Morgunblaðið - 19.03.2018, Page 32
MÁNUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Matur sem þú ættir aldrei að …
2. Áhugi á hraðhúsum hérlendis
3. Lýsa eftir 6 metra langri …
4. Ber ekki ábyrgð á Sigríði …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndin Adam í leikstjórn Mar-
íu Sólrúnar verður lokamynd Alþjóð-
legrar barnakvikmyndahátíðar í
Reykjavík sem fram fer í Bíó Paradís
dagana 5.-15. apríl. Myndin fjallar um
hinn tvítuga og heyrnarlausa Adam
sem stendur frammi fyrir erfiðri
ákvörðun þegar móður hans er komið
fyrir á stofnun vegna heilabilunar.
Hann hafði lofað henni að hjálpa
henni að deyja ef það myndi gerast,
en fer að efast um loforð sitt.
Lokamynd barna-
kvikmyndahátíðar
Ákveðið hefur
verið að tónverk
Áskels Mássonar,
Frum, skuli vera
skylduverkefni fyrir
slagverksleikara í
lokaáfanga keppn-
innar BBC Young
Musician of the
year sem útvarpað
verður beint á BBC Four 13. apríl.
Keppnin hefur reynst ómetanlegur
stökkpallur fyrir marga af dáðustu
hljóðfæraleikurum Breta í dag. Þeirra
á meðal er Colin Currie sem var fyrst-
ur slagverksleikara til að vinna keppn-
ina, en hann frumflutti slagverks-
konsert Áskels í Finnlandi 2011.
Frum skylduverkefni
VEÐUR
ÍBV, Selfoss og FH geta öll
orðið deildarmeistarar karla
í handknattleik fyrir loka-
umferðina sem leikin verður
á miðvikudagskvöldið kem-
ur. Liðin þrjú eru með 32
stig eftir leikina í gær þar
sem Selfoss sigraði FH
34:29 í Kaplakrika og ÍBV
sigraði Stjörnuna í Eyjum,
29:28. Möguleikar ÍBV eru
mestir og verður liðið efst
ef liðin þrjú vinna öll í síð-
ustu umferðinni. »4-5
Þrjú lið geta náð
efsta sætinu Mo Salah, leikmaður Liverpool, er
orðinn markahæsti knattspyrnumað-
ur Evrópu eftir mörkin fjögur sem
hann skoraði gegn Watford á laugar-
daginn. Egyptinn
hefur skorað
36 mörk í öll-
um keppnum
á leiktíð-
inni. »2
Markavélin Mo Salah
Sindri Hrafn Guðmundsson, spjót-
kastari úr Breiðabliki, náði lág-
marki fyrir Evrópumótið í frjálsum
íþróttum sem haldið verður í Berlín
í ágúst þegar hann kastaði 80,49
metra á háskólamóti í Kaliforníu á
laugardaginn. Rætt er við Sindra í
íþróttablaði Morgunblaðsins í dag
en hann er fimmti Íslendingurinn
til að rjúfa 80 metra múrinn. »1
Sindri Hrafn á leið
á stórmót í Berlín
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Áður fyrr lögðu knapar mikið upp úr því að reið-
tygi væru skrautleg og til prýði, en nú stendur yf-
ir sýningin „Prýðileg reiðtygi“ í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins við Suðurgötu.
Þar ber að líta úrval skreyttra söðla, söðulreiða
og söðuláklæða úr safneign Þjóðminjasafns Ís-
lands. Sýningarhöfundurinn er Lilja Árnadóttir,
sviðsstjóri munasafnsins. Samnefnt rit kemur út
samhliða sýningunni þar sem fjallað er um söðla
og handverk tengt þeim.
Konur sátu kvenveg í söðlinum
„Í Þjóðminjasafni Íslands er varðveittur fjöldi
gripa sem tengjast hestinum. Mikið er til af reið-
verum og búnaði sem notaður var við landbún-
aðarstörf og flutninga, s.s. klyfberar og reiðingar,
reipi og aktygi. Við val á munum á þessa sýningu
var ákveðið fjalla um hluti sem væru vel skreyttir,
eða prýðilegir, vönduð smíð og vandað handverk.“
Um er að ræða hluta af reiðtygjum, beisli, söð-
ulreiða, gjarðahringjur og söðla. Þeir elstu eru frá
17. öld og þeir yngstu frá 20. öld. Aðeins einn karl-
mannshnakkur er á sýningunni en þeir eru mun
sjaldgæfari, að sögn Lilju. Á fyrri öldum riðu kon-
ur kvenveg, í söðli með báða fætur öðrum megin
því þær klæddust síðum pilsum, en karlar riðu
klofvega í hnakk, eins og tíðkast í dag. Konurnar
sátu þvert á ferðaátt hrossins, sneru upp á líkam-
ann. Á seinni hluta 19. aldar og á 20. öld þróaðist
söðullinn svo að hægri fótur var hafður uppi á
klakknum en sá vinstri hvíldi á fótafjöl svo ásetan
varð þægilegri. Aðspurð segist Lilja sjálf aldrei
hafa riðið í söðli, enda sé það afar vandasamt,
bæði að komast á bak, halda jafnvægi og fá hest-
inn til að ganga.
Söðulvirkið var úr tré en löf úr sútuðu leðri og/
eða vaðmáli en skrautið úr kopar. Söðlasmíði var
iðn og koparþynnurnar nálægt því að vera eins og
gullsmíði. Konur riðu í söðlum eitthvað fram á
tuttugustu öld. Lilja vill ekki meina að einhver
gripur sé merkilegri en annar, þetta séu níu söðl-
ar, en segir þó söðlana frá 17. öld vera áhugaverða
og vitna um listfengi og handlagni hagleiksfólks.
„Það er talað um albúinn hellusöðul, sem merk-
ir að bríkin, bakið á söðli, var alsett drifnum
málmþynnum. Ártöl og fangamörk eiganda eru
stundum stönsuð í plöturnar.“
Söðuláklæðin eru ekki „teppi“
„Reiðar voru mjög skrautlegir, en þeir voru til
að spenna söðulinn undir taglið á hestinum svo
hann rynni ekki fram á makka hestsins. Söðul-
áklæði voru höfð til að breiða aftur yfir söðul-
sveifina sem er fyrir bakið á knapanum. Hlut-
anum sem var ofan á setunni var vafið um fætur
knapans. Áklæðin voru ýmist ofin eða saumuð,“
segir Lilja og bætir við að það sé alveg bannað að
kalla þau teppi, eins og blaðamanni varð á að gera
í samtalinu.
Ein 15 söðuláklæði eru á sýningunni, sum með
hefðbundnu mynstri en önnur óvenjuleg. Söðul-
áklæðin eru ýmist útsaumuð glitspori eða glitofin,
en gerð er grein fyrir aðferðunum í greininni
Söðuláklæði í sýningarritinu.
„Prýðileg reiðtygi“ til sýnis
á Þjóðminjasafni Íslands
Morgunblaðið/Eggert
Sýnir skreyttan söðul Lilja Árnadóttir er sýningarhöfundur sýningarinnar Prýðilegra reiðtygja.
Konur áður fyrr riðu
kvenveg Sátu í söðli með
fallega skreytt reiðtygi
Megas og Krist-
inn H. Árnason
kynna gestum
Mengis nýtt efni í
kvöld kl. 21. Pró-
grammið er safn
af lögum sem eiga
það eitt sameigin-
legt að vera frjáls
og ekki þrælar í
nauðungarvinnu netsins.
Þau eru ýmist ný eða nokkuð göm-
ul, sum hafa heyrst á leik- eða list-
sýningum en aldrei náð inn á þær
slóðir sem netklærnar ná til.
Nýtt efni í Mengi
Lilja segir að í safnbúðinni séu til sölu ennis-
lauf á beisli. Þau séu dæmi um hvernig hönn-
uðir í dag sækja sér fyrirmyndir í varðveittan
menningararf. Ekki þurfi að fjölyrða um mik-
ilvægi hestamennskunnar hér á landi, sem sé
bæði frístundasport en einnig atvinnugrein
fjölda fólks. Reiðtygin prýðilegu á sýningunni
eigi því erindi til okkar í samtímanum. Þau
séu til vitnis um hagleik genginna kynslóða
auk þess að varpa ljósi á hvernig ferðast var
milli staða á fyrri tíð.
Hagleikur geng-
inna kynslóða
REIÐTYGIN PRÝÐILEGU EIGA ERINDI
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 3-10, lítilsháttar væta sunnan-
og vestanlands, en víða léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi.
Á þriðjudag Suðaustan 8-15 og rigning sunnan- og vestanlands en
suðvestan 8-13 síðdegis. Hægari og þurrt norðaustanlands.
Á miðvikudag Sunnan 8-15 og rigning, en þurrt á norðaustan-
verðu landinu. Hiti 2 til 8 stig.