Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018
Íslenskt barn mun verða bolta-
beri á leik Íslands gegn Argen-
tínu í fyrsta leik karlalandsliðsins
á heimsmeistaramótinu í Rúss-
landi í sumar. Börn á aldrinum
11-14 ára eru hvött til að senda
myndband til bílaumboðsins
Öskju, sem sýnir ástríðu barnsins
fyrir knattspyrnu. Vinningshafi
keppninnar mun vinna ferð með
forráðamanni til Rússlands og um
leið verða fyrsti boltaberi í sögu
Íslands á heimsmeistaramóti.
aronthordur@mbl.is
Íslenskt barn
verður bolta-
beri á HM
„Þetta hefur aldrei farið eins vel af
stað varðandi fjölda hvalategunda,“
segir Heimir Harðarson, skipstjóri
hjá Norðursiglingu, um mikinn fjölda
tegunda í Skjálfandaflóa undanfarið.
Hann segir að það sem af er vertíðar
hafi átta tegundir sést í flóanum, en
það er met. „Það er ennþá mars og ég
held að við höfum aldrei séð annan
eins fjölda,“ segir Heimir, en í gær
sáust höfrungar, langreyður, búr-
hvalir og steypireyður í flóanum.
Hann segir að búrhvalir séu afar
sjaldgæf sjón í hvalaskoðun. „Ég fékk
spurnir af þessu frá föður mínum þeg-
ar ég var í siglingu á lítilli skútu, en
ákvað að snúa af leið og ná nokkrum
myndum af þessu sökum þess hversu
sjaldgæf sjón þetta er,“ segir Heimir.
Aðspurður segir hann aldrei hafa
verið eins mikið að gera í hvalaskoðun
á þessum árstíma. Mikil eftirspurn
hafi verið það sem af er vetri, teg-
undir aldrei verið fleiri og veðurskil-
yrði mjög góð.
aronthordur@mbl.is
Hvalategundir hafa
aldrei verið fleiri
Mikil eftirspurn eftir hvalaskoðun
Hvalaskoðun Metfjöldi hvalategunda hefur verið í Skjálfandaflóa í mars.
Fjöldi norskra skipa hefur verið við
höfnina á Fáskrúðsfirði undanfarna
daga. Friðrik Mar Guðmundsson,
forstjóri Loðnuvinnslunnar, segir að
síðustu ellefu daga hafi Loðnuvinnsl-
an tekið á móti sjö norskum skipum í
hrognatöku. „Við vorum með norska
skipið, Steinsund, hjá okkur í löndun
á föstudaginn. Við fengum síðan eitt
skip í gær, Slaaterrøy, og svo er enn
eitt, Knester, væntanlegt í dag,“
segir Friðrik og bætir við að ástæð-
an fyrir þessum mikla fjölda sé sú að
loðnukvóti Norðmanna sé við það að
klárast. Loðnuvinnslan hefur af
þeim sökum tekið á móti um 10.000
tonnum af loðnu undanfarna daga.
„Norðmenn eigi ekki nema 3.000
tonn eftir af um 122.500 tonn kvóta.
Við höfum því tekið á móti þessum
skipum í hrognatöku,“ segir Friðrik.
Að löndun lokinni halda flestir
bátanna að ströndum Írlands þar
sem veiðar á kolmunna fara fram.
aronthordur@mbl.is
Taka á
móti norsk-
um skipum
Um 10.000 tonn af
loðnu síðustu 11 daga
Ljósmynd/Jónína G. Óskarsdóttir
Steinsund Skipið var við höfnina á
Fáskrúðsfirði seint í síðustu viku.
Elsa Lára Arnar-
dóttir, skrifstofu-
stjóri og fyrrver-
andi þingkona
Framsóknar-
flokksins, mun
leiða lista Fram-
sóknar og frjálsra
í sveitarstjórnar-
kosningunum á
Akranesi í maí
næstkomandi.
Elsa Lára sat á þingi fyrir Fram-
sóknarflokkinn á árunum 2013-2017.
Hún tekur því við keflinu af Ingi-
björgu Pálmadóttur sem verið hefur
oddviti flokksins undanfarið kjör-
tímabil. Tekur Ingibjörg nú heiðurs-
sæti á listanum.
Næst á eftir Elsu Láru á listanum
koma svo þau Ragnar Baldvin Sæ-
mundsson, verslunarmaður, Liv Åse
Skarstad húsmóðir og Karitas Jóns-
dóttir verkefnastjóri.
Elsa Lára
leiðir Fram-
sókn á Skaga
Elsa Lára
Arnardóttir