Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 66. tölublað 106. árgangur
NETIÐ BÆÐI
HIMNASENDING
OG SKAÐVALDUR
HÚMORINN
FLYTUR MANN
LANGT
FUNDUR UM
ÍSLENSKAN
LANDBÚNAÐ
ÞORSTEINN ÁRNASON 12 MÁLIN RÆDD Á KANARÍ 11JÓN HILMAR 26
Sjálfstæðismenn voru glaðir í bragði og sáttir eftir kraftmik-
inn og jákvæðan landsfund sem haldinn var í Laugardalshöll
um helgina. Konur létu að sér kveða og náðu góðri kosningu í
málefnanefndir flokksins sem og forystu. Landsfundargestir
höfðu það á orði að þetta væri jákvæðasti fundurinn eftir
hrun. Nýhafið kjörtímabil á Alþingi og komandi kosningabar-
átta á sveitarstjórnarstigi setur svip sinn á starf flokksins sem
gengur jákvæður og bjartsýnn til kosninga að sögn Bjarna
Benedikssonar, formanns flokksins. »4 og 16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjartsýni ríkir hjá yngstu forystusveit í sögu Sjálfstæðisflokksins
„Mér er fullkunnugt um hve staðan
er slæm víða,“ segir Sigurður Ingi
Jóhannsson samgönguráðherra.
Mikið hefur verið fjallað um slæmt
ástand vega að undanförnu og segir
ráðherra mikilvægt að tekið sé heild-
sætt á málum en ekki með skyndiað-
gerðum. Nú sé unnið að samgöngu-
áætlun sem eigi að ríma við
ríkisfjármálaáætlun. Samkvæmt
gögnum sem liggi fyrir þurfi minnst
160-170 milljarða króna í nauðsyn-
legar framkvæmdir og jafnvel meira.
Sigþór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Hlaðbæjar Colas, segir í viðtali
við Morgunblaðið að sér þyki sorg-
legt að sjá hve bágt ástand sé víða og
þar megi litlu viðhaldi kenna um.
Krónunni hafi verið kastað fyrir aur-
inn og dýrkeyptar afleiðingar þess
séu nú að koma í ljós. »6
Vegakerfið
þarf 170
milljarða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð Ákall um úrbætur víða frá.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
hefur farið þess á leit við fram-
haldsskóla að þeir sníði mæting-
arreglur sínar með þeim hætti að
heimsóknum á heilsugæslustöðvar
vegna læknisvottorða fækki.
Í tilkynningu frá skólaráði
Menntaskólans við Reykjavík segir
að nemendum yfir 18 ára verði
ekki lengur gert skylt að framvísa
læknisvottorði vegna veikinda sem
vara í fimm daga eða skemur. Að-
eins þurfi að hafa með sér miða
„undirritaðan af aðstandanda“ sem
staðfesti veikindin. Það sama gildi
því nú um nemendur sem náð hafi
átján ára aldri og þá sem yngri
eru.
Traust verði lagt á nemendur
Óskar Sesar Reykdalsson, fram-
kvæmdastjóri lækninga hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, segir
þetta engu breyta um að heilsu-
gæslan skrifi vottorð fyrir þá sem
telja sig þurfa og vottun alvarlegri
veikinda breytist ekki.
„Það er eðlilegt að fólk sé frá í
nokkra daga á ári. Þetta er hósti,
kvef og annað slíkt sem við erum
að tala um. Við töldum að starf
okkar væri kannski betur nýtt til
annarra verka en að votta þessi
veikindi og ræddum við skólayfir-
völd hvort það væri ekki til betri
leið, t.d. hvort það væri ekki hægt
að treysta nemendum sjálfum fyrir
þessu,“ segir hann, umrædd vott-
orð njóti þó sérstöðu.
„Það eru mörg vottorð sem er
mikilvægt að aðeins séu gefin út af
læknum en það eru einstaka vott-
orð sem við teljum að annaðhvort
þurfi ekki að gera eða að aðrir geti
gert. Þetta er fyrst og fremst á
hendi skólayfirvalda en við töldum
að ef það væri hægt að gera þetta
með einhverjum öðrum hætti, þá
væri það kannski skynsamlegt.
Við erum alltaf að reyna að bæta
okkur, nýta starfskraftinn betur og
sinna helst þeim sem þurfa mest á
því að halda,“ segir Óskar og nefn-
ir að ráðstöfunin sé beinlínis hluti
af gæðastjórn heilsugæslunnar.
Engin mótstaða hjá skólunum
Spurður hvort beiðnin hafi mætt
mótstöðu hjá einhverjum skóla-
stjórnendum, segir Óskar að
læknar hafi ekki heyrt nein mót-
mæli. „Ég veit ekki hvernig þetta
fer og hef ekki heyrt neikvæðar
raddir úr þeirra röðum,“ segir
Óskar.
„Í okkar gæðavinnu höfum við
gengið út frá því að vera allavega
ekki að sinna verkefnum sem eru
ónauðsynleg. Þetta er eitt af þeim
verkefnum sem við töldum mögu-
lega mega missa sín,“ segir hann.
Læknisvottorðum
vegna fjarvista fækki
Heilsugæslan mælist til þess að skólarnir breyti reglunum
Morgunblaðið/Eggert
Heilsugæsla Hugmyndin er liður í
gæðastjórnun heilsugæslunnar.
Þegar verslunar-
og þjónustufyrir-
tæki auglýsa eft-
ir starfsfólki í
hlutastörf á yfir-
vinnutíma berst
fjöldi umsókna.
Illa gengur hins
vegar að manna
fullar stöður á
hefðbundnum
dagvinnutíma.
Þetta kom fram í máli Margrétar
Sanders, formanns Samtaka versl-
unar og þjónustu, á ársfundi SVÞ í
síðustu viku. Hún leggur til lækkun
yfirvinnukaups gegn hækkun
grunnlauna. »14
Leggur til lækkun
yfirvinnukaups
Margrét Sanders
Víðförulasti merkti fuglinn sem
sást hér á landi í fyrra var litmerkt
sanderla. Hún sást á Melrakka-
sléttu 6.910 kílómetra frá staðnum
þar sem hún var merkt, sem var í
Gana á vesturströnd Afríku. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands um
fuglamerkingar síðasta árs.
Í skýrslunni er einnig fjallað um
stormmáf sem fannst í Swampscott
í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Hann hafði upphaflega verið
merktur við Akureyrarflugvöll
sumarið 2013. Hann hafði því
ferðast 4.110 km að heiman þegar
hann náðist. »10
Sást 6.910 km frá
merkingarstaðnum