Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Vorhreinsun stendur nú yfir á götum
og stígum í Reykjavík. Morgunblaðið
greindi frá því fyrir helgi að fyrst
verði ráðist í að hreinsa fjölförnustu
leiðir, stofnbrautir og tengigötur, auk
helstu göngu- og hjólastíga. Að því
loknu verði húsagötur hreinsaðar.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins kemur fram að Reykjavík-
urborg hreinsar um 400 kílómetra af
götum og um 800 kílómetra af stíg-
um. Þá eru ótaldar stofnbrautir innan
borgarmarkanna sem eru á forræði
Vegagerðarinnar, svo sem Mikla-
braut, Sæbraut og Kringlumýrar-
braut.
Reykjavík hreinsar götur og stíga
kerfisbundið tvisvar á ári. Flestar
götur eru þvegnar einu sinni á ári,
stígar eingöngu sópaðir. Auk þess er
kallað út sérstaklega ef með þarf.
„Heilbrigðiseftirlit kallar út í ryk-
bindingu, sem að mestu er fram-
kvæmd á þjóðvegum í þéttbýli,“ segir
í skriflegu svari Reykjavíkurborgar.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að miðað væri við að göt-
ur væru hreinsaðar fjórum sinnum á
ári. Þar með talin séu þrif á gatna-
mótum, og hellum og umferðareyj-
um, sem farið sé um í annarri hreins-
un hvers árs. „Fjárveitingarnar
miðast við þessi fjögur skipti en það
væri auðvitað æskilegra að gera
þetta oftar,“ segir Bjarni Stefánsson,
deildarstjóri hjá Vegagerðinni. Vega-
gerðin hófst handa við að sópa götur í
síðustu vikur. „Við erum heldur fyrr
á ferðinni en venjulega en tíðin hefur
verið góð. Þetta voru kjöraðstæður til
að byrja,“ segir Bjarni.
Svifryksmengun í höfuðborginni
hefur ekki farið fram hjá íbúum. Há-
vær gagnrýni hefur verið sett fram á
ástand gatnakerfisins og umhirðu
þess. Morgunblaðið beindi þeirri
spurningu til Reykjavíkurborgar
hverjar væru niðurstöður svif-
ryksmælinga fyrir og eftir þrif á göt-
um. Sumsé, hverju skila þrifin?
„Talað er um að rykbinding vari í
hvert skipti 1-3 daga allt eftir aðstæð-
um. Veðurfar hefur mjög mikil áhrif á
niðurstöður hverju sinni og stundum
er erfitt að segja til um það hvort sóp-
un/þvottur hafi haft áhrif tiltekna
daga. T.d. þegar rykbundið var 5.
mars sl. var norðaustanátt ríkjandi
og þá gerðist það að frá svæðinu við
Skeifuna rauk yfir mælistöðina við
Grensásveg. Þann dag voru einungis
Bústaðavegur, Grensásvegur og Suð-
urlandsbraut rykbundin og Mikla-
braut og svo hluti af Sæbraut frá
Holtagörðum út að Mjódd.
Veðurfar hafði einnig áhrif á mæl-
ingar þegar Miklabraut og Hring-
braut voru rykbundnar aðfaranótt
10. mars. Stöðin við Hringbraut var í
vari af húsum sem standa norðan við
stöðina sem staðsett er inni í húsa-
garði og því erfitt að fullyrða um
áhrif,“ segir í svari Reykjavíkurborg-
ar.
Aukinni umferð um að kenna
Það vakti mikla athygli þegar efna-
greining á svifryki í borginni fyrir
nokkrum árum leiddi í ljós að eld-
fjallaaska mældist þar í nokkru
magni. Sú er ekki lengur raunin.
Samsetning svifryks hefur reglu-
lega verið könnuð í gegnum tíðina.
Nýjustu mælingar voru kynntar í
skýrslu Eflu verkfræðistofu sumarið
2017 en þær eru frá árinu 2015. Þar
kom í ljós að svifryk í Reykjavík
(PM10) skiptist í malbik 48,8%, sót
31,2%, jarðveg 7,7%, bremsur 1,6%
og salt 3,9%.
„Stór hluti, eða yfir 80% af svif-
rykinu, stafar af bílaumferð þar sem
stærsti hlutinn kemur frá malbiki. Í
samanburði við mælingar sem gerð-
ar voru árin 2003 og 2013 sést að eld-
fjallaaska er ekki lengur til staðar
sem hafði mælst í töluverðu magni
2013. Hlutfall jarðvegs fer minnk-
andi sem helst í hendur við lítil um-
svif byggingarframkvæmda á höfuð-
borgarsvæðinu á þessum tíma.
Einnig er áberandi hátt hlutfall sóts
sem mældist svipað og árið 2013 en
mun lægra árið 2003. Niðurstöðurn-
ar styðja eindregið þann grun að
vægi sóts í svifryki hafi vaxið mjög á
síðustu árum sem má sennilega rekja
til mikillar aukningar í bílaumferð og
hækkandi hlutfalls díselbíla,“ segir í
skýrslu Eflu.
Páll Höskuldsson, efnaverkfræð-
ingur hjá Eflu, staðfesti við Morg-
unblaðið að vilyrði hefði fengist fyrir
framhaldsrannsókn og væri hún í
undirbúningi. Vonast er til að mæl-
ingar geti hafist í sumar. Í þessari
rannsókn verði einblínt á fínna svif-
ryk en áður. Það sé í takt við erlend-
ar rannsóknir enda þykir fína svif-
rykið, PM2,5, valda meiri
heilsuskaða en hið grófa sem áður
hefur verið prófað.
80% svifryks koma frá bílaumferð
Veðurfar hefur áhrif á mælingar á því hverju götuþrif skila „Æskilegra“ að þrífa göturnar oftar,
segir Vegagerðin Aukin umferð og díselbílar skýra aukið sót Rannsaka á fínna svifryk í sumar
Morgunblaðið/Hari
Svifryksmengun Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa þurft að búa við að-
stæður sem þessar reglulega að undanförnu.
Sót 31,2%Malbik
48.8%
Jarðvegur
7,7%
Bremsur
1,6%
Salt
3,9%
Óvissa og óskil-
greint 6,8%
Heimild: Uppruni svifryks í Reykjavík. Rannsóknarverk-
efni Vegagerðarinnar 2015. Unnið af Eflu verkfræðistofu
Svifryk í Reykjavík
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Alvöru atvinnubíll
Dacia Dokker
Dacia Dokker er einn hagkvæmasti kosturinn sem í boði er fyrir þá sem leita að litlum sendibíl.
Dacia Dokker er með 1,5 l, 90 hestafla díslivél sem notar einungis 4,5 l í blönduðum akstri*. Dacia
bílarnir hafa komið einskalega vel út hvað varðar áreiðanleika í rekstri.
Verð: 2.340.000 kr. m. vsk.
Verð án vsk.:
1.887.000 kr.
*
V
ið
m
ið
u
n
a
rt
ö
lu
r
fr
a
m
le
ið
a
n
d
a
u
m
e
ld
s
n
e
y
ti
s
n
o
tk
u
n
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
k
s
tr
i.
/
B
ú
n
a
ð
u
r
b
íls
á
m
y
n
d
k
a
n
n
a
ð
ve
ra
fr
á
b
ru
g
ð
in
a
u
g
lý
s
tu
ve
rð
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
6
8