Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 lÍs en ku ALPARNIR s Ármúli 40 // 108 Reykjavík Sími 534 2727 // www.alparnir.is www.alparnir.is Góð gæði Betra verð   20 - 50% afsl. af skíðavörum til páska. Skíðahjálmar og bakhlífar 20 - 30% afsl. Gönguskíðabúnaður 30% afsl. Svigskíðabúnaður 30% afsl. Fjallaskíðabúnaður. Tilboð á pakka 199.995 kr. Skíðafatnaður 20 - 50% afsl. Snjóbrettabúnaður 30% afsl. Skíðapokar og skótöskur 30% afsl. PÁSKAÚTSALA TAKMARKAÐ MAGN Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það kom glöggt fram á fundinum að fólk kann að meta sinn landbúnað og veit að hann er í fremstu röð,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og landbúnaðarráðherra, um fund ríf- lega 200 Íslendinga á Kanaríeyjum um helgina. Fundir af þessu tagi eru ekki nýir af nálinni á Kanarí- eyjum, en Guðni segir að um fimm- tán ára gamla hefð sé að ræða. „Maður að nafni Sturla Þórðarson hefur haldið uppi pólitískum fund- um alla laugardagsmorgna hér á Kanarí í um fimmtán ár. Fundina kallar hann oft framsóknarfundi í syðsta kjördæmi. Það er yfirleitt mjög fjölmennt á þessum fundum, en hér geta menn tekist á og rætt málin,“ segir Guðni. Ræddu íslenska landbúnaðinn Nú um helgina var yfirskrift fundarins, íslenskur landbúnaður, en Guðni auk annarra hélt erindi á fundinum. „Hér voru hörkumenn með framsögur. Björn Sigurðsson, bóndi í Úthlíð í 65 ár og sjálfstæðis- maður, hélt ræðu. Þá var Örn Guð- jónsson, þekktur vinstrimaður frá Hveragerði, með erindi og að lokum hélt ég örstutta tölu. Framsaga okk- ar þriggja spannaði því í raun stjórnarflokkana þrjá,“ segir Guðni og bætir við að ræðumenn hafi tæpt á helstu hættum sem nú steðja að íslenska landbúnaðinum. „Erlendis sprauta menn lyfjum og hormónum í dýrin, en lyfjaónæmið er að verða eitt stærsta vandamál landbúnaðar- ins. Við fórum yfir þá sérstöðu sem Ísland býr við, að eiga þessa stór- kostlegu auðlind og heilbrigðustu búfjárstofna heimsins og töldum að aldrei mætti flytja inn hrátt kjöt til landsins,“ segir Guðni. Að ræðum loknum var haldin kosning meðal fundargesta um hvort leyfa ætti innflutning á hráu kjöti til Íslands. Mikil andstaða við innflutning Guðni segir niðurstaða kosning- arinnar hafa verið afgerandi. „Það voru allir nema einn fundargestanna á móti innflutningi á hráu kjöti. Þá ákváðum við að spyrja fundargesti hvort menn aðhylltust þá stefnu að allar mjólkurvörur, allt grænmeti og allt kjöt yrði framleitt á Íslandi. All- ir greiddu atkvæði með því á fund- inum,“ segir Guðni og bætir við að áhugavert væri að sjá niðurstöð- urnar ef íslenska þjóðin yrði spurð sömu spurninga í skoðanakönnun. Í framhaldinu risu fundargestir á fætur og hrópuðu þrefalt húrra fyrir íslenskum bændum. „Þetta var al- gjörlega mögnuð stund enda sam- koman fjölmennari en landsfundir margra flokka heima á Íslandi,“ segir Guðni sem fer nær árlega til Kanaríeyja og dvelur þar í um mán- uð í senn. Vettvangur fyrir skoðanaskipti Hann segir fundina hafa verið misfjölmenna í gegnum tíðina, yfir- leitt sé mætingin þó góð. „Á fund- unum í ár hafa verið á þriðja hundr- að manns. Mestur var fjöldinn þegar ég sat sem ráðherra en þá voru um 450 manns sem mættu á fundina. Fundirnir eru samt ávallt vinsælir enda fá menn hér tækifæri til að ræða málin við samherja jafnt sem mótherja í pólitíkinni,“ segir Guðni. Spurður um hvort mikil andstaða við innflutning á hráu kjöti hafi komið honum á óvart segir hann svo ekki vera. „Fundargestir voru, þvert á flokkslínur, sammála um að innflutning á hráu kjöti mætti aldrei leyfa. Læknar og sérfræðingar hafa margsinnis varað við þessari opnun fyrir innflutning á erlendu kjöti sem nú á að framkvæma. Íslenski land- búnaðurinn er auðlind sem mun ein- ungis verða verðmætari þegar fram líða stundir enda mun eftirspurn eftir hreinni matvælaframleiðslu og fæðuöryggi aukast mikið á næstu árum,“ segir Guðni. Staða íslensks landbúnaðar rædd  Guðni Ágústsson meðal gesta á fjölmennum fundi Íslendinga á Kanarí  Kalla samkomuna fram- sóknarfund í syðsta kjördæmi  Mikil andstaða meðal fundargesta við innflutning á hráu kjöti Félagar Guðni ásamt Birni Sigurðssyni, bónda í Úthlíð og sjálfstæðismanni. Báðir héldu þeir tölu á fundinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.