Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 16
BAKSVIÐ Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Það hefur sýnt sig reglulegaað í kjölfar alvarlegra at-vika þegar mikil þörf skap-ast eftir blóði, s.s. eftir rútuslysið skammt frá Kirkjubæjar- klaustri í desember síðastliðnum, bjóðast margir til að gefa blóð – bæði einstaklingar sem ekki hafa gefið í langan tíma og nýir blóðgjafar,“ seg- ir Jón Svavarsson, formaður Blóð- gjafafélags Íslands (BGFÍ), í samtali við Morgunblaðið, en fjöldi virkra blóðgjafa hér á landi er á bilinu 8-10 þúsund og safnast árlega un 13-15 þúsund einingar af blóði á landsvísu. Eitt af markmiðum BGFÍ, sem formlega var stofnað árið 1981, er að hvetja til nýliðunar í röðum blóð- gjafa, en á árlegum aðalfundum fé- lagsins eru blóðgjafar heiðraðir fyrir áfanga sína í blóðgjöfum. Framan af voru þeir heiðraðir fyrir 25 til 50 blóðgjafir, en nú hafa tveir fengið viðurkenningu fyrir 200 blóðgjafir. „Það er ekki langt liðið frá því að við heiðruðum fyrsta blóðgjafann fyrir 155 gjafir. En á síðasta aðal- fundi, sem haldinn var 8. mars síð- astliðinn, heiðruðum við í fyrsta sinn fyrir 200 blóðgjafir eða meira,“ segir Jón og bætir við að þeir sem einu sinni hafa ákveðið að gefa blóð eru mjög líklegir til að halda því áfram. 18 ára og eldri geta gefið Spurður hvort einhver munur sé á milli kynjanna þegar kemur að blóðgjöf svarar Jón: „Konur eru í auknum mæli farnar að gefa blóð, en þær mega hins vegar bara gefa á fjögurra mánaða fresti því þær ganga í gegnum mánaðarlegar blæð- ingar sem hafa auðvitað áhrif,“ en karlar mega hins vegar gefa blóð á þriggja mánaða fresti. Í hverri gjöf eru teknir um 450 ml af blóði. Að sögn Jóns geta allir þeir sem náð hafa 18 ára aldri, eru yfir 50 kg að þyngd og heilsuhraustir gerst blóðgjafar. „Eftir 65 ára aldur kallar Blóðbankinn ekki eftir viðkomandi, en hann er hins vegar velkominn að koma og verður þá að gera það í samráði við heimilislækni sinn. Virk- ir blóðgjafar geta gefið blóð til 70 ára aldurs,“ segir hann. „Sá sem var fyrstur til að gefa blóð 175 sinnum varð sjötugur sama vor.“ Þá segist Jón vera handviss um að blóðgjöf sé heilsustyrkjandi. „Ég hvet alla þá sem hafa heilsu til að gefa blóð reglulega. Sjálfur hef ég gefið blóð frá 18 ára aldri – alls 153 blóðgjafir. Ég tel, án þess að það sé vísindalega sannað, að þetta eigi stóran þátt í ágætri heilsu minni. Og það þrátt fyrir að mér þyki smjör og rjómi herramannsmatur,“ segir hann og hlær við. Blóðgjafar hugsi til bankans Sveinn Guðmundsson er yfir- læknir Blóðbankans. Hann hvetur fólk til að muna eftir bankanum. „Nú nálgast páskar og þá er gjarnan mik- il fjarvera fólks. Það er því alltaf gott að láta minna á sig þó það sé ekkert sérstakt sem steðjar að okkur eins og stendur,“ segir hann og bendir á að meira en 80% af blóði bankans fer í notkun á Landspítalanum. Blóðbankabíllinn hefur að und- anförnu reynst mikilvægur liður í starfsemi Blóðbankans og safnast hátt í 3.000 blóðeiningar með hjálp bílsins. Sveinn segist vonast til þess að bankinn fái til liðs við sig annan bíl á næstu árum sem starfa myndi á Norðaustur- og Austurlandi. „Hann gæti þjónað minni byggðarlögum og yrði minni en sá sem við notum núna,“ segir hann. Blóðgjafar hvattir til að muna eftir bankanum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Glerártorg Urður María Sigurðardóttir blóðgjafi og Hulda Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur sjást hér í nýju aðstöðu Blóðbankans á Akureyri. 16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ForystaSjálfstæð-isflokksins, að hluta til ný, hlaut góða kosn- ingu á 43. lands- fundi flokksins sem fram fór um helgina. Þetta er mikil- vægt veganesti en það er líka mikilvægt að forystan sé vel nestuð málefnalega. Í álykt- unum fundarins að þessu sinni er að finna ýmislegt sem auð- veldar forystu flokksins að beita sér á jákvæðan hátt. Nefna má að í ályktun fjár- laganefndar er lögð áhersla á að opinber útgjöld séu orðin hátt hlutfall landsframleiðsl- unnar og að nauðsynlegt sé að draga úr útgjöldum og ná þessu hlutfalli niður á næstu árum. Þá segir í ályktun efna- hags- og viðskiptanefndar að stefna beri að því að „tekju- skattur og útsvar einstaklinga lækki í áföngum í samtals 25% á næstu árum og að þessu markmiði verði náð árið 2025.“ Þetta er metnaðarfullt mark- mið sem sýnir að Sjálfstæðis- flokkurinn telur að verulegt svigrúm sé til skattalækkana. Engin ástæða er til að efast um það mat. Annað sem nefna má og máli skiptir er í ályktun allsherjar- og menntamálanefndar þar sem fjallað er um fjölmiðla. Þar er bent á að endurskoða þurfi hlutverk Ríkisútvarpsins „með það að mark- miði að þrengja verksvið þess í ljósi breytinga sem orðið hafa á fjölmiðla- markaði.“ Bent er á að rekstur ríkisins á fjölmiðlum megi ekki hamla frjálsri samkeppni og raska rekstrargrundvelli annarra fjölmiðla, en ljóst er að ríkisútvarpið gengur þann- ig fram í sölu auglýsinga að furðu sætir á markaði. Í ályktuninni segir að horfa þurfi meðal annars til ýmissa tillagna sem koma fram í ný- legri skýrslu um bætt rekstr- arumhverfi einkarekinna fjöl- miðla „og hrinda þeim í framkvæmd“. Þá segir að af- nema beri „virðisaukaskatt af fjölmiðlum, bæði til að styrkja rekstur þeirra og samræma skattumhverfi“. Það skiptir miklu máli að nýkjörin forysta og aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Alþingi og víðar fylgi eftir ályktunum á borð við þær sem hér eru nefndar. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er ólíkur samkomum annarra flokka, sem þó bera sama nafn, vegna mikils umfangs og þess fjölda sem tekur þátt í fundarstörf- um. Þann slagkraft sem í slík- um fundi felst skiptir miklu að nýta til góðra verka. Mörg brýn verkefni bíða að loknum landsfundi } Kraftur til góðra verka Þær voru ófagr-ar lýsing- arnar á vegakerfi landsins í Morgun- blaðinu á laugar- dag. Rætt var við nokkra bílstjóra og þá sem til þekkja á vegum landsins og ber þeim saman um að vega- kerfið sé illa farið og ráði ekki við þá miklu og þungu umferð sem á það er lagt. Vandinn er tvíþættur. Ann- ars vegar þarf víða að ráðast í nýframkvæmdir til að bæta vegastæði og gera akstur öruggari og greiðfærari allan ársins hring. Hins vegar þarf að halda við þeim vegum sem þegar hafa verið lagðir þar sem þeir eiga að vera, en liggja undir skemmdum vegna umferðarþunga. Til nýframkvæmda á að verja tæpum 14 milljörðum króna á þessu ári og í viðhald eiga að fara rúmir 8 milljarðar króna. Þetta er umtalsvert fé en dugar því miður ekki til. Íslendingar eru svo lán- samir að búa í tiltölulega stóru landi með mikla náttúrufegurð og náttúrugæði. Og landsmenn hafa líka verið svo lánsamir að byggð hefur haldist um allt land. Þessu fylgir að nauðsynlegt er að vegakerfið geri landsmönnum kleift að aka af öryggi um landið. Vegirnir þurfa að vera greiðfærir, traustir og eins öruggir og kostur er á, en því miður virðist slysum á vegum fara fjölgandi, sem er hörmu- leg þróun. Það stafar að vísu aðeins að hluta til af vegakerf- inu því að þættir eins og óvan- ir erlendir ökumenn spila einnig inn í. Þeir þættir munu þó einnig hafa minni áhrif verði vegakerfið bætt. Þess verður ekki vart að sérstakur pólitískur ágrein- ingur sé um hvort bæta eigi vegakerfi landsins. Um það virðast allir sammála þó að vissulega geti komið upp ágreiningur um hvert skuli beina takmörkuðu fjármagni. Það er óhjákvæmilegt en breytir því ekki að nú er lag til að gera átak í vegabótum. Ástand vegakerfis landsins er orðið óviðunandi} Átak í vegabótum N emendum í 9. bekk gefst kostur á að þreyta að nýju könnunarpróf í ensku og íslensku en margir þeirra tóku próf við óviðunandi aðstæður fyrr í mánuðinum. Þátttaka í könnunarprófunum verður valkvæð en þeir nemendur sem luku prófunum fá afhent- ar niðurstöður úr þeim. Öllum býðst svo að þreyta sambærileg könnunarpróf að nýju í vor eða haust enda er það lögbundin skylda menntamálayfirvalda að bjóða nemendum mat á námsstöðu sinni. En þýðir þetta endalok rafrænna prófa? Það kom ótvírætt fram á samráðsfundi í liðinni viku með fulltrúum frá nemendum, Skólastjórafélagi Íslands, Félagi grunnskólakennara, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, félagi fræðslustjóra, samtökunum Heimili og skóli, umboðsmanni barna, Menntamálastofnun og sérfræðingahópi um fram- kvæmd samræmdra könnunarprófa að rafrænar lausnir í skólastarfi séu komnar til að vera þar sem þær bjóða upp á marga kosti til að þróa skólastarf. Því er ég sammála. Það er hins vegar eðlilegt í kjölfar mislukkaðrar fram- kvæmdar líkt og um daginn, að staldra við og spyrja hvað betur megi fara og hvað þarf að laga í stóra samhenginu. Það er til dæmis ljóst að skiptar skoðanir eru um sam- ræmd könnunarpróf, markmið þeirra og tilgang. Það er því sjálfsagt að ræða um hugmynda- fræðina sem liggur að baki lagaskyldunni um samræmd próf, þótt hún tengist ekki fram- kvæmd prófanna nú. Á fyrrnefndum samráðs- fundi var ákveðið að setja á laggirnar vinnu- hóp hagsmunaaðila, sem geri tillögu að framtíðarstefnu um fyrirkomulag sam- ræmdra könnunarprófa. Leitað verður eftir tilnefningum í hópinn í vikunni og óskað verð- ur eftir tillögum fyrir árslok. Við eigum á hverjum tíma að rýna grunn- skólalögin og raunar skólakerfið allt, og velta því fyrir okkur hvernig við búum nemendur sem best undir framtíðina. Samfélagið er að breytast og það er fullkomlega eðlilegt að skólakerfið breytist samhliða. Það er von mín að aðkoma allra ofangreindra aðila verði til þess að fundin verði farsæl lausn sem mun gera menntakerfið betra til framtíðar. Það er ríkur vilji í samfélagi okkar að bæta mennta- kerfið og það er löng hefð fyrir því að leggja áherslu á gildi læsis og menntunar á Íslandi. Tækifærið til að efla um- gjörð menntakerfisins er núna, nýtum það til framfara og höfum að leiðarljósi að menntun er fyrir alla. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Hagsmunir nemenda hafðir að leiðarljósi Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. liljaalf@gmail.com STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Hinn 8. febrúar síðastliðinn flutti starfsemi Blóðbankans á Akureyri frá sjúkrahúsi bæjar- ins og yfir í nýtt húsnæði á efri hæð verslunarmiðstöðvar- innar Glerártorgs. Sveinn Guð- mundsson, yfirlæknir Blóð- bankans, segir nýju aðstöðuna hafa reynst vel og að Norð- lendingar séu afar gjafmildir þegar kemur að blóðgjöf. „Á Akureyri söfnum við ár- lega um 1.500 einingum. Í stað þess að hafa blóðsöfn- unina á sjúkrahúsi þá færðum við hana nær fólkinu og okkur finnst þetta merkileg og mik- ilvæg tilraun. Það er tals- verður fjöldi fólks sem heim- sækir Akureyri af Norðaustur- og Austurlandi og margir þeirra fara á Glerár- torg. Við teljum þetta auka mögu- leika á því að fá fleiri blóðgjafa til okkar.“ Gjafmildir fyrir norðan AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.