Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Um 3000 þjónustufyrirtæki eru á skrá hjá finna.is HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ég er ekki mikið fyrir aðtaka sviðið en ég hefgaman af því að segja fráog þykjast vera númer,“ segir Þorsteinn Árnason sem tókst að stela senunni þegar þyrla Land- helgisgæslunnar sem var að sýna í Bolungarvík daginn fyrir sjó- mannadag flaug skyndilega í burtu inn Ísafjarðardjúpið til þess að sækja Þorstein sem í daglegu tali er kallaður Steini. Hann hafði slasast alvarlega í mótorhjólaslysi og var fluttur með hraði á heilsugæsluna á Hólmavík á meðan beðið var eftir þyrlunni. „Þetta var ekki í fyrsta sinn sem ég slasast á mótorhjóli. Árið 2011 slasaðist ég illa á fæti, var í tvo mánuði á spítala og fimm mánuði frá vinnu,“ segir Steini og lýsir slys- inu. „Í augnabliks athugunarleysi missti ég einbeitinguna og þá er voðinn vís. Ég fór af stað á ljósum og reiknaði með að næstu ljós væru samtengd en svo var ekki. Ég var kominn of nálægt öðru mótorhjóli og lét mig detta frekar en að lenda í árekstri.“ Afleiðing fallsins var sú að ann- ar fóturinn á Steina klemmdist milli hjóls og kantsteins. Ökklinn og öll ristarbeinin brotnuðu. Um tíma var tvísýnt um hvort Steini héldi fram- hluta á hægri fæti. „Afleiðingar slyssins eru þær að ég þarf að ganga í sérsmíðuðum skóm þar sem græða þurfti nýja húð á ristina og hún er sérlega við- Erfitt að reiða sig á hjálp og missa frelsi Þorsteinn Árnason vélfræðingur hefur tvisvar lent í alvarlegu mótorhjólaslysi. Hann er nú í endurhæfingu eftir að hafa brotið alla hálsliði og nokkur rifbein. Steini eins og hann er kallaður ber heilbrigðiskerfinu vel söguna hvað varðar þjónustu vegna meiðslanna sem hann hlaut í báðum slysunum. Steini segir að góð samskipti skipti gríðarlegu máli í bataferlinu og gott sé að grípa til húmorsins. Þrautseigur Steini með hönd í fatla nýkominn úr veiði með syni sínum. Væntumþykja Dóttirin Þóra og dótturdóttirin Bergþóra Lind í heimsókn. Sýnishorn fagna vorjafndægri annað kvöld. þriðjudag. Á vorjafndægri eru dagur og nótt jafnlöng um alla jörð. Í tilefni vorjafndægurs heldur Sýn- ishorn sitt fyrsta Heimshornakvöld í samstarfi við Kakó með Kamillu. Á Heimshornakvöldinu verður gest- um undir stjórn Kamillu Ingibergs- dóttur, boðið í kakóhugleiðslu með kakói frá Gvatemala undir ljúfum tón- um úr kristalsskálum og amalakrist- öllum frá ýmsum heimshornum. Kamilla Ingibergsdóttir jógakennari hefur stundað jóga og hugleiðslu um árabil . Hún kynntist kakóinu frá Gvatemala fyrst 2016 og hefur síðan farið fjórum sinnum til kakólands til að kynna sér krafta kakóplöntunnar betur. Hún skipuleggur endurnærandi ferðir til San Marcos við Atitlan- vatnið. Kamilla hefur notað kakóið til að efla andlega og líkamlega heilsu, dýpka hugleiðslu og í jógaiðkun. Kakóið og amalakristallar eru talin geta hjálpað til við að ná ró, tengingu inn á við og opna hjartastöðina. Heimshorn, Sýnishorn er röð við- burða sem ganga út á að kynna menn- ingu og vörur frá ólíkum heims- hornum. Orkusteinar og kristallar sem not- aðir verða í kakóhugleiðslunni eru fluttir inn frá fjölmörgum löndum af fyrirtækinu Amala sem rekið er af hönnuðinum og steinasafnaranum Ragnheiði Ösp. Í Heimshorni á morgun kynnir Ólöf Erla Bjarnadóttir keramíker, bolla sem hún vinnur sérstaklega út frá þema kvöldsins, vorjafndægur. Bollarnir verða í framhaldinu til sölu í Sýnis- horni. Á Heimshornakvöldi gefst þátttak- endum tækifæri til að gefa sér tíma til þess að slaka á og skilja verkefnin eft- ir heima. Heimshornakvöldið hefst kl. 20 og stendur til kl. 21.30. Kakó og Kristallar fer fram í Sýnis- horni, Sundaborg 1, í Reykjavík og kostar 2.900 kr. Til þess að tryggja sér pláss er nauðsynlegt að skrá sig með því að senda póst á netfangið, synishorn.verslun@gmail.com eða rosp@umemi.com Í tilefni vorjafndægurs Kristaltært Amalkristall og kristal- skálar gefa frá sér ljúfa tóna. Kakó, Keramík og Kristallar Vorjafndægur Þegar dagur og nótt eru jafnlöng um alla jörð er góður tíma- punktur fyrir kakóhugleiðslu með kakói frá Gvatemala í keramíkbollum. Ljósmynd/Birta Rán Linda Hogan, prófessor í sam- kirkjulegri guðfræði við Trinity- háskólann í Dublin, er sjötti fyrirles- ari í fyrirlestraröð RIKK – Rann- sóknastofnunar í jafnréttisfræðum – og Jafnréttisskóla Háskóla Samein- uðu þjóðanna (UNU-GEST) vorið 2018. Hogan flytur fyrirlestur sem hún nefnir, Trú, kyn og stjórnmál í ljósi mannréttinda. Sifjafræðileg greining. Í fyrirlestrinum verður því haldið fram að trúarbrögð geti verið mikil- vægur bakhjarl í baráttu fyrir mann- réttindum kvenna en því aðeins að sifjafræðilegri gagnrýni sé beitt á trúarbrögðin. Slík gagnrýni skori á hólm eðlishyggjulegan skilning á menningu, einsleitni samfélaga og óbreytanleika hefða. Fyrirlestraröð RIKK (UNU-GEST) er tileinkuð Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna en 70 ár eru síðan hún var samþykkt. Mannrétt- indayfirlýsingin nær yfir grundvallar- réttindi sem allar manneskjur eiga tilkall til. Fyrirlesturinn verður fluttur í Há- tíðasal Háskóla Íslands í hádeginu í dag mánudag. Fyrirlestraröð RIKK Trú og mannréttindi umdeild Mannréttindayfirlýsing Linda Hogan, prófessor í samkirkjulegri guðfræði, ræðir um trú, kyn og stjórnmál í hátíðarsal Háskóla Íslands í hádeginu í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.