Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 14
Hátt yfirvinnukaup kann að skýra langa vinnuviku VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þegar verslunar- og þjónustufyrirtæki auglýsa laus hlutastörf á yfirvinnutíma er enginn skortur á um- sóknum, en treglega gengur að manna fullar stöður á hefðbundnum dagvinnutíma. Þetta segir Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, en þetta fjallaði hún um á ársfundi SVÞ í síðustu viku og benti þar á að fylgja mætti fordæmi Dana þar sem yfirvinnukaup er hlutfallslega lægra en grunnlaunin aftur á móti hærri. „Á Íslandi er launakostnaður fyrirtækja hlut- fallslega sá sami og á hinum löndunum á Norð- urlöndunum, en samt eru hinar Norðurlandaþjóð- irnar að borga töluvert hærri grunnlaun. Þá bjóða hin löndin starfsfólki yfirleitt upp á meiri sveigjan- leika svo það geti aðlagað vinnustundirnar betur eigin þörfum,“ segir Margrét og bendir á að hátt yfirvinnukaup kunni að skýra hvers vegna vinnu- vikan er eins löng og raun ber vitni hjá meðal Ís- lendingnum. „Íslendingar vinna 15% meiri yfir- vinnu en Danir og hlýtur m.a. að stafa af því að verið er að skapa ákveðna hvata þegar yfirvinnu- greiðslur eru háar en grunnlaunin lág. Samt skilar þessi ofuryfirvinna á Íslandi okkur ekki miklu, og heildarafköstin eru svipuð og hjá hinum Norður- landaþjóðunum þó að vinnuvikan sé mun lengri.“ Nútíminn kallar á sveigjanleika Íslenska yfirvinnulaunakerfið, þar sem tiltölu- lega ströng viðmið gilda um á hvaða tímum dags og á hvaða dögum vikunnar á að borga yfirvinnu, kann að vera barn síns tíma að sögn Margrétar, og hefur kannski hentað best þegar yfirleitt var ekki nema ein fyrirvinna á heimilum og líf fólks einfaldara og fábrotnara. Í dag gæti verið öllum fyrir bestu að innleiða nýja hugsun, þar sem fólk gæti t.d. ráðið meira um það á hvaða tímum dagsins og vikunnar það vinnur. „Það hentar ekki endilega öllum best að vinna frá 8 til 4 eða 9 til 5. Ég sé fyrir mér að hjá sumum fjölskyldum þætti foreldrunum eftirsókn- arvert að geta skipt deginum á milli sín, þar sem önnur fyrirvinnan hefur störf snemma og hin seint, með betri tíma fyrir báða til að sinna börnum og heimili á morgnana og kvöldin. Svo eru sumir sem fagna því að eiga frí í miðri viku eða geta raðað vöktum sínum þannig að falli að áhugamálum og fjölskyldulífi.“ Segir Margrét að tæknin sé þegar til staðar til að skapa þennan sveigjanleika með lítilli fyrirhöfn fyr- ir alla og útbúa vaktakerfi þar sem starfsfólkið get- ur ráðið meiru um vinnutíma sinn. „Vinnufyrir- komulagið gæti verið að hluta fast, og að hluta sveigjanlegt, en af hinu góða fyrir starfsmenn ef hægt er að auka sveigjanleikann frá því sem nú er. Verkalýðshreyfingin og atvinnurekendur þurfa að standa saman að þessum breytingum.“ Starfsfólk haldi í við tæknina Margrét segir einnig að tækniframfarir séu þeg- ar farnir að valda miklum breytingum á vinnu- markaði og áríðandi að vinnuveitendur hjálpi starfsfólki sínu að aðlagast breyttum aðstæðum með menntun og þjálfun við hæfi. Margir óttast að störf í verslun og þjónustu séu í hættu og má t.d. finna veitingastaði sem taka við pöntunum í gegn- um tölvu, og matvöruverslanir þar sem viðskipta- vinirnir afgreiða sig sjálfir. „Sum störf munu hverfa, en það verða til ný störf í staðinn og þurfa vinnuveitendur að hjálpa starfsfólki sínu að vera í stakk búið fyrir breytingarnar.“ Margrét er með þessu ekki að segja að senda þurfi hvern sölumann og þjón á námskeið í forritun, heldur frekar að tryggja að fólk læri að taka tæknina í þjónustu sína. „Það þarf ekki að umturna störfum fólks og menntun, heldur einfaldlega tryggja að sem flestir geti verið samstiga þróun- inni, læri í vinnunni og bæti við sig færni jafn- óðum.“ Hlutföll Margrét Sanders bendir á að fylgja megi fordæmi annarra Norðurlandaþjóða.  Gæti verið gæfuspor að lækka yfirvinnukaup en hækka grunnlaun á móti 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 JÓN BERGSSON EHF Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM Hentar þetta þínum garði, svölum, rekstri eða sumarbústað? konum 55,5% lægra tímakaup og konur sem þar starfa fá að jafnaði 72,2% lægri bónusa. Bendir Goldman á að þessar töl- ur taki ekki til- lit til að mun fleiri karlar en konur eru í hæst launuðu stöðum bankans. Mynda karlar 83% af hæst efstu stöðunum en konur fylla 62,4% af þeim stöðum sem lægst laun eru greidd fyrir, að sögn Guardian. Lloyd Blankfein og David Sol- omon, æðstu stjórnendur bank- ans, sendu frá sér yfirlýsingu þar sem segir að Goldman greiði kon- um í sambærilegum stöðum með sambærilega frammistöðu sömu laun og körlum. Sögðu þeir einn- ig að þrátt fyrir þróun til betri vegar ætti bankinn, líkt og mörg önnur fyrirtæki, enn langt í land með að ráða til sín fleiri konur og jafna hlut kynjanna í efri stjórnendalögum. Hjá HSBC, sem birti jafnlauna- könnun sína á þriðjudag, mældist munurinn enn meiri, eða 60%, körlum í hag. Hjá Barclays mæld- ist 48% munur á launum kynjanna, 32,8% hjá Lloyds og 30,3 hjá Co-operative Bank. ai@mbl.is Í jafnlaunakönnun sem banda- ríski bankinn Goldman Sachs birti á föstudag kemur í ljós að verulegur munur er á launum breskra starfsmanna bankans eft- ir kyni. Skýrslan var birt vegna nýrra laga sem skylda fyrirtæki með starfsemi í Bretlandi og meira en 250 starfsmenn þar í landi til að upplýsa stjórnvöld um mun á launagreiðslum eftir kyni. Um 7.200 manns starfa hjá Gold- man Sachs í Bretlandi, og flestir þeirra á fjárfestingarbankasviði. Að meðaltali greiðir bankinn Goldman Sachs og HSBC greiða konum mun minna Lloyd Blankfein  Aðrir bankar eru litlu skárri Ráðamenn í Kína hafa valið Yi Gang til að taka við af Zhou Xiaochuan sem stjórnandi Seðlabanka Kína. Kínverska þingið mun þurfa að sam- þykkja tilnefninguna í atkvæða- greiðslu sem fram fer í dag, mánu- dag, en að sögn Bloomberg er ekki gert ráð fyrir að skipan Yi mæti nokkurri andstöðu. Yi Gang hefur starfað náið með Zhou Xiaochuan í röskan áratug og segir WSJ að valið sé til marks um að Kína vilji gefa til kynna að áfram verði haldið á sömu braut. Zhou hefur stýrt kínverska seðla- bankanum frá árinu 2002, lengur en nokkur annar. Þau 15 ár sem Zhou var seðlabankastjóri hafa verið gerð- ar umfangsmiklar breytingar á þeim úrræðum sem bankinn hefur yfir að ráða til að stýra peningastefnu Kína. Yi Gang Zhou Xiaochuan Þá gerðist það líka í valdatíð Zhou að kínverska yuanið varð hluti af SDR- körfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Yi Gang, sem hefur verið aðstoð- arseðlabankastjóri frá 2007, fæddist árið 1958 og eftir útskrift frá Pek- ingháskóla lauk hann viðskiptagráðu frá Hamline-háskóla í St. Paul og doktorsgráðu í hagfræði frá Illinois- háskóla.. ai@mbl.is Yi Gang tekur við Seðlabanka Kína Fimmta árið í röð sýna mælingar hagrannsóknadeildar tímaritsins The Economist að borgríkið Singa- púr er dýrasta borg heims. Þar á eftir koma París, Zürich, Hong Kong, Osló, Genf, Seúl, Kaup- mannahöfn, Tel Aviv og Sydney. Reykjavík hafnar í 14. sæti en deildi 16. sæti með Helsinki í fyrra. Reykjavík deilir nú sæti með Los Angeles og þykir litlu ódýrari en New York sem er í 13. sæti listans. Mæling The Economist tekur m.a. mið af húsnæðisverði, verði helstu neysluvara og kostnaði við að eiga og reka bíl. Sveiflast með gengi Gengisþróun getur haft töluverð áhrif á það hvar lönd hafna á list- anum, og lækkaði t.d. Tashkent, höfuðborg Úsbekistans, um 35 sæti eftir gengishrun seint á síðasta ári. Kaíró í Egyptalandi lækkaði um 22 sæti á milli ára, af sömu ástæðu. Styrking mexíkóska pesóans ýtti Mexíkóborg upp um 23 sæti. Þá hækkaði Santiago í Síle einnig en þar hefur gjaldmiðillinn styrkst vegna hækkandi koparverðs. Hækkað olíuverð hefur líka styrkt rúbluna og færðust Moskva og Pétursborg upp um 12 og 14 sæti. Neðst á listanum er Damaskus í Sýrlandi, en einnig eru í tíu neðstu sætunum borgirnar Caracas, Al- maty, Lagos, Bangalore, Karachi, Algeirsborg, Chennai, Búkarest og Nýja Delí. ai@mbl.is Singapúr dýrust

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.