Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 19.03.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Vertu óhræddur við að láta óskir þínar uppi því eitt er að biðja fallega og annað að heimta með frekju. Ef þú vilt frið skaltu biðja um hann hreint út. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert kraftmikill þessa dagana og kemur miklu í verk. Hlustaðu á innsæi þitt en gleymdu því ekki að gjafmildi á einnig að snúa að sjálfum þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að halda tilfinningum frá allri ákvarðanatöku í dag og umfram allt skaltu ekki láta mál ná tilfinningalegu taki á þér. Félagsskapur vinnufélaga gerir vinn- una skemmtilegri. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Innsæi þitt í það sem aðrir eru að fást við hittir naglann algerlega á höfuðið. Með rétta fólkið með þér verður stritið leik- ur einn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú veist öðrum betur hvað þér er fyrir bestu svo vertu óhræddur við að fara þínar leiðir. Fólk leitar til þín til að fá góð ráð. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þeir eru margir sem vilja veðja á sköpunarkraft þinn og líða þér eitt og ann- að þess vegna. Hafðu gát á öllu, því þannig kemstu hjá áföllunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sinntu þínum nánustu sérstaklega, því þú hefur satt að segja látið þá sitja á hak- anum að undanförnu. Vilji til breytinga er fyrsta skrefið í rétta átt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vertu sérstaklega á varðbergi gegn ýmsum sögum um menn og málefni sem þér eru sagðar. Leggðu einn ósið á hilluna eða taktu upp heilsubætandi sið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gerðu ekki meiri kröfur til ann- arra en þeir geta staðist. Hæfileiki þinn til að sjá vandamál frá báðum hliðum mun koma ástvinum þínum mjög vel. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki nóg bara að vilja að hlutirnir breytist heldur þarftu líka að taka til hendinni til að svo verði. Mundu að vin- átta snýst bæði um að gefa og þiggja. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þótt útlitið sé svart skaltu ekki missa móðinn því þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Leitaðu nýrra leiða og nýr stíll fæðist. 19. feb. - 20. mars Fiskar Kannski er ekkert sem þú getur gert til að breyta áliti einhvers á þér. Um leið og þú áttar þig á því hvernig hlutirnir hafa alltaf verið vilja allir styðja við bakið á þér. Sigmundur Benediktsson skrifaðií Leirinn á fimmtudag „hugleið- ingu á tímamótum“ og kallar Elli- viðmót: „Það getur verið ein- staklingnum hollt að setjast niður og hugleiða stöðu sína í lífinu. Bera saman það betra og verra og hug- leiða hvort það góða hefur ekki oft- ar átt vinninginn, þegar öllu er á botninn hvolft. Það er kannski mót- sögn að amast við aldri sínum, því að ef við værum ekki orðin svona göm- ul værum við farin yfir landamærin. Allir vilja verða gamlir, en enginn vill vera það. Það er líka mótsögn!“ Aldur hækkar, ævi dvín, elli stækka merkin. Alltaf fækka afrek mín, einnig smækka verkin. Leturbrandinn lúna minn leiði anda hálum. Ást til lands og óðar finn eyða vandamálum. Vísna kynnin gleðja geð, getu minni flíka. Eg mun vinna elli með einnig sinna líka. Hún ei riftir hérlífs þrá, heims svo skiptum renni. Getu sviptur sjálfsagt má seinast giftast henni. Verði kyrrt hjá æviál, ólag virt sem lamar. Æðri birtu auðgast sál, aldrei syrtir framar. Hannes Hafstein orti í þingveislu 1911: Sækja um styrki sagnaskáld, sálmaskáld og þyrnaskáld, vífaskáld og veðraskáld, Vogaskáld og dalaskáld. Það er gamla sagan – Karl Sig- tryggsson orti: Almenningur ekkert veit, allt er á sandi kvikum af því fögur fyrirheit fara á undan svikum. Þessi staka Stefáns Ólafssonar er klassísk: Vandfarið er með vænan grip, votta ég það með sanni, siðuga konu, sjálegt skip og samviskuna í manni. Gömul vísa: Skást af öllu skeiðandi, skellir í fjöllum duna, fram á völlinn freyðandi faxatröllin bruna. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hugleiðing á tímamótum „HVERN GET ÉG TALAÐ VIÐ UM FJÁRMÖGNUN Í SKYNDI?“ „HVAÐ GERIR GENAVERKFRÆÐINGUR NÁKVÆMLEGA?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hún blikkar þig. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ÆTLA AÐ ÆFA NÆSTU HEIMSÓKN TIL LÍSU VIÐ ÆTTUM AÐ DEILA TILFINNINGUM OKKAR SJÁÐU HVERNIG ÉG FÓR EKKI AÐ FLISSA ÞEGAR ÉG SAGÐI ÞETTA? VEL GERT, HERRA MINN HUNANG BJÓ TIL KARTÖFLUMÚSINA! NAMMI NAMM! ÉG ELSKA KARTÖFLUMÚS! FRÁBÆRT! ÉG SKAL HELLA SMÁ Í SKÁL FYRIR ÞIG! FJÁRMÁLA- RÁÐGJÖF Svo langt sem það nær er ágætt aðfólk geti sett vofveiflega atburði, mannskæð slys og erfiðleika sem fyrst aftur fyrir sig. Eigi að síður er þó mikilvægt að læra af reynslunni og halda í heiðri minningu þeirra sem gengnir eru. Það gerir séra Jak- ob Ágúst Hjálmarsson prestur líka með miklum ágætum í bókinni Allt þetta fólk, þar sem hann rifjar upp Þormóðsslysið 18. febrúar 1943, þar sem alls 31 fórst. Víkverji las um þennan atburð í annálabókum fyrir margt löngu, en í bók Jakobs eru þessu hrikalega sjóslysi gerð ítarleg skil. Tíund íbúa á Bíldudal fórst með skipinu, svo sem margir þeir sem gegndu forystustörfum í þorpinu. Minningu þessa fólks er sómi sýndur í bókinni þar sem einnig kemur fram sá einfaldi boðskapur að lífið verður og heldur alltaf áfram, þótt á bratt- ann sé að sækja. x x x Frasar, stikkorðastíll og myndir útí hið óendanlega eru áberandi á fyrirlestrum í dag, jafnvel svo að er- indið sjálf er borið ofurliði svo lítið situr eftir í vitund þeirra sem á hlýddu. Á Íslandi mælist alltaf vel fyrir þegar fræðingar segja svo frá flóknum hlutum að hvert mannsbarn skilji, enda hafi þeir blæbrigðaríkan stíl og geti kryddað mál sitt með til- vitunum í til dæmis bókmenntir og sögu og skírskotað til aðstæðna sem almenningur samsamar sig við. Það gerir Páll Bergþórsson í bókinni Um loftin blá frá 1957. Flottur stíll og út- skýrir vel þá virðingu sem Páll hefur alltaf notið fyrir veðurspár sínar og frásagnir. x x x Í þægilegu vasabroti er bókin 30áhrifarík ráð sem bæta tíma- stjórnun eftir Thomas Möller, gefin út árið 1995. Auðvitað hafa aðstæður breyst mikið síðan þá en flestar að- ferðirnar við að stjórna tíma sínum sem Thomas nefnir standast þó enn. Dæmi: Haltu öllum fundahöldum í hófi, hafðu allt í röð og reglu á skrif- borðinu og ekkert óþarfa dót þar. Starfaðu eftir skýrum markmiðum og helltu þér í krefjandi verkefni snemma á morgnana því þá er hug- urinn ferskur, líkaminn óþreyttur og daglegt þvarg ekki komið í gang. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor- ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. (Sálmarnir 68.20) Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.