Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 1
M Á N U D A G U R 2 6. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 72. tölublað 106. árgangur
MÁLNOTKUN
UNGLINGA
SKOÐUÐ
HEILAHREYSTI
OG LÍKAMS-
HREYSTI
HLJÓMSVEITIN
ATERÍA VAR SIG-
URVEGARINN
BRYNHILDUR OG MARÍA 12 MÚSÍKTILRAUNIR 29HELGA HILMISDÓTTIR 26
„Við teljum okkur vera búin að finna lausnina á því hvernig
við getum lagað hana þannig að þetta gerist ekki aftur og
horfum björtum augum til framtíðar,“ segir Ólöf Nordal
myndlistarmaður og höfundur listaverksins Þúfunnar, sem
stendur á útivistarsvæðinu við Norðurgarð á Granda. Ólöf
segir að sér hafi þótt leiðinlegt að sjá hvernig verkið skemmd-
ist eftir miklar rigningar í febrúarmánuði, en þá rann vatns-
ósa jarðvegurinn fram á austurhlið þess. Grjótuppbyggingin
sem sést hér á myndinni er að sögn Ólafar fyrsta skrefið í að
laga sárið. „Við vonumst til þess að við getum klárað þetta
fyrir vorið, svoleiðis að hún verði orðin góð í sumar,“ segir
Ólöf, en Þúfan var reist árið 2013 og er í eigu HB Granda.
Vongóð um að Þúfan verði orðin góð í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innan bæjarstjórnar Seltjarnar-
ness hefur verið rætt um að setja
hámarkshraða á hjólastíga í bæn-
um, en íbúar þar hafa að undan-
förnu lýst áhyggjum af miklum
hjólreiðahraða.
„Hjólandi latexgallar með
straumlínuhjálma þeysa framhjá
manni algjörlega hljóðlaust í hóp-
um í friðsælli náttúrunni svo maður
hrekkur í kút og missir andann,“
skrifar íbúi nokkur á umræðuvett-
vangi þeirra á Facebook. »9
Hjólandi latexgallar
með straumlínu-
hjálma þeysa hjá
Seltirningar Hafa áhyggjur af hjólum.
Fjarðabyggð kemst yfir 5.000 íbúa
markið þegar sameining við Breið-
dalshrepp, sem samþykkt var um
helgina, tekur gildi í sumar. Skóla-
hald á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði,
þorpum sem nú verða í sama sveitar-
félagi, verður sameinað og svo farið
í ýmsar framkvæmdir á Breiðdals-
vík. Þess er kostur núna því samein-
ingu fylgir um 700 millj. kr. framlag
frá ríkinu í gegnum Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga. »11
Fjarðabyggð yfir
5.000 íbúa markið
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Meðalaldur íslenskra sjúkraliða er
47 ár og hækkar ár frá ári. Rétt um
helmingur þeirra 60-80 sem útskrif-
ast úr sjúkraliðanámi á ári hverju fer
til starfa við fagið, sjúkraliðar eru
einn stærsti hópurinn sem nýtir sér
úrræði VIRK starfsendurhæfingar-
sjóðs, en áður hefur verið greint frá
því að örorka meðal sjúkraliða hefur
aukist jafnt og þétt undanfarin ár.
Meðaltal veikindadaga sjúkraliða á
ári eru 20,5 dagar, sem samsvarar
um einum mánuði í vinnu.
Verði ekkert að gert mun hátt í
900 sjúkraliða vanta til starfa á
næstu árum, en nú eru um 2.000
starfandi sjúkraliðar á landinu.
Þetta segir Gunnar Örn Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sjúkraliða-
félags Íslands.
Unnið að mannaflaspá
Nú er unnið að gerð svokallaðrar
mannaflaspár innan heilbrigðisráðu-
neytisins, þar sem spá á fyrir um
þörfina á heilbrigðisstarfsfólki, þar
með talið sjúkraliðum, á næstu ár-
um. Þá er þar einnig unnið að stefnu
í mannaflamálum og skoða á mönn-
unarviðmið í heilbrigðisþjónustu í
samráði við Embætti landlæknis.
Gunnar segir að ein ástæða þess
að þeir sem læri til sjúkraliða skili
sér ekki inn í starfið gæti verið mikil
umræða um hversu mikið álag fylgi
störfum í heilbrigðiskerfinu.
Álagið segir hann vera eina
ástæðu þessarar háu tíðni örorku og
veikinda. „Við heyrum það a.m.k. hjá
okkar félagsmönnum,“ segir Gunn-
ar.
900 sjúkraliða
vantar til starfa
Um helmingur útskrifaðra sjúkraliða fer í önnur störf
M50% sjúkraliða starfa ... »16
Morgunblaðið/Golli
Sjúkraliðar Það stefnir í verulegan skort á sjúkraliðum verði ekkert að
gert. Margir þeirra sem útskrifast úr sjúkraliðanámi fara í önnur störf.
Þverpólitísk samstaða er meðal ung-
liðahreyfinga stjórnmálaflokkanna
um að samþykkja frumvarp um
lækkun kosningaaldurs í 16 ára ald-
ur. „Okkur þykir óttalega sorglegt
hvernig þetta fór; stöðvað af nokkr-
um miðaldra körlum,“ segir Þór-
arinn Snorri Sigurgeirsson, formað-
ur Ungra jafnaðarmanna. „Það er
leiðinlegt að þingmenn hafi með
málþófi komið í veg fyrir að frum-
varp, sem nýtur stuðnings mikils
meirihluta Alþingis, fengi afgreiðslu
fyrir páska,“ segir Ingvar Smári
Birgisson, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Hreyfingarnar sendu í samein-
ingu bréf til þingmanna þar sem þeir
voru hvattir til að samþykkja frum-
varpið. »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Ungliðar eru ósáttir við af-
greiðslu kosningaaldursfrumvarps.
Ungliðar
sammála um
frumvarp
Stöðvað af nokkr-
um miðaldra körlum