Morgunblaðið - 26.03.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti
Eiríkur Bogason, fyrr-
verandi framkvæmda-
stjóri Samorku, lést
föstudaginn 23. mars
síðastliðinn, 71 árs að
aldri. Eiríkur lætur
eftir sig eiginkonu,
Guðbjörgu Ólafs-
dóttur, og tvö upp-
komin börn.
Eiríkur fæddist í
Vestmannaeyjum þann
24. janúar árið 1947 og
voru foreldrar hans
Bogi Jóhannsson raf-
virkjameistari og Hall-
dóra Björnsdóttir ljós-
móðir. Eiríkur lauk sveinsprófi í
rafvirkjun 1967 og síðar námi í raf-
magnstæknifræði frá Árósaháskóla
í Danmörku árið 1984.
Eiríkur starfaði sem veitustjóri
Bæjarveitna Vestmannaeyja á ár-
unum 1985 til 1995 og
leiddi þar sameiningu
vatns-, hita- og raf-
veitu bæjarins. Hóf
hann síðan störf sem
framkvæmdastjóri
Samorku við stofnun
samtakanna og starf-
aði þar uns hann lét
af störfum sökum
veikinda árið 2013.
Samhliða störfum
sínum gegndi Eiríkur
ýmsum félags- og
stjórnunarstöðum og
sat í nefndum og ráð-
um á sviði orkumála
og menntunar í tæknigreinum.
Börn Eiríks eru þau Soffía Ei-
ríksdóttir, sérfræðingur hjá Virk
starfsendurhæfingarsjóði, og Karl
Eiríksson, viðskiptastjóri hjá Sam-
skipum.
Andlát
Eiríkur Bogason, fyrrv.
frkv.stjóri Samorku
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íbúar á Seltjarnarnesi hafa að
undanförnu lýst áhyggjum af
framgöngu hjólreiðamanna í bæn-
um. Kvartað er undan því að hjól-
reiðamenn fari of geyst og taki
ekki tillit til annarra vegfarenda.
Þá þykir mörgum skjóta skökku
við að hjólað sé á göngustígum
þegar nýbúið sé að leggja nýja
hjólastíga við hlið þeirra.
„Hjólandi latexgallar með
straumlínuhjálma þeysa framhjá
manni algjörlega hljóðlaust í hóp-
um í friðsælli náttúrunni svo mað-
ur hrekkur í kút og missir and-
ann,“ skrifar íbúi á umræðu-
vettvangi þeirra á Facebook.
Varabæjarfulltrúinn Karl Pétur
Jónsson blandar sér í umræður
um málið og segir: „Þar sem Sel-
tirningar hafa af rausnarskap
lagt sérstakan hjólastíg meðfram
Norðurströnd, finnst mér nú sjálf-
sögð kurteisi af hjólreiðafólki að
nota hann, fremur en hinn
þrönga stíg við sjóinn.“
Bendir Karl Pétur jafnframt á
að hættulegasti kaflinn á göngu-
stígakerfi Seltjarnarness sé frá
Gróttuvita að golfvellinum. „Það
er af hjólreiðafólki kallað Nes-
spretturinn. Þar hafa til dæmis í
dag 14 hjólreiðamenn farið um
með kveikt á Strava tímatöku-
forritinu sínu. Sá sem hraðast fór
var 105 sekúndur að fara þessa
900 metra. Sem þýðir að hann
hefur verið á rúmlega 30 km
hraða á klukkustund. Metið á
þessum kafla er 55 sek. – en sá
hjólreiðakappi hefur verið á að
meðaltali 60 km hraða á þessum
þrönga stíg. Algengt er að fólk sé
á yfir 50 km hraða á þessum
stað.“
Ásgerður Halldórsdóttir, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, kann-
aðist við þessa umræðu þegar
Morgunblaðið leitaði viðbragða
hennar. Hún sagði að þetta hefði
verið rætt í nefndum bæjarins.
Þegar hún var spurð hvort bæj-
arfélagið myndi bregðast við
þessum áhyggjum bæjarbúa sagði
Ásgerður: „Já, við vorum nú að
klára endurskoðun á umferðarör-
yggisáætlun bæjarins sem fer í
apríl fyrir bæjarstjórn. Þar eru
ábendingar um hraðatakmark-
andi þætti eins og upphleyptar
línur, skilti og fræðsla.“
Kemur til greina að setja há-
markshraða á hjólastíga í bæn-
um?
„Já, það hefur verið rætt en
það hefur ekki verið tekin
ákvörðun þar sem vinna við um-
ferðaröryggisáætlun hefur verið í
gangi. En þetta er í skoðun.“
Ásgerður segist ekki vita til
þess að alvarleg slys hafi orðið á
stígum bæjarins en nokkur slys
hafa orðið þegar hjólreiðamenn
hafa dottið. Bæjaryfirvöld hyggj-
ast halda áfram að bæta hjóla-
stíga í bænum á næstunni. „Það
stendur til að breikka hjólastíg
frá Gróttu að bílastæði við Suður-
strönd/Bakkatjörn sem nú þarfn-
ast viðhalds,“ segir Ásgerður en
umræddur kafli er einmitt áður-
nefndur Nessprettur, eins og hjól-
reiðafólk kallar hann.
Morgunblaðið/Hari
Nesspretturinn Þarna er jafnan hjólað á 50 kílómetra hraða á göngustíg.
Hjóla á allt að 60
kílómetra hraða
Áhyggjur af ofsahraða á Nesinu
Framkvæmdir hefjast á næstu misserum við byggingu
nýrrar verslunar Krónunnar í Norðlingaholti í Reykjavík.
Henni er ætlað meðal annars að koma í stað verslunar fyr-
irtækisins í Rofabæ í Árbæ. Sú bygging á að víkja fyrir
íbúðarhúsnæði, samkvæmt þeim áformum sem fyrir liggja
af hálfu borgaryfirvalda.
Tímasetningar viðvíkjandi framkvæmdum í Norðlinga-
holti liggja ekki fyrir, að sögn Kristins Skúlasonar, rekstr-
arstjóra Krónunnar. Lóðin sem byggt verður á liggur að
Breiðholtsbraut og er þar af leiðandi í alfaraleið og nærri
stórum íbúðarhverfum. Búðin verður um 1.000 fermetrar
og um margt sambærileg nýrri verslun Krónunnar á Arn-
arneshæð í Garðabæ sem opnuð verður á næstu vikum.
Krónan í Norðlingaholtið
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Krónan Hverfisbúð í Árbæ þar sem margir kaupa inn.
Verslunin í Rofabænum mun víkja fyrir íbúðarbyggð