Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.03.2018, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 OCEAN MIST Modus Hár og Snyrtistofa Smáralind | harvorur.is REF Stockholm er 12 ára gamalt Professional haircare merki Ocean Mist er 100 % Vegan , sulfate, Paraben, glúten og Cruelity free Verð 2.560 kr. Sjá nánar á harvorur.is Árni Þór Hallgrímsson,badmintonþjálfari hjáTBR, á 50 ára afmæli í dag. Hann hefur þjálfað hjá TBR síðan 1990 auk þess sem hann var landsliðsþjálfari frá 2007 til 2013. Árni varð sautján sinnum Íslandsmeistari í badminton, einu sinni í einliðaleik, tíu sinnum í tvíliða og sex sinnum í tvenndarleik. Hann keppti einnig á Ólympíu- leikunum í Barcelona árið 1992, en á þeim leikum var í fyrsta sinn keppt í badminton. Þar vann hann einn leik en tapaði þeim næsta auk þess sem þeir Broddi Kristjánsson töpuðu í tvíliðaleik. Hann var því eini Íslendingurinn sem hafði unnið leik á ólympíuleikum þar til Ragna Ingólfsdóttir keppti á Ólympíuleikunum í London árið 2012. „Eftir að Ragna hætti höf- um við ekki átt neinn spilara sem hefur staðið mjög framarlega á alþjóðavettvangi. Það er mikil samkeppni núna í öllum íþrótta- greinum og það er hægt að stunda nánast allar greinar í Laug- ardalnum núna. Fimleikar hafa verið mjög vinsælir undanfarið og því hefur eiginlega vantað stelpur í badminton og fleiri greinum hef ég heyrt. Fyrir utan badminton þá fer Árni fer reglulega að veiða, í golf og er í Golfklúbbi Reykjavíkur. „Svo held ég mikið með Southamp- ton í enska boltanum og náttúrlega ÍA.“ Árni var fyrirliði ÍA í fimmta flokki í fótbolta, sem varð Íslandsmeistari en þeim hópi voru kappar eins og Sigursteinn Gíslason, Alexander Högnason og Valdimar Kr. Sigurðsson. „En svo fór ég alveg út í badmintonið og flutti suður sextán ára.“ Íslandsmót unglinga í badminton verður haldið á Akranesi um helgina og Árni verður því á fullu að vinna í dag en heldur síðar upp á afmælið með fjölskyldunni. „Svo er ég búinn að ákveða að fara loksins á Þjóðhátíð í Eyjum í ár í fyrsta sinn í tilefni af tíma- mótunum, núna er ég búinn að kaupa miða og allt.“ Árni er í sambúð með Ingibjörgu Hreindal Ásgeirsdóttur. Börn þeirra eru María f. 1993, Sigríður f. 1996, en hún er Íslandsmeistari í tvíliðaleik, og Sigurbjörg, f. 2006, og fóstursonur Árna er Jóhann Páll Jóhannsson, f. 1990, Barnabörnin eru Anthony Þór, Atlas Máni og Victor Leó. Íslandsmeistarar Feðginin Árni og Sigríður. Staddur í heima- bænum um helgina Árni Þór Hallgrímsson er fimmtugur í dag G uðfinna Thorlacius fædd- ist í Reykjavík 10.3. 1938 og ólst upp í Vest- urbænum. Hún gekk í Miðbæjarskólann og síðar Gagnfræðaskólann við Hring- braut. Á sumrin var hún í sveit á Varmalæk í Borgarfirði hjá hjón- unum Jarþrúði Grétu Jónsdóttur og Jakobi Jónssyni. Þangað fór hún fyrst 7. ára gömul og var þar í 14 sumur. Guðfinna lauk landsprófi og stund- aði nám í MR og lauk þar stúdents- prófi 1958. Hún lauk námi sem hjúkr- unarfræðingur við Hjúkrunarskóla Íslands 1961, fór í framhaldsnám í kennslufræði hjúkrunar í Árósum og lauk kennaraprófi árið 1964. Guðfinna var hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri frá 1961, var hjúkrunarframkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri Guðfinna Thorlacius, hjúkrunarfræðingur og kennari – 80 ára Fjölskyldan Guðfinna og Aðalgeir með dætrum sínum þremur, talið frá vinstri: Margréti, Guðfinnu og Kristjönu. Félagslynd og alltaf með eitthvað á prjónunum Tollý og Tollý Mæðgurnar og nöfnurnar sem báðar eru kallaðar Tollý. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.