Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 21
hver einustu jól. Okkur sem tengjumst Grænuborg þykir sér- staklega dýrmætt að eiga lista- verkin hennar og munum gæta þeirra vel og njóta þeirra um ókomna tíð. Við þökkum Pat fyr- ir samfylgdina, gleðina og brosin og vottum Snorra, Magdalenu og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúð. Fyrir hönd vinnufélaga á leik- skólanum Grænuborg, Iðunn Vignisdóttir. Elsku besta vinkona mín, sú besta sem nokkur getur hugsað sér. Nú hef ég fylgt þér þinn síð- asta spöl hérna megin sem er eins óraunverulegt og það hljóm- ar. Þú barðist eins og hetja fram á síðasta dag og við hvert bak- slag sagðir þú „bölvað vesen á mér“. Heim ætlaðir þú fyrir jólin sem varð því miður ekki en ég hef trú á því að þér líði betur núna, laus við verki og vanlíðan. Þið Snorri fluttuð síðast út ár- ið 2011 sem ég var ekkert rosa hrifin af að missa þig út aftur. Þínir hæfileikar með pensilinn og blýantinn voru ótrúlegir. Hvað getur maður sagt, allt sem kom frá þér var fullkomið. Pat, þegar ég fékk þetta símtal sem upplýsti mig um hvað væri í gangi fylltist ég vanmætti og vantrú. Það er ekki að ástæðulausu að mér fannst ég þurfa að koma ein til þín vorið 2016. Þá var vágest- urinn væntanlega byrjaður að krauma en þú vissir ekki af því. Þar áttum við dásamlegar stund- ir en ég fann að það var eitthvað að gerast. Við vorum tengdar. Loksins varstu búin að opna gallerí sem þig hafði dreymt um alla ævi og þið Snorri höfðuð gert svo flott. Gallerí sem þú varst svo hamingjusöm með. Þetta leit dásamlega út hjá þér, elsku vinkona mín, og þú varst svo stolt. Þú varst svo ánægð með það sem þú hafðir áorkað og í gegnum netið hafði ég fengið að fylgjast með. Ég var svo ánægð og stolt af þér mín elskulega vin- kona. Stuttu seinna kom í ljós að að krabbinn hefði fest klærnar í þig. Í kjölfarið fluttuð þið heim til Íslands til að takast á við veik- indin hér og þið fluttust til Ak- ureyrar eftir stutta dvöl á Suð- urnesjum. Slagurinn var tekinn. Ég er svo þakklát fyrir þau skipti sem við hittumst á milli stríða og sérstaklega þegar ég kom til ykkar til Akureyrar í haust. Þar eyddum við dýrmæt- um stundum saman sem ég gleymi aldrei. Ég klippti yndis- lega Bangsa ykkar og ég snyrti þitt hár sem hafði vaxið pínu eft- ir pásu í lyfjameðferð en þú vildir halda í síddina tókstu fram, þetta lýsir þér svo vel, þú varst svo mikill húmoristi að náði engri átt stundum. Þú varst sko spontant! Þú varst svo hress, jákvæð og glöð og talaðir um hvað þig dreymdi um eftir að þú hefðir sigrast á þessum djöfli, þú ætl- aðir að vinna! Ég var glöð í hjarta eftir þessa heimsókn, virkilega ánægð. „Dońt waste precious moments,“ sagðir þú. Takk fyrir að koma inn í líf mitt sem systir. Fallega brosið þitt og hlátur munu fylgja mér um ókomna tíð. Takk fyrir að vera þú og leiðbeina mér þegar ég þurfti á að halda. Fyrir að vera sú sem þú varst, elska eins og þú gerðir, svo ósérhlífin og mannelsk enda varstu elskuð af öllum sem sem umgengust þig. Hláturinn þinn og gleðin sem upplýstu allt nærumhverfið hvar sem þú varst stödd. Þú varst virkilega elskuð. Af fjölskyldu, vinum og öllum sem umgengust þig ekki síst honum Snorra þín- um sem dekraði þig og dáði. Þú hefur yfirgefið þessa jarð- vist en þú verður alltaf í hjarta mínu, að eilífu. Elsku Snorri, Magdalena og fjölskyldan öll, ást og styrkur til ykkar. Fallegasti engillinn er kominn til himna. Ég, „your sister from another mother“, eins og þú kallaðir mig, kveð þig með þessum orðum. Ég elska þig. Svanfríður (Svana). Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Raðauglýsingar Tilkynningar Auglýsing – íbúakosning um fræðslustefnu Fjallabyggðar Íbúakosning um fræðslustefnu Fjalla- byggðar sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. maí 2017 fer fram laugardaginn 14. apríl 2018. Íbúakosningin lýtur sveitarstjórnar- lögum nr.138/2011 og verður staðarkosning í tveimur kjördeildum, Ráðhúsi Fjalla- byggðar og Menntaskólanum á Tröllaskaga. Spurt verður: Vilt þú að stefnan haldi gildi sínu? Valkostir: Já, ég vil að fræðslustefnan sem var samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 18.05.2017 haldi gildi sínu. Nei, ég vil að fræðslustefnan sem var samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 18.05.2017 verði felld úr gildi og fyrri fræðslustefna frá 17.03. 2009 taki gildi á ný. Niðurstaða atkvæðagreiðslu íbúakosninga er ráðgefandi fyrir bæjarstjórn (107. gr. Sveitarstjórnarlaga). Yfirkjörstjórn Fjallabyggðar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Við byrjum daginn á opnu vinnustofunni okkar kl. 9, leikfimi í KR kl. 10.30 þar sem hann Guðjón sjúkraþjálfari sér um leik- fimina. Útskurður og myndlist kl. 13. í hreyfisalnum og félagsvist kl. 13 í matsalnum. Árskógar Smíðastofan er lokuð. Ganga um nágrennið kl. 11. Handa- vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Spjallhópur Boðans kl. 15. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20. Opin handverks- stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, Bókabíllinn á svæðinu 10-10.30, Handaband, opin vinnustofa með leiðbeinendum, ókeypis og öllum opið kl. 10-12, frjáls spilamennska kl. 13, bókband kl. 13-17, söngstund við píanóið kl. 13.30-14.15, kaffiveitingar kl. 14.30, handavinnuhópur kl. 15-19. Velkomin á Vitatorg, síminn er 411-9450. Garðabær Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.40. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40 / 8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjálandi kl. 9.50. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 10.40. Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið- beinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl. 14.30-16.30. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handa- vinna / brids kl. 13, jóga kl. 18. Félagsvist kl. 20. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, leikfimi kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting 517-3005. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12, byrjendanám- skeið í línudansi með Ingu kl. 10, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs), myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30, Handavinnuhornið kl. 13-15, félagsvist kl. 13.15, eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10. er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgistund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýs- ingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilis við Suðurströnd kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi- spjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Video upptökuvél Glæný og ónotuð Canon EOS C100 Mark II. Framl: Japan. Upphaf- legt verð (479.900). Selst á 330.000. Vídeó upptökuvél Canon XA 35. Stór rafhlaða. Upphaflegt verð (319.900). Selst á 200.000. Keyptar í Nýherja / Origo í Borgartúni 37. Eru með 2 ára ábyrgð. Uppl. í síma: 833-6255 og 899 8325 Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Í dag kveðjum við mömmu eða ömmu Góu eins og hún var jafnan köll- uð en hún hefur verið stór part- ur af lífi okkar alla tíð og minn- ingarnar óteljandi. Amma Góa var mikill dugnaðarforkur og hafði að geyma alveg einstaka persónu sem vildi öllum vel. Amma Góa var alltaf til staðar sama hvað gekk á, dag eða nótt, í gleði eða sorg þá var hún alltaf þarna, til að samgleðjast, hugga, gefa góð ráð eða einfaldlega til að knúsa. Hún hvatti okkur áfram, hrósaði og leiðbeindi. Þegar við förum að rifja upp minningarnar sem við eigum með henni þá kemur helst í hug- ann einlægnin, nægjusemin, handavinnan, bakkelsið og spila- stokkurinn. Hjá ömmu voru prjónarnir eða heklunálin aldrei langt undan en handverkið henn- ar var alveg einstakt og ef við komum í heimsókn þá var viss- ara að hafa matarlyst því ætíð bauð hún upp á nýbakað brauð, þá helst jólaköku, pönnukökur eða kleinur og ískalda mjólk og oftar en ekki var tekið eitt spil. Við kveðjum elsku ömmu Góu í hinsta sinn, minningin um hana verður ávallt ljóslifandi í hugum okkar. Við söknum hennar sárt Guðlaug Jóhanna Jónsdóttir ✝ Guðlaug Jó-hanna Jóns- dóttir, Góa, fæddist 26. maí 1934. Hún lést 25. febrúar 2018. Útför Góu fór fram 9. mars 2018. en vitum að hún hvílir nú í örmum Guðs. Mamma Þú ert hetjan mín þú fegrar og þú fræðir þú gefur mér og græðir, er finn ég þessa ást. Þá þurrkar þú tárin sem mega ekki sjást mamma ég sakna þín. Mamma þú ert hetjan mín. Þú elskar og þú nærir, þú kyssir mig og klæðir, er brotin ég er þú gerir allt gott Með brosi þú sársaukanum bægir á brott. Mamma, ég sakna þín. Ég finn þig hjá mér hvar sem er. Alls staðar og hvergi, þú ert hér. Þú mér brosir í mót, ég finn þín blíðuhót. Alvitur á allan hátt þó lífið dragi úr þér mátt. Við guð og menn þú sofnar sátt. Þú vakir líka er ég sef á nóttu og degi þig ég hef. Þú berð ætíð höfuð hátt. Veist svo margt en segir fátt, kveður mig með koss á kinn og mér finnst ég finna faðminn þinn og englar strjúki vanga minn. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Megir þú hvíla í friði, elsku mamma og amma Góa, við elsk- um þig. Regína, Tryggvi, Íris Ósk, Ingólfur, Embla Lív, Regína Mist, Hilmar Darri, Aðalbjörn, Unnur Inga og Góa Dröfn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.