Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 6

Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Vörulyftur og varahlutir frá sænska framleiðandanum Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mörg stór verkefni eru framundan í hagsmunabaráttu okkar, segir Elísabet Brynjarsdóttir, nýr for- maður Stúdentaráðs Háskóla Ís- lands. Húsnæðismál eru efst á baugi og þó fjöldi íbúða hafi verið byggður á vegum Félagsstofnunar stúdenta er þörfin á meiru brýn. Nú er verið að byggja fjölbýlishús við Sæmundargötu í Reykjavík með alls 244 íbúðum. Fleiri íbúðir og meira til LÍN „Nú eru hátt í 800 stúdentar á biðlista eftir íbúðum. Við þurfum að byggja meira. Að mínu mati er mikilvægt að byggja í nálægð við háskólasvæðið fyrir stúdenta, því það stuðlar að betra aðgengi að námi sem og umhverfisvænni skóla,“ segir Elísabet. „Svo er mikilvægt að byggja hér á landi upp raunhæfan leigu- markað meðal annars fyrir nýút- skrifað skólafólk. Jafnframt þurfa að vera raunhæfir kostir á mark- aði fyrir fyrstu kaupendur. Það er hagsmunamál stúdenta að ungt fólk eigi kost á að leigja eða kaupa húsnæði eftir útskrift og ríki og sveitarfélög þurfa að leggja mun meiri áherslu á raunhæfan hús- næðiskost ungmenna.“ Annað mál sem brennur á stúdentum eru þær breytingar á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem Lilja Dögg Al- freðsdóttir, nýr menntamálaráð- herra, boðaði í viðtali við Stúd- entablaðið fyrir skemmstu að hún myndi leggja fram frumvarp um á haustþingi 2019. „Ef endurskoðun á lögum LÍN á að fela í sér bættan hag stúdenta þarf að verja meira fé í málaflokkinn. Á sama tíma hef- ur stjórn sjóðsins vald til þess að breyta úthlutunarreglum sjóðsins sem er gert árlega. Hækkun á grunnframfærslu stúdenta sem og frítekjumarks námslána eru mik- ilvæg baráttumál sem hægt er að bregðast við strax og ég vil þrýsta á að það verði gert.“ Ytri aðstæður hafa áhrif á geðheilsu Um þriðjungur háskólanema hér á landi er með klínísk einkenni þunglyndis, samkvæmt rannsókn sem gerð var meðal nemenda þriggja íslenskra háskóla. Talsvert var fjallað um þessa könnun á dög- unum og segir Elísabet hana vera mjög athyglisverða þó svo svar- hlutfallið hafi ekki verið jafn hátt og æskilegt er. Því beri að forðast alhæfingar „Vandinn er þó til staðar og því hafa nemendur og háskólar vissulega brugðist við. Undanfarið starfsár höfum við í stúdentaráði haldið á lofti háværri kröfu um fjölgun úrræða í geðheilbrigðis- þjónustu við nemendur og hefur því verið svarað með til dæmis hópnámskeiði í hugrænni atferlis- meðferð, sem við þurfum að kynna enn betur. Heilbrigðisþjónustan þarf að geta tekið á móti þeim sem þurfa á hjálp að halda og vísað ein- staklingum innan háskólans á rétta aðila ef þörf þykir. Við get- um að auki gripið til fyrirbyggj- andi ráðstafana af öðrum toga. Og þar er mikilvægt að horfa á stöðu háskólanemenda heildrænt,“ segir Elísabet og minnir þar á að að- stæður okkar í lífinu og heilsa haldist jafnan í hendur. „Grunnframfærsla lánasjóðs- ins, sem á að vera jöfnunarsjóður nemenda, er nú um 177 þúsund krónur á mánuði, sem er undir ör- orkubótum og lágmarkslaunum. Á sama tíma og nemandi á að láta þá upphæð koma sér áfram stendur nemandinn frammi fyrir húsnæð- isvanda þar sem aðeins 9-10% nemenda komast að á stúdenta- görðum og leigumarkaðurinn get- ur verið erfiður og dýr. Sömuleiðis gæti það ýtt undir einmanaleika og félagslega einangrun að ein- hverju leyti að búa ekki á stúd- entagörðum eða við óviðunandi húsnæðiskost. Þetta eru allt ytri aðstæður sem við getum breytt og haft áhrif á.“ Heillaði mig upp úr skónum Heilbrigðismál eru Elísabetu hugleikin, en hún er hjúkrunar- fræðingur að mennt og brautskráð frá HÍ. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á mannslíkamanum svo og mannlegu eðli, samskiptum og samfélaginu. „Maður þarf að líta í svo mörg horn, taka allt með í reikninginn á sama tíma og með- ferð er veitt. Starfið er fjölbreytt, býður upp á atvinnutækifæri á Ís- landi og í útlöndum. Hjúkrunar- fræðin heillaði mig upp úr skón- um. Stéttin á mikið inni og eru mörg sóknarfæri til þess að efla heilbrigðisþjónustu á Íslandi í gegnum hjúkrunarfræðinga. “ Húsnæðismál, LÍN og geðheilsa ofarlega á blaði hjá Stúdentaráði HÍ Morgunblaðið/Hari Háskólinn Hagsmunamál stúdenta að eiga kost á að leigja eða kaupa húsnæði, segir Elísabet Brynjarsdóttir. Kostirnir séu raunhæfir  Elísabet Brynjarsdóttir er fædd 1992 og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Há- skóla Íslands í júní sl. Hefur starfað sem teymisstjóri hjá heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins síðast- liðið ár. Er formaður Hugrúnar – geðfræðslufélags háskóla- nema, sem stofnað var árið 2016 af nemendum í hjúkr- unarfræði, læknisfræði og sál- fræði við HÍ. Hver er hún? Ólöf Ragnarsdóttir olofr@mbl.is Þverpólitísk samstaða er á meðal ungliðahreyfinga stjórnmálaflokk- anna um frumvarp um lækkun kosn- ingaaldurs til sveitarstjórnarkosn- inga í 16 ár. Á föstudag var umræðu um frumvarpið frestað fram yfir páska. Nokkrir þingmenn voru gagn- rýndir fyrir málþóf og sakaðir um að hindra að vilji þingsins næði fram að ganga. Ungliðahreyfingar allra stjórn- málaflokka sem hafa slíkar hreyfing- ar innan sinna vébanda, sendu í sam- einingu bréf til þingmanna þar sem þeir voru hvattir til þess að sam- þykkja frumvarpið. Í bréfinu segir meðal annars: „Athygli vekur að yf- irgnæfandi meirihluti þeirra styðja málið, og öll samtök ungs fólks sem sendu inn álit voru málinu fylgjandi. Það væru því mikil vonbrigði ef Al- þingi tæki ekki afstöðu með ungu fólki sem vill hafa áhrif á samfélagið sitt, og bæri fyrir sig ákvæði sem ekki eiga við.“ Óánægja meðal formanna Í samtölum við formenn hreyfing- anna lýstu þeir allir yfir vonbrigðum með að málið hefði ekki verið afgreitt í þinginu. „Þetta eru ákveðin von- brigði, hvernig framferði ákveðinna þingmanna stöðvaði málið,“ segir Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, for- maður Uppreisnar sem er ungliða- hreyfing Viðreisnar. „Okkur þykir þetta óttalega sorglegt hvernig þetta fór, stöðvað af nokkrum miðaldra körlum mestmegnis í þinginu,“ segir Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, for- maður Ungra jafnaðarmanna. „Það er leiðinlegt að þingmenn hafi með málþófi komið í veg fyrir að frum- varp, sem nýtur stuðnings mikils meirihluta Alþingis, fengi afgreiðslu fyrir páska,“ segir Ingvar Smári Birgisson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. „Þetta er frekar ömurlegt,“ segir Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra VG, sem telur að frumvarpið hafi verið stöðvað með málþófi þingmanna þeirra flokka sem njóta minna fylgis meðal ungs fólks. „Við erum auðvitað bara mjög vonsvikin að þetta frum- varp hafi ekki náð í gegn,“ segir Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra framsóknarmanna. „Þetta er eitthvað sem við styðjum heilshugar og erum mjög döpur að hafi ekki orðið að veruleika. Það eru undarleg rök að segja að krakkar á þessum aldri hafi ekki myndað sér skoðun, af því það er kannski 60 til 70% kjörsókn að meðaltali, á þá að taka kosningaréttinn af fullorðnu fólki sem er ekki búið að mynda sér skoðun?“ spyr Valborg Sturludóttir, sem situr í stjórn Ungra pírata. Þverpólitísk samstaða meðal ungliða  Styðja frumvarp um lækkun kosningaaldurs í 16 ár  Óánægja meðal formanna ungliðahreyfinga Málþóf Umræðunni var frestað. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sú ákvörðun eigenda tölvubúnaðar, sem stolið var úr gagnaveri á Suð- urnesjum fyrir nokkrum vikum, að heita 6 milljónum króna í fundar- laun til þess sem getur gefið upp- lýsingar um hvar búnaðinn er að finna, á sér fá fordæmi hérlendis. Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, sagðist í samtali við mbl.is í gær ekki minn- ast þess að þessi leið hefði verið farin áður í rannsókn sem hann hefði tekið þátt í. Ákvörðunin væri tekin að ósk þeirra sem eiga tölv- urnar og aðspurður sagði hann fundarlaunin vera eitt þeirra út- spila sem talið er að geti skilað ár- angri í leitinni. Í tilkynningu, sem lögreglan sendi fjölmiðlum í gær, segir að fundarlaunin verði veitt þeim sem geti veitt áreiðanlegar upplýsingar og að þær verði að berast fyrir 12. apríl næstkomandi. Fundarlaunin verði greidd þeim sem lögreglu- yfirvöld staðfesti að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn sé að finna. Fyllsta trúnaðar gætt Þá segir þar ennfremur að fyllsta trúnaðar verði gætt við þá sem veiti lögreglu upplýsingar um málið. Í gærkvöldi sagði Ólafur að sér væri ekki kunnugt um hvort ein- hverjar ábendingar hefðu borist en það myndi væntanlega liggja fyrir í dag. Búnaðurinn sem um ræðir er metinn á um 200 milljónir króna. Hann er afar sérhæfður og hann- aður til að grafa eftir rafmyntum á borð við Bitcoin. Þetta er eitt stærsta þjófnaðarmál sögunnar hér á landi og hefur lögreglan á Suður- nesjum verið í samstarfi við Evrópulögregluna, Europol, vegna málsins. Yfir tuttugu hafa verið handteknir vegna málsins, einn þeirra er fyrrverandi öryggisvörður hjá Öryggismiðstöðinni. Ólafur sagði á mbl.is í gær að mikil vinna hefði verið lögð í málið og sagðist telja að náðst hefði góð mynd af því þótt tölvurnar væru enn ófundnar. Einn er í gæslu- varðhaldi vegna málsins og verður fram undir miðjan næsta mánuð. Fá fordæmi fyr- ir fundarlaunum  6 milljónir boðnar í verðlaun fyrir upplýsingar um stolinn tölvubúnað Morgunblaðið/Júlíus Lögreglustjóri Ólafur veit ekki til þess að þessi leið hafi verið farin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.