Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 23
(2007) og mynd Dags Kára, Fúsa
(2014)
Ilmur hefur fengist nokkuð við
handritaskrif og á hún stóran þátt í
handritaskrifum í sjónvarpsþátt-
unum Stelpunum og Ástríði 1 og 2
en þar var hún einnig meðframleið-
andi og lék aðalhlutverk.
Ilmur er varaborgarfulltrúa frá
2014 og formaður velferðarráðs
Reykjavíkur frá 2015.
En hvað er í gangi núna og hvað
er á döfinni?
„Nú er ég eiginlega að ljúka
tveimur „bókarköflum“ í senn: Það
standa enn yfir tökur á Ófærð 2 en
þeim líkur í byrjun maí. Síðan tekur
við frumsýning í október og sýn-
ingar á þáttunum fram yfir áramót.
Allt mjög spennandi. Auk þess er
ég að hætta í borgarpólitíkinni í vor.
Hún hefur líka verið spennandi
og kitlar svolítið. Kannski verð ég
með „kombakk“ seinna í borgar-
pólitíkinni. Hver veit? En þetta er
allt mjög gott – og ég elska að lifa
og leika.“
Ilmur var sæmd Eddunni fyrir
leik í Stelpunum 2005, og stelp-
urnar fengu Edduverðlaun fyrir
samnefndan þátt sem besta ís-
lenska leikna sjónvarpsefnið en
Ástríður 2 hlaut einmitt sömu verð-
laun 2014.
Þá fékk Ilmur Grímutilnefningar
sem besta leikkonan í aðalhlutverki
fyrir Ausu, Sölku Völku, Ófögru
veröld og Fólkið í kjallaranum og
hlaut verðlaun fyrir aukahlutverk í
Ívanov 2008 og tilnefningu fyrir Jón
Grindvíking. Hún fékk Eddu-
tilnefningar sem besta leikkonan
fyrir Dís, Brúðgumann, Ástríði 1 og
2.
Fjölskylda
Maður Ilmar er Magnús Viðar
Sigurðsson, f. 6.1. 1966, yfirmaður
framleiðslu hjá RVK studios. For-
eldrar hans eru Sigurður Þ. Árna-
son, f. 15.3. 1928, fyrrv. skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, og k.h.,
Halldóra Edda Jónsdóttir, f. 8.7.
1933, húsfreyja.
Fyrri maður Ilmar er Ari Sig-
valdason, f. 4.10. 1966, ljósmyndari,
kaupmaður og fyrrv. fréttamaður
Dóttir Ilmar og Ara er Auður
Aradóttir, f. 23.5. 2006. Sonur Ilmar
og Magnúsar er Hringur Viðar
Magnússon, f. 1.1. 2014.
Börn Magnúsar og stjúpbörn
Ilmar eru Kristján Magnússon, f.
30.3. 1985, hestatamningamaður í
Svíþjóð, en sonur hans er Óskar Er-
ik, f. 2010; Birna Sif Magnúsdóttir,
f. 24.7. 1987, útsendingastjóri hjá
365, búsett í Reykjavík en maður
hennar er Þorsteinn Atli Georgsson
og er sonur þeirra Unnsteinn Arn-
ar, f. 2013; Birgir Viðar Magnússon,
f. 19.5. 1991, flugvirki í Reykjavík.
Systkini Ilmar eru Lísa Krist-
jánsdóttir, f. 18.3. 1974, aðstoðar-
maður forsætisráðherra, búsett í
Reykjavík, og Sverrir Kristjánsson,
f. 25.4. 1980, kvikmynda og sjón-
varpsklippari, búsettur í Osló.
Foreldrar Ilmar eru Kristján El-
berg Guðmundsson, f. 31.10. 1944,
fyrrv. framhaldsskólakennari, bú-
settur í Berlín, og Margrét Sigurð-
ardóttir, f. 10.2. 1952, ferðamála-
fræðingur í Reykjavík.
Ilmur
Kristjánsdóttir
Sólveig Jónsdóttir
húsfr. á Munaðarnesi og víðar
Þórður Þórðarson
Grunnvíkingur fræðim.,
skáld og bókbindari á
Ísafirði og í Bolungarvík
Sigurður Gíslason
verkam. í Rvík
Margrét Sigurðardóttir
ferðamálafr. í Rvík Svava Jónína Sigurðardóttir
húsfr. á Sundabakka í Viðey
Gísli Gíslason
b. á Litlu-Þúfu á Snæfellsnesi og verkstj. í Viðey
Guðmundur Guðmundsson b. í Lág í Eyrarsveit
Sigrún Sigurðardóttir húsfr. í Kópavogi
María Erna Sigurðardóttir fyrrv. starfsm. RÚV
Aðalheiður Sigurðardóttir b. í Svefneyjum
Gísli Sigurðsson tæknifr. í Mosfellsbæ
Lárus Guðmundsson
vélsmiður og
útgerðarm. Kópavogi
Emil Lárusson
eigandi Serrano-
skyndibitastaðanna
Guðbjörg Guðmundsdóttir
leikskólastjóri
Ólafur
Guðmunds son
steypu stöðvarstj.
í Grundarfirði
Brynhildur Ólafsdóttir
fyrrv. fréttakona á
Stöð 2 og leiðsögum.
Þórhildur Ólafsdóttir
útvarpskona á RÚV
María Magnúsdóttir
flugumferðarstj. Í
Grindavík
Jósefína Guð munds-
dóttir saumakona í
Grindavík
Jóna Guð munds-
dóttir hjúkrunar-
fræð ingur á Spáni
Sif Traustadóttir
dýralæknir á Ítalíu
Freyja Jónu- og Barkar-
dóttir kynjafræðingur
Jósefína Ragnheiður Jóhannesdóttir
húsfr. í Gálutröð og Vík
Björn Jónsson
sjómaður og b. í Gálutröð
og Vík í Grundarfirði
Guðrún Björnsdóttir
húsfr. í Grundarfirði
Guðmundur Bjarnason
bátasmiður og b. í Lág í Eyrarsveit
Herdís Einarsdóttir
húsmóðir í Suður-Bár í
Eyrarsveit
Bjarni Jónsson
sjóm. og b. í Suður-Bár í Eyrarsveit
Úr frændgarði Ilmar Kristjánsdóttur
Kristján E. Guðmundsson
fyrrv. framhaldsskólakennari,
búsettur í Berlín
Alda Sigurvinsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristín Unnur Þórðardóttir
húsfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af
Albert Martínus Kristinssonfæddist 19. mars 1881 í Húsa-bakka í Seyluhreppi í Skaga-
firði. Foreldrar hans voru Kristinn
Guðmundsson, f. 1852 á Steins-
stöðum í Tungusveit, og Dagbjört
Anna Jónsdóttir, f. 1846 á Reykjar-
hóli, bæði vinnuhjú í Húsabakka.
Ekki er vitað um afdrif Dagbjartar
Önnu, hún var ógift en átti sex börn.
Ein heimild segir að hún hafi flutt til
Vesturheims. Dánardags Kristins,
föður Alberts, er ekki getið í Íslend-
ingabók.
Albert ólst upp í Valagerði í Vatns-
skarði og var í vinnumennsku í sinni
sveit. Hann yfirgaf Norðurlandið ár-
ið 1907 og fór í Flensborgarskólann
sama ár. Að loknu námi í Flensborg
1909 fékkst hann við kennslu, en árið
1912 fluttist hann til Reykjavíkur og
fór að læra múrverk og var það síðan
aðalstarf hans.
Albert var virkur í verkalýðsbar-
áttunni og var einn af stofnendum
Hlífar árið 1907. Þegar hann bjó í
Reykjavík var hann virkur í Dags-
brún og einn af stofnendum Múrara-
og steinsmiðafélags Reykjavíkur árið
1917.
Þegar Albert flutti til Hafnar-
fjarðar á ný árið 1930 varð hann aftur
öflugur félagi í Hlíf, var ritari þess í
nokkur ár og endurvakti tímarit fé-
lagsins, Hjálmar, og var ritstjóri þess
í nokkur ár. Hann var einnig aðal-
maðurinn í fræðslustarfi félagsins.
Albert var gerður að heiðursfélaga
Hlífar og stofnaður var sérstakur
sjóður sem bar nafn hans og hafði
það verk að efla og styrkja fræðslu-
starf meðal verkamanna.
Eiginkona Alberts var Guðleif
Bergþórsdóttir, f. 1870, d. 1943. Dæt-
ur þeirra voru Vigdís, f. 1910, d. 2007,
húsfreyja í Grimsby á Englandi, en
maður hennar var Þorsteinn Ey-
vindsson togaraskipstjóri, og Hrefna,
f. 1912, d. 1913. Fyrir átti Guðleif
soninn Bergþór sem lést þrítugur að
aldri. Barnsmóðir Alberts var Guð-
rún Sigurðardóttir og sonur þeirra er
Reynir, f. 1937, fyrrverandi verka-
maður í Hafnarfirði.
Albert lést 11. júlí 1961.
Merkir Íslendingar
Albert
Kristinsson
90 ára
Guðmundur Þorsteinsson
Sigbjörn Jóhannsson
85 ára
Guðlaug Helgadóttir
80 ára
Anna Jónsdóttir
Gísli Gunnarsson
Jóhanna K. Bruvik
Marsibil Jónsdóttir
75 ára
Gylfi Már Guðjónsson
Helga Haraldsdóttir
Kristín E. Sigurðardóttir
Matthildur Arnalds
Sverrir Haukur Halldórsson
Valgerður Þ. G. Landmark
70 ára
Aðalheiður Nanna Ólafsd.
Ásbjörg Poulsen
Björk Gunnarsdóttir
Drífa Helgadóttir
Guðjón Skúlason
Guðmundur Hall Ólafsson
Guðrún Jóna Gunnlaugsd.
Helgi Ívarsson
Ingveldur Sveinbjörnsdóttir
Jónína Sesselja Steinsd.
Sigurður Brynjólfsson
Vigfús J. Björgvinsson
Þorsteinn Ingólfsson
60 ára
Ásbjörn Árni Valgeirsson
Bjarnhildur Helga Árnad.
Brynhildur Björnsdóttir
Dagbjört Þyri Þorvarðard.
Gunnar Helgi Kristinsson
Helgi Rúnar Jónsson
Herdís Kristjánsdóttir
Jóna Sæmundsdóttir
Józef Krzysztof Walczak
Lára Ingibjörg Hilmarsd.
Lilja Einarsdóttir
Pétur Axel Valgeirsson
Ragna Haraldsdóttir
Sigríður Fanny Másdóttir
50 ára
Anna Sigrún Rafnsdóttir
Anna Sigurbjörg Þórisdóttir
Ásgrímur Pálsson
Bjarki H. Diego
Helen Billington
Ingibjörg S. Sæmundsd.
Inita Lapina
Jenný Eygló Benediktsd.
Karl Ingiberg Emilsson
Reimar Helgason
Rósa Steinunn Hreinsdóttir
Sigurður Fjalar Jónsson
Sigurður Hinrik Teitsson
Sjöfn Sóley Guðlaugsdóttir
40 ára
Guðlaugur Mímir Brynjarss.
Ilmur Kristjánsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Katarzyna Joanna Pokojska
Michelle Hinay Marteinsson
Ólafur Haukur Flygenring
Pellumb Ndoka
Stefán Ragnar Pálsson
Þóra Ýr Sveinsdóttir
30 ára
Aron Ómarsson
Ásgerður Þórðardóttir
Bjarki Þór Frímannsson
Björn Páll Fálki Valsson
Hafþór Ingi Waage
Hugrún Björnsdóttir
Hörður Páll Stefánsson
Kristján Skúli Skúlason
Linda Björk Rúnarsdóttir
Lukasz Józef Sznerch
Oddur Ari Sigurðsson
Sandra Dögg Björnsdóttir
Sonja Guðlaugsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Aron er Keflvík-
ingur og býr í Garðabæ.
Hann er flugvirki hjá Ice-
landair og fyrrverandi Ís-
landsmeistari á torfæru-
hjólum.
Börn: Ómar Aron, f. 2012.
Foreldrar: Ómar Jóns-
son, f. 1955, verslunar-
stjóri hjá Samkaupum, og
Ingibjörg Ragnarsdóttir, f.
1955, einnig verslunar-
stjóri hjá Samkaupum.
Þau eru búsett í Grinda-
vík.
Aron
Ómarsson
30 ára Björn ólst upp á
Akureyri en býr í Akrakoti
í Hvalfjarðarsveit. Hann
rekur Ferstikluskálann í
Hvalfirði.
Maki: Helena Þrastar-
dóttir, f. 1985, sjúkraliði á
Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Börn: Fylkir Leó, f. 2011,
Baltasar Freyr, f. 2013, og
Kara Viktoría, f. 2015.
Foreldrar: Valur Björns-
son, f. 1960, bús. á Akra-
nesi, og Bergþóra Páls-
dóttir, f. 1962, bús. í Rvík.
Björn Páll Fálki
Valsson
40 ára Ólafur ólst upp í
Mosfellsbæ en býr í
Reykjavík. Hann er tölv-
unarfr. hjá Símanum.
Maki: Eva Rún Ingimund-
ardóttir, f. 1980, kennari í
Norðlingaskóla.
Börn: Sindri Páll, f. 2010,
og Lára Inga, f. 2014,
Foreldrar: Páll Guð-
jónsson, f. 1950, frkvstj.
Sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, og Ingi-
björg Flygenring, f. 1950,
félagsfr. hjá Reykjalundi.
Ólafur Haukur
Flygenring