnsdóttir Árni Guðbjörnsson Alda Kristín Guðbjörndóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGI MÁR ALDAN GRÉTARSSON, sjálfstætt starfandi leiðsögumaður og verktaki, lést af slysförum miðvikudaginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 13. mars klukkan 15. Hulda Hjaltadóttir Atli Már Aldan Ingason Magni Freyr Aldan Ingason Maríanna Ingadóttir Atli Dungal Sigurðsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, TORFHILDUR STEINGRÍMSDÓTTIR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum 7. mars. Sálumessa verður sungin í St. Jósefskirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 13. mars klukkan 15. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlegast láti Sagnfræðisjóð Dr. Björns Þorsteinssonar í Háskóla Íslands njóta þess. Guðrún U. Martyny Donald W. Martyny Ólafur Sigurðsson Anna Bergsteinsdóttir Pétur Már Sigurðsson Stefanía Jónsson María Sigurðardóttir Örn Gíslason barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og frænka, INGIBJÖRG GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR, síðast til heimilis að Álftamýri 56, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 28. febrúar. Jarðsungið verður frá Háteigskirkju föstudaginn 16. mars klukkan 13. Guðjón H. Ólafsson Þrúður Hjelm Hólmfríður J. Ólafsdóttir Sigrún Ólafsdóttir Bergur Bergson Fróði Ólafsson Bergþóra Njálsdóttir Brynjar H. Bjarnason Bjargey Ingólfsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.