Morgunblaðið - 10.03.2018, Side 46
Norrænu tónlistarverðlaunin voru afhent í Ósló um síðustu helgi í tengslum
við tónlistarhátíðina by:Larm. Pistilritari var á staðnum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Greinarhöfundur situr í dóm-
nefnd Norrænu tónlistarverð-
launanna (Nordic Music Prize),
verðlauna sem stofnað var til árið
2010 en fyrsta árið sigraði Jónsi
okkar með plötunni Go. Í ár vor-
um við með þrjá fulltrúa á tólf
platna stuttlista – það mesta sem
við mörlandar höfum átt – og
voru það þau Högni, Alvia Is-
landia og Björk. Allt kom fyrir
ekki og verðlaununum hampaði
Susanne Sundfør fyrir plötu sína
Music for People in Trouble. Hún
var vel að þessu komin; platan ein
sú besta frá síðasta ári, en Íslend-
ingurinn í manni beit að sjálf-
sögðu harkalega í vörina þegar
þetta var tilkynnt. Yggldi sig
jafnvel. Allt tal um sameiginlega
þætti norrænnar popptónlistar er
vandkvæðum bundið. Það er eðli-
lega vilji til að stilla fram ein-
hverju sameiginlegu (það er hent-
Norðurlandarokk
ugt markaðslega) en það sést hins
vegar (og heyrist) að margir og
ólíkir hlutir eru í gangi í þessum
löndum. Þessi norræni tónn er því
ansi fjöltóna ef svo mætti segja.
Til að blómleg tónlistarmenning
fái þrifist á þessum svæðum er
hins vegar nauðsynlegt að halda
henni að væntanlegum hlust-
endum og margt gott starfið er
unnið að því leytinu til og með
Norrænu tónlistarverðlaununum
er leitast við að stimpla það inn
að margt popplegt þrekvirkið er
unnið hér á norðurslóðum ár
hvert.
Tónlistarhátíðin by:Larm,
sem skýldi verðlaunaafhending-
unni ef við getum sagt sem svo,
er mikilvægasta „bransa“-hátíð
Norðurlanda, því að samfara tón-
leikum um alla borg, sem hafa að
langmestu leyti að gera með ný-
leg bönd frá Norðurlöndunum,
eru erindi, ráðstefnur, fundir og
allsherjar samkrull allra þeirra
sem keyra þennan heim vopnaðir
lyklaborðum og netfangalistum.
Eftir verðlaunahátíðina settist ég
niður með kollegum mínum í
nefndinni ásamt fleiri spöðum,
fulltrúum frá útgáfum eins og
Rough Trade og Domino. Við
hliðina á mér sat Rob nokkur Yo-
ung, breskur tónlistarblaðamaður
sem var eitt sinn ritstjóri Wire og
er höfundur Electric Eden, frá-
bærs rits um breska þjóðlaga-
tónlist og vinnur hann nú að bók
um Can. Young lét falleg orð
falla um Jóhann okkar Jóhanns-
son á verðlaununum og þakkaði
ég honum mikið og vel fyrir það.
Tónleikum var svipt upp
linnulítið eins og segir og þefaði
maður af kornungum bílskúrs-
sveitum á vel sveittum rokk-
» Tónlistarhátíðinby:Larm, sem skýldi
verðlaunaafhending-
unni, ef við getum sagt
sem svo, er mikilvæg-
asta „bransa“-hátíð
Norðurlanda.
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudaginn 11. mars kl. 14:
leiðsögn með Magnúsi Gottfreðssyni prófessor
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudaginn 11. mars kl. 14-16: Þjóðbúningadagur
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR 16.2. - 24.6.2018
KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018
- Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign
ORKA 14.9. - 29.4.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 29.04.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Tvær nýjar sýningar verða opnaðar
í Listasafni Árnesinga (LÁ) í Hvera-
gerði í dag kl. 14. Þjórsá þar sem
Borghildur Óskarsdóttir hefur unn-
ið innsetningu, umhverfisverk, í
safnið og Undirstaða og uppspretta
– sýn á safneign þar sem verk í eigu
safnsins eru til skoðunar.
„Í verkinu Þjórsá skrifar Borg-
hildur nýjan kafla í heildarverk sitt
og setur rannsóknina á fjölskyldu-
sögunni í fyrirbærafræðilegt sam-
hengi. Áherslan er ekki lengur á
ættfræðina og frásagnir fólksins af
baráttunni við sandinn, heldur á
beina náttúrutengingu vitundar-
innar við umhverfið,“ skrifar Æsa
Sigurjónsdóttir í sýningarskrá. Í
tilkynningu frá safninu kemur fram
að með því að setja sýninguna
Þjórsá upp samhliða sýningu á
verkum úr safneign LÁ verði
spurningar um mat á verðmætum
og gildi varðveislu enn áleitnari. Í
safneign LÁ eru varðveitt um það
bil 550 listaverk. „Með sýningunni
Undirstaða og uppspretta – sýn á
safneign er sjónum einkum beint að
þeim verkum sem nýlega hafa bæst
í safneignina en einnig að nokkrum
öðrum verkum sem flest hafa ekki
verið sýnd áður í safninu. Heiti sýn-
ingarinnar vísar í það að undir-
staða safnastarfs er safneignin og
hún er varðveitt til þess að vera
öðrum uppspretta til frekari sköp-
unar bæði nú og á komandi tímum,“
segir í tilkynningu. Meðal höfunda
eru Einar Jónsson, Ásgrímur Jóns-
son, Valtýr Pétursson og Valtýr
Stefánsson.
Sýningarstjóri beggja sýninga er
Inga Jónsdóttir. Þær standa til 10.
maí og aðgangur er ókeypis.
Ljósmynd/Sigurður Bogi
Þjórsá Borghildur Óskarsdóttir
Tvær sýningar í
Listasafni Árnesinga
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
ég varð bara óvart fokking ást-
fangin nefnist sýning sem Hildur
Ása Henrýsdóttir opnar í Grafík-
salnum, Tryggvagötu 17 (sjávar-
megin), í dag milli kl. 17 og 19. Um
er að ræða þriðju einkasýning lista-
konunnnar sem útskrifaðist frá
myndlistadeild Listaháskóla Íslands
vorið 2016.
Samkvæmt upplýsingum frá lista-
konunni samanstendur sýningin af
málverkum, teikningum, skúlptúr-
um og myndbandsverki sem fjalla á
einlægan hátt um upplifun hennar á
höfnun og ástarsorg. „Flest verka
minna spretta út frá eigin reynslu,
þar með talið á þessari sýningu,“
segir Hildur og tekur fram að hún
noti listina mikið til úrvinnslu eigin
tilfinninga og upplifana.
Um sýningartitilinn segir hún:
„Yfirleitt tengjum við það að verða
ástfangin við eitthvað jákvætt, gott
og spennandi, en þegar ástin er
óendurgoldin virkar þetta meira
eins og að detta á rassinn eða lenda
í óhappi. Þetta vísar líka til þess
þegar sambandið var þess eðlis að
því var aldrei ætlað að verða eitt-
hvað þó mann langaði í eitthvað
meira, þá upplifir maður ástina sem
óvelkomna tilfinningu. Síðan þarf
maður að díla við tilfinningalegu
þynnkuna af höfnuninni,“ segir
Hildur og bendir á að hún sé langt í
frá sú eina sem þurft hafi að takast
á við þessar tilfinningar.
„Ég vona því að margir geti tengt
við þessa reynslu. Markmið mitt í
flestum verka minna er að glíma við
ýmis konar tabú og prívat upplifanir
og skoða opið og skapa umræðu. Ég
nota sjálfa mig sem fórnarlamb eða
tilraunadýr í þeim rannsóknum.“
Aðspurð segist Hildur hafa unnið
sýninguna frekar hratt á síðustu
mánuðum og í góðri samvinnu við
Birki Karlsson sýningarstjóra. „Við
erum vinir frá fornri tíð. Hann dreg-
ur mig á fætur aftur þegar ég kemst
í þrot og beitir rökhugsun þegar ég
er búin að ofhugsa hlutina. Hann er
ákveðin ljósmóðir fyrir mig.“
Að sögn Hildar gegnir tónlist
stóru hlutverki á sýningunni, en
tónlistarstjórn er í umsjón söngva-
skáldsins Svavars Knúts. „Mörg
verkanna heita eftir lögum sem ég
hef verið að hlusta á,“ segir Hildur
sem leikur sjálf á ukelele og syngur
í myndbandsverki. „Svavar Knútur
sá um þjálfun og upptökur á hljóði
fyrir það verk. Ég er ekki tónlist-
armaður, en ákvað fyrir þetta til-
tekna verk að spila lag og syngja,“
segir Hildur sem ætlaði á sínum
yngri árum að verða leikari. „Eftir
útskrift úr menntaskóla setti ég
stefnuna á myndlistina, en lauk
fyrst BA-námi í nútímafræði frá Há-
skólanum á Akureyri áður en ég
þorði að taka skrefið. Mér fannst
myndlistin betur ná að sameina þau
svið sem ég hef alltaf haft áhuga á
þegar kemur að skapandi greinum.
Myndlistin í dag er það opin að þú
getur allt í senn verið hálfgerður
leikari, teiknari og tónlistarmaður í
sköpunarverkinu.“
Sýningin stendur til 25. mars og
verður opin mið. til fös. kl. 17-19 og
um helgar kl. 14-18. Hildur mun
sjálf sitja yfir sýningunni og ræða
við gesti um verkin sé þess óskað.
Morgunblaðið/Hanna
Reynsla „Flest verka minna spretta út frá eigin reynslu, þar með talið á þessari sýningu,“ segir Hildur Ása.
„Eins og að detta á rass-
inn eða lenda í óhappi“
Hildur Ása opnar ég varð bara óvart fokking ástfangin